Morgunblaðið - 01.07.2021, Síða 40

Morgunblaðið - 01.07.2021, Síða 40
BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is U mhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur lagt til að lundaveiði verði leyfð í eyjunum með sama hætti og á síðasta ári, það er dagana 7.-15. ágúst. Bæjarstjórn á eftir að fjalla um tillöguna. Ráðið telur afar mikilvægt að stjórn lundaveiða í Vestmannaeyjum taki fyrst og fremst mið af viðkomu stofnsins. Samkvæmt lögum er veiði- tímabil lunda að öllu jöfnu frá 1. júlí til 15. ágúst. Í tillögu ráðsins segir, að reynsla síðastliðinna ára hafi sýnt að þeir fáu dagar sem lundaveiði er heimiluð séu nýttir til þess að viðhalda þeirri merkilegu menningu sem fylgir veið- inni og úteyjarlífi almennt. Þá sé tím- inn nýttur til að viðhalda húsnæði út- eyjanna og huga að öðru sem fylgir úteyjunum. Lundaveiðimenn hafi sýnt ábyrgð í veiðum sl. ár og séu veiðifélögin áfram hvött til að standa vörð um sitt nytjasvæði og upplýsa sína félagsmenn um að ganga fram af hófsemi við veiðarnar. Mælir gegn lundaveiði Í umsögn sem Erpur Snær Han- sen, forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands, hefur sent til ráðsins er mælt gegn því að lundaveiðar verði heimilaðar í ár. Segir Erpur að áætl- að sé að lundastofninn á Íslandi hafi minnkað um 45% á árunum 2003 til 2020 og sé það rakið til skorts á fæðu í kjölfar stofnhruns sandsílis vegna hlýnunar sjávar. Þá segir Erpur Snær að háfaveiði og umferð ferðamanna fari ekki sam- an þar sem fuglarnir geri ekki grein- armun á veiðimönnum og ferða- mönnum. Mikil umferð manna í vörpum þar sem einnig sé veitt í valdi mikilli truflun. „Árið 2019 kom upp tilfelli í Stórhöfða þar sem veiðimað- ur drap lunda fyrir framan ferða- menn við lundaskoðunarhúsið, en veiðimaðurinn varð ekki að ósk leið- sögumanna um að veiða úr augnsýn ferðafólks. Ekki þarf mörg tilfelli eins og þetta til að fá af stað nei- kvæða umræðu um upplifun ferða til Eyja,“ skrifar Erpur Snær og leggur til að Stórhöfði verði helgaður lund- anum og þeim sem vilji njóta hans lif- andi þar. Þá hvetur hann umhverfis- og skipulagsráðið til að láta setja upp teljara við hliðið á bílastæðinu við fuglaskoðunarhúsið til að fá glögga mynd af umferð manna um höfðann. Vísbendingar um betri afkomu Bjargveiðimannafélag Vest- mannaeyja leggst í umsögn sinni gegn algjöru veiðibanni á lunda í Eyjum og leggur til að veiði verði leyfð í a.m.k. tíu daga í ágúst. Bjarg- veiðimennirnir segjast hafa sýnt ábyrgð og átt sjálfir frumkvæði að því að takmarka veiðar þegar farið var að takmarka lundaveiðar í Eyjum vegna afkomubrests. Þeir benda á að ítarlegar lunda- rannsóknir hafi aðeins verið stund- aðar allra síðustu ár. Því sé erfitt að bera niðurstöður þeirra saman við fyrri tímabil og ekki mjög marktækt. Vitað sé að sveiflur hafi áður orðið í lundastofninum. Bjargveiðifélagið segir mikilvægt að viðhalda þeirri menningu og venj- um sem hafa fylgt lundaveiðinni. Þeir benda á að undanfarin ár hafi horft betur með viðkomu lundans sem sjá- ist best í auknum fjölda pysja sem skilað hefur verið til pysjueftirlitsins. Þá leggst Bjargveiðimannafélagið alfarið gegn friðlýsingu búsvæða sjó- fugla við Vestmannaeyjar. Einnig mótmælir það því að bannað verði að rota súlu- og fýlsunga eins og gert hefur verið um ómunatíð. Skiptar skoðanir um lundaveiðar í Eyjum Morgunblaðið/Eggert Lundar Löng hefð er fyrir lundaveiðum í Vestmannaeyjum. Þær hafa verið takmarkaðar undanfarin ár meira en áður vegna bágrar afkomu stofnsins. 40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021 Það er ekkiónýtt aðfylgjast með því hvaða áhrif ný- liðnir pólitískir at- burðir hafa á þróun ESB. Eindæma klúður þess í bóluefnamálum gleymist seint. En aðrir at- burðir munu þó hafa meiri áhrif til lengri tíma. Innan sam- bandsins er enn öflugur þrýst- ingur til að fylkja sambands- ríkjunum til enn þéttara „samstarfs“ sem á mæltu máli þýðir frekari valdaþjöppun í Brussel á kostnað fullveldis ríkjanna. Hluti af viðvarandi kapps- máli er að neyða þjóðirnar til að taka upp sameiginlega mynt sem lýtur stjórn risavaxins seðlabanka í Frankfurt. Fram- an af var um að ræða tveggja áfanga kerfi varðandi þennan þátt. Ríki gengu í ESB og svo var knúið á um að þau tækju upp evruna. Þessi aðferð gat átt það til að fara illa út úr þjóð- aratkvæði. ESB hefur þann kæk að taka ekkert mark á nið- urstöðum í þjóðaratkvæði smærri þjóða nema hún sé „rétt.“ Þjóðin skal greiða at- kvæði um hið sama á ný, þar til að „rétt niðurstaða“ kemur upp úr kössunum. Þessa aðferð not- uðu Jóhanna og Steingrímur árangurslaust um Icesave! En nú er reynt að tryggja að stór- þjóðir komist hjá þjóðar- atkvæði. Þegar ný stjórnarskrá ESB var felld af stórþjóð þá var yfir- skriftinni breytt og ríkin skrif- uðu eins og blindir kettlingar undir hinn fellda texta. Þýska stjórnarskráin leyfir ekki alrík- is þjóðaratkvæði um neitt ann- að en stjórnarskrána sjálfa, og er oft vísað til að slík aðferð hafi reynst þjóðinni illa á tíð sem helst má ekki ræða meira en nauðsynlegt er. Svíþjóð var í rauninni skuld- bundin til að taka upp evru gengi landið í ESB. En stjórn- málamenn neyddust til að lofa þjóðaratkvæði um upptöku myntarinnar, enda var það kalt mat þeirra að án slíks loforðs hefði tillaga um inngöngu fallið. ESB taldi sig neyðast til að taka ekki eftir þessu. Þótt mik- ill meirihluti stjórnmála- elítunnar í Svíþjóð hafi rottað sig saman um þetta markmið tók þjóðin í taumana og hafn- aði. Elítan bíður þess að glufa opnist á varúð þjóðarinnar svo skjóta megi illa þokkuðu máli í gegn með ákvörðun sem aldrei verði aftur tekin. Nú er stjórnarkreppa í Sví- þjóð. Hana verður að leysa með því að koma á ríkisstjórn sem aðeins fær að sitja í eitt ár eða skemur. Því að reglan er ótví- ræð. Kosið er á fjögurra ára fresti í september. Falli ríkis- stjórn svo mynda skuli nýja sit- ur sú ekki lengur en til næstu kosn- inga. Þær munu ráða úrslitum um framhaldslíf eða að önnur taki við. Hvort sem takast muni að lappa upp á fallna stjórn eða nýr maður sest stól forsætisráðherra er aukaatriði. Ekkert stórt gerist. Líklegast er að árið til reglulegra kosn- inga breytist í samfellda kosn- ingabaráttu óháð því hver sé forsætisráðherra á meðan. ESB taldi sér trú um að því og samherjum þess innan Bret- lands myndi auðveldlega takast að eyðileggja þjóðarákvörðun Breta um útgöngu. Þeim virtist það vera einfalt reiknings- dæmi. Þáverandi þingforseti studdi það mat. Og eftir því sem þrefið um ákvörðun sem lá fyrir stóð lengur urðu leiðtogar ESB öruggari í sinni vissu um að útgangan yrði að mestu leyti að nafninu til. Þeir höfðu reyndar lengi gengið út frá því. Það var þess vegna sem að kanslari Þýskalands og forseti Frakklands gerðu ekkert með sýndarveruleika Camerons for- sætisráðherra sem lofaði að knýja í gegn nýja samninga um veru Breta í ESB sem gjör- breyta myndu stöðunni þar til batnaðar. Hann margtuggði að fengi hann ekki „ásættanlega“ samninga myndi hann sjálfur berjast ákafast allra fyrir út- göngu. Það blasti svo við öllum að Cameron fékk ekki skít í bolla- broti úr samningabröltinu. Samt lét hann í fyrstu eins og staða Bretlands hefði stór- batnað! Það þaggaði niður í honum þegar þeir sem fóru fyr- ir nei-baráttunni báðu for- sætisráðherrann að minnast alls ekki á „samningana“, því ekkert eitt ýtti meira undir menn í að styðja útgöngu en að kynna sér það nástrá sem nið- urstaðan varð. Í óvæntum kosningum sem Johnson náði óvænt að knýja fram flykktust fyrrverandi kjósendur Verka- mannaflokks í öruggum kjör- dæmum til að krossa með Bor- is, sem hafði loforð um tafarlausa útgöngu efst á sínu blaði. Brusselgengið hefur aldrei fengið annan eins kinn- hest, þótt svikahrappar í Íhaldsflokki séu ekki ónefndir, sem var sópað úr þinginu með hnykk. Staða sumra ESB-ríkja þykir hins vegar hafa veikst innan sambandsins við útgöngu Breta. Svíþjóð hafði þannig iðu- lega stuðning af Bretum sem tryggðu að ekki yrði of hart gengið fram. Eins blasir við að Írland er komið í mun veikari stöðu með sín mál innan ESB, og er nú að þeim þrengt. Rétt er að fylgjast vel með þeirri þróun. Eftir brottför Breta er ESB orðið enn óálitlegri kostur en áður} ESB þarf að taka sér tak Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ R íkisstjórnin samþykkti nýlega til- lögu mína um að ráðast í upp- byggingu fangelsisins á Litla- Hrauni. Í fangelsinu, sem var upphaflega reist sem sjúkrahús, er um helmingur allra fangelsisrýma í landinu en það uppfyllir ekki lengur þær kröfur sem gera verður til slíkrar starfsemi. Má í því sam- bandi vísa í úttektir nefndar Evrópuráðsins um varnir gegn pyndingum o.fl. (CPT- nefndarinnar) frá árunum 2019 og 2020. Þar var m.a. bent á hve erfiðlega hefur gengið að stemma stigu við útbreiðslu fíkniefna í fang- elsinu. Nefndin gerði einnig athugasemdir við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og þá einkum geðheilbrigðisþjónustu fyrir fanga. Talið er að nær 60% fanga í íslenskum fang- elsum glími við vímuefnavanda og tiltölulega hátt hlutfall þeirra glímir við athyglisbrest eða önnur slík vandamál. Brýnt er að hjálpa fólki sem glímir við slíkan vanda og gildir það um fanga rétt eins og aðra landsmenn. Í framhaldi af úttekt CPT-nefndarinnar var gerð að- gerðaáætlun um að efla heilbrigðisþjónustu við fanga, skilgreina verklag og ábyrgð í innri starfsemi fangels- anna og vinna að þarfagreiningu til að sporna gegn dreif- ingu og neyslu vímuefna á Litla-Hrauni. Náðst hefur góð- ur árangur við uppbyggingu geðheilbrigðisþjónustu fyrir fanga með góðri samvinnu við yfirvöld heilbrigðismála. Er starfinu sinnt í gömlum aflögðum fangaklefum. Þeirri aðstöðu verður að koma í betra horf. Með ákvörðun okkar um uppbyggingu á Litla-Hrauni hillir loks undir að húsakostur og annar aðbúnaður fanga í íslenskum fang- elsum verði færður til nútímans. Það hefur dregist alltof lengi að taka til hendinni og það er gagnrýnivert að ábendingar CPT- nefndarinnar hafi þurft til að koma, þannig að nauðsynlegar úrbætur komist til fram- kvæmda. Ég tek fram að algjör samstaða og samhljómur var í ríkisstjórninni um þetta mál. Kostnaður við fyrirhugaðar framkvæmdir á Litla-Hrauni er áætlaður um 1,6 milljarðar króna. Í fangelsinu verður byggð upp öflug heilbrigðis- og endurhæfingarþjónustu fyrir fangelsiskerfið í heild sinni og einnig verður öll aðstaða bæði fyrir fanga og fangaverði bætt til muna. Auðveldara verður að skilja að hinar ýmsu deildir fangelsisins og aðbúnaður aðstand- enda til heimsókna verður einnig lagfærður. Litla-Hraun er stærsta fangelsi landsins og þýðingar- mikið að byggja þar upp og bæta aðstöðu til endurhæf- ingar fanganna sem þar dveljast. Með framkvæmdum þeim sem nú verður ráðist í er stefnt að því að vandamál fangelsisins verði færð í fullnægjandi horf til fyrirsjáan- legrar framtíðar. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Uppbygging á Litla-Hrauni Höfundur er dómsmálaráðherra. aslaugs@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Lundinn er algengastur ís- lenskra fugla. Um 40% af ís- lenska stofninum verpa í Vest- mannaeyjum, að því er segir í skýrslu Náttúrustofu Suður- lands um Stofnvöktun lunda á Íslandi 2017-1019. Lundinn heldur sig á úthafinu yfir veturinn en sest upp á vorin við sjávarsíðuna til að verpa í holur sem hann grefur. Lundinn kafar eftir æti. Hann getur kafað niður á um 60 metra dýpi og safnar ætinu í gogginn og færir síðan pysj- unni. Algengasti fuglinn LUNDINN Ljósmynd/Bogi Arason Tignarlegur á flugi Lundinn hefur lag á að raða sílum í gogginn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.