Morgunblaðið - 01.07.2021, Side 42
42 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021
arfsmannafatnaður
rir hótel og veitingahús
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | www.eddaehf.is
Hótelrúmföt kristin@run.is | Starfsmannafatnaður thorhildur@run.is
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Hótelstjórnandann
Hótelrúmföt
Sérhæfum okkur í sölu á rúmfatnaði
og öðru líni fyrir hótel
Ferðumst
innanlands
í sumar
Skemmtigelt í baði!
Joserabúðin er ný og skemmtileg gæludýrabúð
í Ögurhvarfi 2, Kópavogi. Gæludýr eru velkomin
í heimsókn í fylgd með tvífætlingum.
Joserabúðin – Ögurhvarfi 2, Kópavogi
FRÍTT
Frítt í nýja hunda-
baðið út júlí
Á morgun er geggj-
að svar, þegar maður
er krafinn um efndir á
einhverju sem maður
hefur hummað fram af
sér. Því morgundag-
urinn er hæfilega
langt í burtu í tíma og
rúmi, en samt svo
nærri. Stutt virðist í
efndir, og þannig
kaupir maður sér smá
tíma. Þetta er svo hægt að end-
urtaka nokkrum sinnum. En fyrr en
varir er morgundagurinn gærdag-
urinn og ekkert hefur breyst. Ég
hygg að margir hugsi eitthvað í
þessa veru þegar baráttan fyrir
bættu loftslagi stendur sem hæst.
Eða á að standa sem hæst. Allir vita
að eitthvað þarf að gerast, en það
virðist svo fátt til að gleðjast yfir í
þessari baráttu. Frekar þvert á
móti.
Það hljómar ótrúlega þreytt að
segja sem svo; gerum þetta saman.
Þessi frasi hefur þó ekki orðið til úr
engu, frekar en aðrir frasar. Fras-
arnir koma mörgu til skila, eru auð-
skildir og allra. Nú skal enn höggv-
ið í sama knérunn og sagt fullum
fetum; gerum þetta saman! En hver
eru við, það gæti bent til þess að
þarna væru þið líka. Það er þannig í
vissum skilningi og þá kemur að
inntaki þessa pistils.
Á dögunum var loftslagsvísir at-
vinnulífsins kynntur og þá voru
bæði við og þið saman komin í ein-
um sal. Þarna er ég að tala um at-
vinnulífið og stjórnvöld. Íslenskt at-
vinnulíf hyggst taka fullan þátt í því
að vinna bug á loftslagsvánni. En
það er með atvinnulífið eins og aðra
sem lúta leiðsögn og reglum stjórn-
valda; allt þarf að vera skýrt og
fyrirsjáanlegt.
Fjárfesting í nýsköpun og orku-
skiptum í atvinnulífinu er helst
nefnd sem framlag þess til lausnar.
Það þarf að fjárfesta í nýjum um-
hverfisvænum lausnum, eins og til
dæmis rafmagnsbílum
og nýjum kælikerfum
um borð í fiskiskipum.
Og það þarf að fjár-
festa í nýsköpun sem
leyst getur gamlar úr-
eltar lausnir af hólmi.
Hljómar skynsamlega,
en í mörgum tilvikum
eru slíkar fjárfestingar
áhættusamar og dýrar,
án þess að hægt sé að
treysta því að þær séu
arðbærar eða sam-
keppnishæfar. Því ríður á, að
tryggja getuna til fjárfestinga. Ég
fullyrði að það vantar ekki viljann
hjá atvinnulífinu til að fjárfesta í
umhverfisvænum lausnum. Því
verða stjórnvöld að liðka fyrir fjár-
festingum. Skattheimta er nauðsyn-
leg, en sú sem kemur í veg fyrir
nauðsynlegar fjárfestingar í nýjum
grænum lausnum, mun draga úr
líkunum á því að markmið stjórn-
valda náist. Það verður allra tap
þegar upp verður staðið.
Það þarf ýmislegt að ganga upp
svo háleit markmið náist. Meðal
annars er brýnt að stjórnvöld geri
strax grein fyrir því hvernig um-
gjörð fyrirtækja verði háttað á
komandi árum. Atvinnulífið þarf að
vita hvað er fram undan svo gera
megi áætlanir markvissari og auka
líkur á árangri. Því vegferð án veg-
vísis er dæmd til að mistakast. Sú
vegferð þarf að hefjast í dag, ekki á
morgun.
Það hljómar ótrúlega þreytt að
segja sem svo; gerum þetta saman.
Þessi frasi hefur þó ekki orðið til úr
engu, frekar en aðrir frasar.
Eftir Hildi
Hauksdóttur
Hildur Hauksdóttir
» Því vegferð án veg-
vísis er dæmd til að
mistakast. Sú vegferð
þarf að hefjast í dag,
ekki á morgun.
Höfundur er sérfræðingur
í umhverfismálum hjá SFS.
Á morgun
Það var í kringum aldamótin síð-
ustu að farið var í sameiningu kjör-
dæma og fækkun, nema Reykjavík
var skipt í tvennt og Kraganum
komið á fót.
Línur voru dregnar milli jökla
með nákvæmni reglustikunnar og
stórfljót og mismunandi atvinnu-
hættir og landhagir voru engu látn-
ir skipta.
Þetta gildir enn, utan að lands-
byggðin hefur tapað mönnum og
íbúum og aftur kemur krafa um
meiri jöfnuð. Það má öllum ljóst
vera að samkennd og samvinna er
ekki einkenni kjördæmanna í dag.
Það sést vel á þeim ágreiningi sem
blossað hefur upp í öllum kjör-
dæmum í prófkjörunum. Bónda-
skinn í Uppsveitum hefur ekki
sömu hagsmuni og leigubílstjóri
„upp á velli“ en þó eru það sömu
frambjóðendur sem biðja um fylgi
þeirra beggja.
Samt er ég þeirrar skoðunar að
núverandi skipun, þótt frekar sé
gerð með reglustiku en vísindum,
sé bara ágæt. Þingmenn eru þá
frekar þingmenn landsins alls en
síður í kjördæmapoti, og þeir eru
mátulega fjarlægir til að fá á sig
bláma fjarlægðar í stað sauðalit-
anna.
Sunnlendingur.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Eru kjördæmin nokkuð of stór?
Kjördæmi Línur voru dregnar milli jökla með nákvæmni reglustikunnar.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.