Morgunblaðið - 01.07.2021, Page 54

Morgunblaðið - 01.07.2021, Page 54
54 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021 Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 ✝ Halldóra Gunnarsdóttir fæddist 16. nóv- ember 1933 í Reykjavík. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Ísafold 19. júní 2021. Móð- ir hennar var Aðalheiður Magnúsdóttir verkakona, f. 3.10. 1915 á Gunnars- eyri í Skötufirði, d. 2.8. 1978. Faðir hennar var Gunnar Sigursveinn Arnbjörnsson, bifreiðastjóri og verkamaður, f. 22.5. 1912 á Hlíðarenda í Borgarnesi, d. 14.4. 1970. Systkini Halldóru eru Krist- björg Gunnarsdóttir, f. 1.1. 1937, Birgir Gunnarsson, f. 20.10. 1938, d. 18.2. 1958, drengur Gunnarsson, andvana f. 1945, Þorsteinn Hallgrímur Gunnarsson, f. 16.1. 1946, og Arnbjörn Gunnarsson, f. 19.10. 1948. Fyrri eiginmaður Halldóru var Haukur Guðmundsson, skipstjóri frá Gerðum í Garði, f. 20.4. 1921, d. 16.11. 1991. Foreldrar hans voru Guð- mundur Þórðarson, útvegs- bóndi Gerðabátanna og hrepp- stjóri frá Neðra-Hálsi í Kjós, og Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja frá Káranesi í Kjós. Börn Hall- húsfreyja, f. 3.11. 1899 í Mið- dalskoti í Laugardal, d. 16.6. 1974. Sonur Tryggva úr fyrra hjónabandi er Walter, f. 31.7. 1956, kvæntur Ölmu Ólafs- dóttur, f. 13.4. 1959. Sonur Halldóru og Tryggva er Ingv- ar, f. 12.7. 1972, kvæntur Aðal- heiði Sigurðardóttur, f. 1.11. 1975. Sonur þeirra er Sig- urður, f. 2016. Dóttir Ingvars af fyrra sambandi er Nicole Victoria, f. 2009. Halldóra starfaði sem ritari, m.a. á lögmannsstofu, heilsu- gæslu og SÁÁ. Hún var félagi í Góðtemplarareglunni á sínum yngri árum, þar sem hún gegndi fjölda trúnaðarstarfa, og virk í starfi Guðspeki- félagsins um árabil. Eftir að Birgir, bróðir Halldóru, fórst með vitaskipinu Hermóði árið 1959 og í kjölfar lífsháska sem hún sjálf varð fyrir er Dranga- jökull fórst í Pentlinum 28. júní 1960 einsetti hún sér að leita leiða til þess að minnast þeirra sem týnt höfðu lífi til sjós en voru ekki grafnir í vígðri moldu. Hafði hún m.a. veg og vanda af því að sjómannadags- ráð ásamt Vita- og hafna- málastofnun lét reisa minn- isvarðann „Minningaröldur sjómannadagsins“ sem vígður var sjómannadaginn 2. júní 1996. Halldóra var meðal stofn- meðlima Freeportklúbbsins ár- ið 1976 og átti, ásamt öðrum félögum klúbbsins, frumkvæði að stofnun SÁÁ hér á landi. Útför Halldóru fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 1. júlí 2021, klukkan 15. dóru og Hauks eru: 1) Gunnar, f. 6.9. 1955, maki Guðrún Hrönn Ingimarsdóttir, f. 20.7. 1957. 2) Ingi- björg, f. 8.12. 1957. Börn hennar og fyrrum eiginmanns hennar, Þorsteins Gunnarssonar, eru Halldóra, f. 21.6. 1984, og Haukur, f. 7.6. 1986. Börn Halldóru og eiginmanns hennar, Daníels Isebarn Ágústssonar, f. 7.11. 1980, eru Ingibjörg, f. 2012, Haukur Leó, f. 12.11. 2015, og nýfædd Daníelsdóttir. Sonur Daníels úr fyrra sambandi er Bergur Ágúst, f. 2010. Núver- andi eiginkona Þorsteins er Fríða Aðalheiður Sæmunds- dóttir, f. 28.5. 1954. 3) Birgir, f. 26.10. 1962, maki Sóley Ingi- björg Erlendsdóttir, f. 28.4. 1959. Synir þeirra eru Guð- laugur Ellert, f. 1988, kvæntur Grace Ellert, og Gunnar, f. 1990. Seinni eiginmaður Halldóru var Tryggvi Eyjólfsson vél- stjóri, f. 24.3. 1930, d. 16.3. 2010. Foreldrar hans voru Eyj- ólfur Júlíus Brynjólfsson verkamaður, f. 25.7. 1891 í Mið- húsum í Biskupstungum, d. 5.9. 1973, og Kristín Árnadóttir Hún móðir mín fæddist 16. nóvember, á afmælisdegi Jónas- ar Hallgrímssonar sem síðar varð dagur íslenskrar tungu og íslenska fánanum því flaggað úti um allan bæ. Hún var stolt af því að deila þessum degi með Jónasi því hún var mikil ljóða- og ís- lenskukona og Jónas ásamt Dav- íð Stefánssyni í miklu uppáhaldi. Ég mun seint gleyma því þegar hún lá fársjúk fyrir ári síðan á bráðamóttöku Landspítalans og söng nær öll erindin um Helgu Jarlsdóttur þrátt fyrir að vera hvorki áttuð á stað né stund. Um ganga bráðamóttökunnar mátti heyra: „Myrka stigu margur rek- ur. Mörg eru sporin orpin sandi…“ o.s.frv. Hún elskaði að koma á sunnudagskvöldvökur þar sem börnin mín léku tónlist og sungu með henni uppáhalds- ljóðin hennar. Þetta voru gæða- stundir með fjórum ættliðum. Mamma var litríkur persónu- leiki. Hún var stórglæsileg svo eftir var tekið, greind, vel lesin og víðförul. Þá bjó hún yfir mikl- um dugnaði og krafti og hafði urmul af hæfileikum. Hún var sannkallaður heimsborgari. Líf hennar var auk þess viðburðaríkt enda bað Jónas Jónasson um að fá að skrá ævisögu hennar. Hún var ung þegar hún giftist föður mínum. Þau komu úr afar ólíkum bakgrunni. Hún af fá- tæku alþýðufólki sem barðist fyr- ir bættum hag verkafólks. For- mæður hennar voru miklar kvenréttindakonur og amma hennar, sem kölluð var „Kæja kommi“, var á lista fyrir Sósíal- istaflokkinn á Ísafirði. Faðir minn var hins vegar af rótgrónu íhaldsfólki kominn þar sem Sjálf- stæðisflokkurinn var flokkurinn. Pabbi var sonur útgerðarmanns og hreppstjóra og á því heimili var efnahagur góður. Þessi ráða- hagur bætti sjálfsmynd mömmu og hún naut sín á fyrstu hjúskaparárunum. Hún var fyrirmyndarmóðir í alla staði; saumaði dúkkuföt, fór með börn- in í götunni í ævintýraferðir og hélt jólaböll heima með alvöru- jólasveinum. En veður skipast fljótt í lofti. Eina óveðursnóttina árið 1959 barst sú harmafregn að vitaskipið Hermóður hefði farist við Reykjanes með allri áhöfn, m.a. Birgi, 19 ára bróður hennar. Ári síðar varð annað áfall þegar Drangajökull sökk í Pentlinum. Faðir minn var skipstjóri og mamma, ásamt Gunnari bróðir mínum, sem þá var fjögurra ára, björguðust naumlega í gúmmí- björgunarbát. Þessi tvö sjóslys settu mark sitt á mömmu, en í þá daga var hugtakið áfallahjálp ekki til. Hún missti tökin og leit- aði í óæskilega vímu til að geta sofið og verið til. Löngu fyrir fermingu tók ég því í reynd við hlutverki hennar og sá hlut- verkaruglingur hélst þar til ég átti mín eigin börn og sagði upp mínu aukahlutverki gagnvart henni með tilheyrandi svita og tárum. Þessi reynsla mín hefur nýst mér alla tíð. Lán mömmu var að Hilmar Helgason varð á vegi hennar. Hann fór með hana á Freeport og mamma varð umvafin dug- miklu góðu fólki sem lyfti grettis- taki og stofnaði SÁÁ. Hún var ein af fyrstu starfsmönnum sam- takanna og naut sín í nýju hlut- verki við að styðja aðra. Síðustu árin voru henni erfið enda er glíma við alzheimer-sjúk- dóminn þungt högg. Það var í hennar anda að andlátið bar upp á kvenréttindadaginn 19. júní þegar sólin var að rísa og boða nýjan dag. Ég var þakklát fyrir að vera við dánarbeðinn, halda í hönd hennar og syngja fyrir hana kvæðið um Helgu Jarlsdóttur. Ég hafði svo margt frá henni og hún kenndi mér svo margt þótt vissulega hefði ég viljað að sumt hefði verið öðruvísi. Guð blessi minningu þína elsku mamma. Þín dóttir Ingibjörg. Elsku amma. Það er erfitt að hugsa til þess að fá ekki að sjá þig aftur. Þú sem varst svo stór partur af lífi manns og litríkur hluti tilverunnar. Þegar ég lít um öxl koma upp í hugann ótal minn- ingar úr æsku af okkur nöfnun- um á Vesturströndinni þar sem þú kenndir mér borðsiði, þuldir vísur og rímur eða gerðir árangurslitlar tilraunir til þess að vekja áhuga minn á garð- yrkju. Þú reyndir líka að opna augu manns fyrir alls kyns hug- rækt og dróst mig með þér á fundi í Guðspekifélaginu ásamt því að segja mér sögur af Móður Teresu eða öðrum af þínum hugðarefnum. Að ógleymdum sögunum úr siglingum þínum um heimsins höf, kennslustundum í landafræði og öðrum fróðleik sem þú miðlaðir á svo skemmti- legan hátt. Þú varst nefnilega mikil heimskona og vel að þér um hvort sem var heimssöguna, landafræði, bókmenntir, listir eða þjóðmálin almennt. Upp úr stendur samt einstakur húmor- inn, hlátursköstin og kímni sem fylgdi þér fram á síðasta dag. Jafnvel þegar veikindi þín voru langt gengin voru spaugilegu hliðarnar aldrei langt undan og alltaf gladdist maður við að sjá blikið í augum þínum þegar þú skellihlóst að enn einum dóna- brandaranum. En þú áttir líka þínar erfiðu hliðar og máttir upp- lifa þrautir sem tóku svo sannar- lega sinn toll. Örlögin höguðu því þannig til að á einungis tveggja ára tímabili gekkstu í gegnum þær miklu raunir að missa Birgi bróður þinn í sjóslysi og lenda sjálf í lífsháska þegar Dranga- jökull fórst árið 1960. Það var alltaf jafn átakanlegt að heyra söguna af því hvernig skipið tók skyndilega að halla á bakborða fyrir framan augun á þér og sökk eins og hendi væri veifað á með- an þú barðist við að koma þér og fjögurra ára syni þínum í björg- unarbáta. Þessir atburðir áttu eftir að setja verulegt mark sitt á þína sögu og þarf engan að undra að næsti kafli einkenndist af van- líðan og kvíða sem síðan leiddi til þess að Bakkus knúði dyra með öllum sínum hviðum og hvellum. Þú náðir hins vegar að snúa vörn í sókn með aðdáunarverðum hætti og beina lífi þínu á rétta braut samhliða því sem þú vannst ötullega að hugsjónastarfi á borð við stofnun SÁÁ. Það var líka gefandi að fylgjast með því hvernig þú lést málefni týndra sjómanna þig varða og stóðst í stafni þegar Minningaröldurnar í Fossvogi, sem þú varst svo óend- anlega stolt af, voru reistar þeim til heiðurs. Þú kenndir mér margt og ég er stolt af styrk- leikum þínum, festu og þraut- seigju í gegnum lífsins ólgusjó. Ég er líka þakklát þér fyrir að hafa kennt mér að áföll og erfið- leikar geta orðið leið manns til aukins þroska og víkkað sjón- deildarhringinn þótt fórnar- kostnaðurinn kunni að vera erfiður. Góða ferð elsku amma mín. Þín verður sárt saknað. Halldóra. Við amma áttum sérstakt sam- band. Reyndar tel ég að flest nánari sambönd hennar hafi ver- ið af sérstökum toga og á þann hátt var hún einstök. Systir mín er skírð Halldóra í höfuðið á henni. Í minningunni voru þær sálufélagar en aldrei nokkru sinni leið mér svo að ég bæri skarðan hlut frá borði. Amma Dóra var meðal þeirra vesturfara sem fóru með fyrstu ferjunum á Freeport, sem sigldu fyrir bindindi og í átt að betra lífi. Það var lífsins gæfuspor hennar ömmu. Sem sjómannsfrú í húð og hár hafði hún siglt um höfin sjö en ferðin á Freeport gerir einn af hornsteinum lífs hennar. Lífið var sannarlega gott því þegar Fríportfararnir sneru aftur heim var SÁÁ stofnað og amma mín gerð að ritara samtakanna. Nærri fjórum áratugum síðar átti hún síðan þátt í að innrita sjúkling í síðasta skiptið – þann sem hér skrifar. Ekki var um að villast að báðum var þetta afar mikilvægt og kórónaði sterkt tengsl okkar. Amma Dóra var alls staðar með okkur; dröslaðist með okkur systkinunum til Spánar hvar mamma starfaði sumarlangt, hún heimsótti okkur til Englands og sumarið á bæði Hornafirði og Húsavík; mér skilst að pabbi hafi hitt hana í brúðkaupsferðinni fyrri. Hún sótti Mola á flugvöll- inn sem hafði fundist á Dalvík eftir sumarbúðir norður á Akur- eyri. Hún kveikti nú einu sinni á kerti fyrir köttinn í dómkirkjunni í Toledo. Skömmu seinna steig hún svo upp í flugvél, og eins og í sögu sótti hún köttinn út í Vatns- mýri. Mér er ljóslifandi minnugt þegar ég heimsótti ömmu fjög- urra ára gamall, e.t.v. svo skýrt því atvikið náðist á myndbands- upptöku sem gleymist trauðla, að þegar amma tók á móti mér hoppaði ég í fangið á henni, með slíkum látum að hún hossaðist aftur fyrir sig. Það sem átti að heita rembingskoss frá ömmu- barninu leit frekar út sem stang- andi hreindýr. Amma Dóra hafði Mola í jafn miklum metum og við systkinin. Hún upplýsti okkur um að hann hafi verið mennskur í fyrra lífi. Annað kæmi ekki heim og sam- an. Ég var löngu fermdur en trúði henni samt. Við amma vor- um nefnilega líka sálufélagar, stundum tvíburasálir. Þannig út- skýrði hún tenginguna sem við náðum. Amma lærði nefnilega í Guðspekifélaginu. Ég vissi aldrei nákvæmlega hvað fór þar fram en djúpu samtölin við hana voru ómetanleg. Við töluðum undir rós og jafnvel í rúnum en á sama tíma var það svo auðskiljanlegt og eðli hlutanna samkvæmt. Tví- burasálir. Þrátt fyrir stóru málin og spurningar lífsins, og vel á minnst, tvö sjóslys sem hún amma mín lifði af, minnist ég aðallega hversu léttlynd hún var. Sagan segir, að svo hafi ekki endilega alltaf verið raunin, en í minningu ömmubarnsins er vandfundin félagslegri og glað- værari manneskja. Hún hafði næmt skopskyn og brandararnir flugu í báðar áttir því hún átti jafn auðvelt með að segja brand- ara og fatta þá. Meira að segja lengst af blessunarlega ágæta og stutta alzheimer-skeiðinu, þegar hugurinn dvínaði, áttaði sú gamla sig á góðu gríni. Elsku amma, mér sárnar að kveðja, svo mikið elska ég þig en gleðst hve fljótt þú fékkst að fara, jafn skjótt og máttur dafn- aði og kallaði á hvíld. Aðeins nokkrar vikur eru síðan þú fórst með uppáhaldskvæðin þín, söngst utanbókar og án vand- ræða. Þína síðustu daga voru ljóðin horfin í gleymsku. Haukur Þorsteinsson. Í dag er Halldóra frænka mín jarðsungin frá Fossvogskirkju. Halldóra, eða Dóra frænka, var ekki einungis ein af uppáhalds- frænkum mínum, hún var einnig góð vinkona mín. Dóra og ég vor- um systradætur og var hún tuttugu og sex árum eldri. Dóra fylgdist náið með uppvexti mín- um enda átti hún góð samskipti við móður mína Pálínu Magnús- dóttur og það áttu einnig systkini hennar, Kristbjörg, Þorsteinn og Arnbjörn. Þegar ég var sjálf komin með heimili og börn urðu samskiptin við Dóru tíðari og nánari. Við fórum saman á kaffi- hús, tónleika og leiksýningar. Á erfiðum tímamótum í lífi mínu var það Dóra sem sýndi mér skilning og stuðning. Dóra var einnig í góðum samskiptum við dætur mínar og sýndi áhuga á því sem þær voru að gera í námi, leik og vinnu. Þegar ég fluttist norður vorum við Dóra í reglulegum símasam- skiptum og töluðum við um alla mögulega hluti. Dóra var afar stolt af börnum sínum og barna- börnum og þegar talið barst að velgengni þeirra eða annarra ungmenna í stórfjölskyldunni, sagði hún: „Nú spila amma, mamma og Palla saman á hörpu hjá Guði.“ Dóra frænka hafði góðan húm- or og gátum við oft gantast og hlegið saman. Það kom stundum fyrir að við svöruðum í símann og kynntum okkur sem þekkta manneskju. Eitt sinn svaraði Dóra á þennan hátt: „Góðan dag- inn, Elísabet Englandsdrottning hér.“ Ég svaraði að bragði: „Marilyn Monroe, leikkona og kynbomba.“ Að þessu hlógum við dátt og veltum því fyrir okkur hvernig samtal þessara þekktu persóna hefði orðið. Hugðarefni Dóru voru mörg og má þar helst nefna að hún var virkur meðlimur í Guðspekifélagi Íslands og fórum við saman á nokkra fundi. Þá hafði hún mik- inn áhuga á garðyrkju, ferða- lögum, tónlist og lestri góðra bóka. Skiptumst við oft á bókum um andleg málefni og ævisögum sem voru í uppáhaldi hjá okkur. Ég fluttist búferlum til Eng- lands árið 2014 og var þá minni Dóru farið að hraka og fór hún fljótlega á Dvalarheimilið Ísafold í Garðabæ. Í júlí 2019 heimsótti ég Dóru frænku og þekkti hún mig strax. Dóru leið vel og saman spjölluðum við og hlógum. Þetta var í síðasta sinn sem ég sá frænku mína. Ég er þess fullviss að nú sitja Dóra, amma, Heiða og Palla saman og spila á hörpu hjá Guði. Ég sendi börnum Halldóru, barnabörnum, barnabarnabörn- um og systkinum innilegar samúðarkveðjur. Karítas Skarphéðinsdóttir Neff. Það er svo margt sem hægt er að segja um hana Dóru frænku að það er erfitt að vita hvar á að byrja. Kannski við byrjum bara á uppvaxtarárum okkar í Nökkva- voginum en þar bjuggu þær syst- urnar Bíbí (nr. 56) og Dóra (nr. 31) ásamt fjölskyldum sínum. Samskiptin voru mikil og þó að þær systur væru um sumt ólíkar voru þær nánar og við frænd- systkinin vorum á heimavelli á hvoru heimilinu sem var. Litlu bræður þeirra systra, Biggi, Addi og Steini, áttu líka gott skjól hjá systrum sínum og fjöl- skylduböndin voru sterk. Dóra var stórglæsileg kona, hefði getað verið leikkona í bíó- borginni Hollívúdd, og það var ævintýraljómi yfir henni. Hún hafði dvalið í Englandi um nokk- urt skeið sem ung stúlka og tal- aði góða ensku, verið þerna á Gullfossi og hafði siglt um heims- ins höf með eiginmönnum sínum, Hauki og síðar Tryggva, sem stýrðu millilandaskipum. Vöru- úrvalið var lítið í verslunum borgarinnar á þessum hafta- tímum og allt mjög spennandi sem var öðruvísi. Þegar makk- intosið var komið í hús frá út- löndum gátu jólin gengið í garð í Nökkvavogi 56 og í jóla- pökkunum frá Dóru var oft ein- hver varningur sem augun höfðu ekki áður litið. Auk glæsileikans og ævintýra- ljómans sem var yfir Dóru frænku er það okkur líka minnis- stætt hve glaðlynd og hress hún var. Hún átti það til að hrúga okkur fyrirvaralítið upp í bílinn sinn og bruna með okkur í Salt- vík til að synda í sjónum og þá var sko sungið alla leið. Nú eða bara í sund í Vesturbæjar- lauginni sem var skemmtileg til- breyting frá Laugardalslauginni. Hún var fjörkálfur og hláturinn hennar ómar í minningunni. Halldóra Gunnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.