Morgunblaðið - 01.07.2021, Qupperneq 56
56 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021
Harpa Heimisdóttir
s. 842 0204
Brynja Gunnarsdóttir
s. 821 2045
Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær
s. 842 0204 | www.harpautfor.is
Sálm. 86.5
biblian.is
Þú, Drottinn,
ert góður og fús
til að fyrirgefa,
gæskuríkur öllum
sem ákalla þig.
✝
María Margrét
Einarsdóttir
fæddist á Sæborg
við Hjalteyri 19.
nóvember 1934.
Hún lést 21. júní
2021.
Foreldrar henn-
ar voru Einar Jón-
asson, f. 2.12. 1888,
d. 23.2. 1969 og
Kristín Margrét
Kristjánsdóttir, f.
22.11. 1894, d. 22.6. 1977.
Systkini: Jónas Kristján Ein-
arsson, f. 22.11. 1920, d. 14.4.
2005, Haraldur Axel Einarsson,
f. 8.4.1925, d. 15.7. 2004, Pétur
Einarsson, f. 6.7. 1926, d. 10.3.
1992, Þórhallur Margeir Ein-
arsson, f. 14.2. 1931.
María gekk í hjónaband með
Ólafi Sigurgeirssyni, f. 9.1.
1932, d. 20.2. 2018, þann 26.11.
1955.
Börn:
1) Ása Ólafsdóttir, f. 11.3.
1956. Maki: Lárus Kristinn
Viggósson, f. 8.7. 1957. Börn: a)
Ólafur Lárusson, f. 1975. b)
Þórhallur Margeir Lárusson, f.
1977. Maki: Kol-
brún Jenny Ragn-
arsdóttir, f. 1978.
Börn: Aron Máni, f.
1998. Alexander Ís-
ar, f. 2000. Sóley
María, f. 2019. c)
Lára Kristín Lár-
usdóttir, f. 1983.
Maki: Byron Lee
Nichelson, f. 1984.
2) Atli Þór Ólafs-
son, f. 2.6. 1957.
Maki: Ester Halldórsdóttir, f.
23.9. 1960. Börn: a) María Björk
Atladóttir Benelli, f. 1980.
Maki: Travis Benelil, f. 1977.
Börn: Nadesha Sóley, f. 2001.
Jamayah Ester, f. 2003. Bian-
kah Ísbjörg, f. 2016. Ásdís
Alyah, f. 2017. b) Halldór Axel
Atlason, f. 1983.
3) Kristín Ólafsdóttir, f. 14.7.
1960. Maki: Snorri Eiríksson, f.
7.11. 1958. Börn: a) Einar
Trausti Snorrason, f. 1981. b)
Eyþór Smári Snorrason, f.
1987.
Útför Maríu Margrétar fer
fram frá Lindakirkju í dag, 1.
júlí 2021, klukkan 13.
Ég man þig – elsku mamma
ég man þig alla tíð.
Við þraut svo þunga og ramma
þú þögul háðir stríð.
Sem hetja í kvöl og kvíða
þú krýnd varst sigri þeim
sem á sér veröld víða
og vænni en þennan heim.
En þín ég sífellt sakna
uns svefninn lokar brá.
Og hjá þér vil ég vakna
í veröld Drottins þá.
Því jarðlífs skeiðið skamma
er skjótt á enda hér.
Og alltaf á ég, mamma,
minn einkavin í þér.
Ég veit það verður gaman,
það verður heilög stund,
að sitja aftur saman
sem sátum við í Grund.
Þá gróa sorgarsárin
og söknuðurinn flýr.
Þá þorna tregatárin,
og tindrar dagur nýr.
Þá ljómar Drottins dagur
með dýrð og helgan frið,
svo tær og töfrafagur
um tveggja heima svið.
Þá hverfur raunin ramma
sem risti hold og blóð,
þá geng ég með þér mamma,
um morgunbjarta slóð.
Þá geng ég með þér mamma,
um morgunbjarta slóð.
(Rúnar
Kristjánsson)
Guð geymi þig, hvíl í friði elsku
mamma.
Ása, Atli og
Kristín (Stína).
María Margrét
Einarsdóttir
✝
Steinunn
Helgadóttir
fæddist 29. júlí
1940. Hún lést 18.
júní 2021.
Foreldrar henn-
ar voru Steinunn
Guðmundsdóttir, f.
31. ágúst 1904, d.
26. janúar 1971 og
Helgi Sigurðsson,
f. 5. ágúst 1900, d.
4. ágúst 1974.
Systur Steinunnar voru:
Vigdís, f. 9. mars 1924, Sig-
rún, f. 22. júní 1925, Fríða, f.
17. ágúst 1931, Hlíf, f. 18.
Loga Dungal og eiga þau fjög-
ur börn sem eru: Arnór Logi,
Snædís Anna, og tvíburarnir
Birna Júlía og Salka María.
Pétur er í sambúð með Þór-
hildi Sunnu Jóhannsdóttur.
Þau eiga eina dóttur, sem er
Ástrós Amy. Ingi Steinn er í
sambúð með Sólveigu Sigurð-
ardóttur. Þau eiga eina dóttur,
sem er Móeiður.
Á sínum yngri árum vann
Steinunn í prentsmiðju Guten-
berg í Ingólfsstræti en varð
heimavinnandi húsmóðir eftir
fæðingu Önnu. Steinunn fór
síðan aftur út á vinnumark-
aðinn þegar hún hóf störf sem
móttökuritari í Domus Medica
árið 1985, þar sem hún vann
til ársins 2012.
Jarðarförin fer fram frá
Dómkirkjunni í dag, 1. júlí
2021, klukkan 13.
september 1933 og
Katla, f. 29. ágúst
1943. Þær eru all-
ar látnar nema
Hlíf.
Steinunn giftist
Ingvari Þór Gunn-
björnssyni 14. júní
1959. Þau áttu tvö
börn: Önnu, f. 24.
júlí 1959 og Gunn-
björn Þór, f. 7.
febrúar 1962.
Anna er gift Arnóri Stefáns-
syni. Þau eiga þrjú börn, sem
eru: Steinunn, Pétur, og Ingi
Steinn. Steinunn er gift Hirti
Mínar fyrstu minningar eru
margar hverjar í Sólheimunum
hjá ömmu og afa. Amma passaði
mig þegar ég var lítil á meðan
mamma og pabbi voru í vinnunni.
Mér fannst það æðislegt enda
dekruð í köku og „aðalgullmolinn
hennar“, eins og hún sagði svo oft
sjálf. Við sungum mikið og lásum
bækur og út var farið í öllum veðr-
um. Nóg var af dóti hjá henni en
ég man einna helst eftir deginum
sem hún gaf mér dúkkuhús sem
hún hafði búið til úr skókössum.
Hún saumaði gardínur fyrir
gluggana og föndraði húsgögnin.
Það sem mér þótti vænt um það.
Amma elskaði að verða
langamma. Hún sagði mér einn
daginn að það hefði verið yndis-
legt að verða amma, en að verða
langamma var það allra besta.
Enda sagði hún öllum, hvert sem
við fórum, frá öllum langömmu-
börnunum sínum. Hvað hún væri
ofboðslega rík.
Amma hafði alla tíð einstakt lag
á börnum, enda svo blíð og góð, og
fengu börnin mín, langömmu-
börnin hennar, að njóta þess. Þeg-
ar Arnór Logi og Snædís Anna
voru lítil gat ég oft skutlað þeim til
hennar og þau borðuðu hjá henni
hádegismat og fengu lúr. Henni
fannst gaman að geta hjálpað mér
og það var „aldrei neitt vesen á
þeim“, eins og hún sagði svo oft
sjálf. Enda fannst þeim yndislegt
að vera hjá henni og vildu stund-
um ekki koma með mér aftur
heim. Þegar þau urðu örlítið eldri
tók hún þau með í strætó í miðbæ-
inn þar sem þau settust niður og
fengu sér pizzu og kók.
Þegar þau urðu enn þá eldri
tóku þau sjálf strætó yfir til henn-
ar. Jafnvel án þess að segja mér
frá. Þau mættu bara í langömmu-
dekur en hún átti alltaf til flatkök-
ur í frysti, brauð, djús og kex. Hún
kenndi þeim öll þau spil sem þau
kunna í dag og eyddu þau oftast
deginum í eldhúsinu að spila Þjóf,
Svarta-Pétur og Ólsen. Hún elsk-
aði að dekra þau og stundum fann
ég alveg hvernig hún þurfti að
halda aftur af sér, því hún vildi
hreinlega gefa þeim allan heim-
inn.
Elsku amma. Það sem ég sakna
þín og hreinlega trúi ekki að þú
hafir verið tekin svona snemma
frá okkur. Verst þykir mér að
hugsa til þess að tvíburarnir,
Salka María og Birna Júlía, fái
ekki að kynnast þér. En ég mun
tala þær í kaf með sögum af þér
og sýna þeim myndir þegar þær
eldast. Arnór og Snædís sakna þín
mikið og hef ég hughreyst þau
með að þau hafi eignast sinn eigin
verndarengil. Því ég veit í hjart-
anu að amma á eftir að vaka yfir
okkur öllum.
Ég á eftir að sakna afmælis-
söngs-símtalanna,
kaffihúsa-hvítvínsferðanna okkar
(stundum hálfkláruðu) snapchat-
svaranna og fallegu face-
book-skilaboðanna. Ég sakna
elsku ömmu sem alltaf var stolt af
okkur, sem knúsaði og peppaði
okkur þegar heimurinn virtist
vera að hrynja.
Takk fyrir allt elsku amma,
Steinunn.
Hún kom sem leiftur inn í líf
mitt fyrir 15 árum.
Hún var systir mín.
Umhyggja hennar var mikil í
minn garð. Hún byrjaði að koma í
Dómkirkjuna, bæði í bænastund-
ina og einnig í kaffi eldri borgar-
anna. Þar eignaðist hún marga
vini og naut félagsskaparins.
Nú er röddin þögnuð, en hjól
tímans snýst hratt og sú vissa, að
lífið er aðeins andartak af eilífð-
inni, veitir huggun. Ég þakka
samferðina og vinskapinn.
Far þú í friði, friður Guðs þig
blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.
Svo djúp er þögnin við þína sæng,
að þar heyrast englar tala,
og einn þeirra blakar bleikum væng,
svo brjóst þitt fái svala.
Nú strýkur hann barm þinn blítt og
hljótt,
svo blaktir síðasti loginn.
En svo kemur dagur og sumarnótt,
og svanur á bláan voginn.
(Davíð Stefánsson)
Ásta Kristjánsdóttir.
Steinunn
Helgadóttir
✝
Jónas Blöndal
fæddist 1. sept-
ember 1942 á Siglu-
firði. Hann lést á
heimili sínu þann
19. júní 2021.
Foreldrar hans
voru hjónin Magn-
ús Blöndal, tré-
smíðameistari á
Siglufirði, fæddur
í Stykkishólmi
29.6. 1918, d. 15.9.
2010, og Ingiríður Jónasdóttir
Blöndal, fædd á Eiðsstöðum í
Blöndudal 9.10. 1920, d. 8.3.
2005.
Bræður hans voru Arnþór
Blöndal, f. 22.11. 1947, d. 30.3.
2020, og Sigurður Blöndal, f.
28.1. 1953, d. 1.3. 2019.
Hann kvæntist Sigríði Guð-
ráðsdóttur Blöndal þann 5.1.
1967 og bjuggu þau alla tíð sam-
an í Árbænum í Reykjavík.
Lissý, f. 1996, og Eva Dögg, f.
2001.
Ingiríður Blöndal, f. 13.9.
1975, d. 26.7. 2019. Maki: Hjálm-
ar Diego Haðarson og áttu þau
tvö börn saman: Soffía Erla, f.
2004, og Jónas Bergmann, f.
2006, ásamt Hjálmari Arnar, f.
1995, syni Hjálmars.
Jónas var menntaður við-
skiptafræðingur og sjálfmennt-
aður tölvunarfræðingur, áður
en hafin var kennsla þeirrar
fræðigreinar hér á landi. Starf-
aði um árabil hjá Fiskifélagi Ís-
lands við stjórnun og sá einnig
um innleiðingu og umsjón tölvu-
deildar ásamt forritun. Síðar
kennari hjá Iðnskólanum, útgef-
andi og uppfinningamaður.
Útförin fer fram frá Árbæjar-
kirkju í dag, 1. júlí 2021, klukk-
an 11.
Streymt verður frá jarðarför-
inni á slóðinni:
www.arbaejarkirkja.is/
Virkan hlekk á streymið má
finna á:
https://mbl.is/andlat/
Börn þeirra eru:
Magnús Blöndal, f.
6.4. 1967, börn
hans með fyrrver-
andi sambýlis-
konu, Önnu Maríu
Hilmarsdóttur,
eru þær Lísa
Kristín, f. 1987,
Sigríður Hugljúf,
f. 1992, og Lovísa
Ragna, f. 2001, og
stjúpsynir með nú-
verandi sambýliskonu, Bryn-
dísi Magnadóttur, eru þeir
Breki Léonard og Lucien Loki,
fæddir 2005.
Hjörtur Blöndal, f. 25.10.
1970, börn hans með fyrrver-
andi eiginkonu sinni, Þórey
Garðarsdóttur, eru þau Jóhann
Garðar, f. 1994, og Hulda Ósk, f.
2000, og með núverandi sam-
býliskonu sinni Eyrúnu Þórðar-
dóttur stjúpdæturnar Sara
Í dag verður jarðsunginn
Jónas Blöndal fyrrverandi
tengdafaðir minn. Ég á margar
góðar og fallegar minningar um
hann. Sú fyrsta sem kemur mér
í hug er þegar við fórum oft í
Skammadal en þar settum við á
hverju ári niður kartöflur að
vori og tókum þær upp að
hausti. Þar komu saman Jónas
og bræður hans og fjölskyldur,
það voru yndislegir tímar.
Einnig áttu Jónas og Sirrý
konan hans lóð sem áætlað var
að byggja bústað á. Mikil vinna
var lögð í lóðina, bæði jarð-
vegsvinna og gróðursetning,
þar áttum við margar góðar
gæðastundir. Jónas var mikill
barnakarl og hafði einstaklega
gaman af barnabörnum sínum.
Jónas var ekki alltaf maður
margra orða en í brúðkaupi
okkar Hjartar hélt hann ákaf-
lega fallega og hjartnæma
ræðu sem mér þótti ákaflega
vænt um. Þegar Jónas talaði
hlustaði fólk.
Elsku Sirrý, Hjörtur og
Magnús, mínar dýpstu samúð-
arkveðjur til ykkar. Eftir sitja
fallegar minningar um góðan
mann.
Þín gullnu spor
um ævina alla
hafa markað
langa leið.
Skilið eftir
ótal brosin,
bjartar minningar
sem lýsa munu
um ókomna tíð.
(Hulda Ólafsdóttir)
Hafðu þökk.
Þórey Garðarsdóttir.
Það var eitt af þessum fal-
legu kvöldum við Meðalfells-
vatn. Við sátum þrír ungir
menn og spjölluðum saman á
veröndinni við sumarbústaðinn
Hvol sem Guðráður og Rann-
veig tengdaforeldrar okkar
höfðu byggt í brekkunni við
sunnanvert vatnið. Það hafði
verið veisla og okkur langaði til
að ganga á Meðalfellið. Allir
voru gengnir til náða nema við
þrír. Sigurjón og Garðar (und-
irritaður) töldu sig heimavana
en fyrir þann nýjasta og
yngsta, Jónas Blöndal, var
þetta frumraun. Þessi mynd
kemur upp í huga minn þegar
ég fer að minnast svila míns
Jónasar Blöndal. Hann var
yngstur í röð okkar eig-
inmanna Guðráðsdætra sem
aldar voru upp í Barmahlíð 3,
Sirrý (Sigríður Erla) var yngst
systra sinna og töluvert yngri
en þær. Þau Jónas höfðu
kynnst í Verslunarskólanum,
þar við nám bæði tvö. Það voru
því töluverð tíðindi þegar hún
var komin með kærasta. Nokk-
urn tíma tók það fyrir okkur að
kynnast Jónasi en það tókst og
samband okkar jókst smám
saman. Hann var rólegur og
íhugull maður sem velti lífinu
og hlutunum ávallt töluvert
fyrir sér. Eftir stúdents- og há-
skólapróf hóf hann störf hjá
Fiskifélagi Íslands og vann sig
þar upp. Þau Sirrý höfðu þá
stofnað fjölskyldu og hófu að
eignast börn, settust að í Ár-
bænum þar sem þau hafa búið
alla tíð síðan. Jónas var alla tíð
mikill fjölskyldumaður og
hugsaði vel og hlýlega um
hana, Þau Sirrý eignuðust land
skammt frá Miðdal þar sem
þau áttu margar góðar stundir
við skógrækt og aðra ræktun
sem þau höfðu mikla ánægju
af. Um tíma áttu þau seglskútu
og nýttu hana vel sér til gleði.
Þegar Guðráður tengdafaðir
okkar var sestur í helgan stein
og þurfti oft aðstoðar við, var
Jónas afar iðinn við að liðsinna
honum. Þau Sirrý voru tíðir
gestir á Sunnubrautinni og
þegar Guðráður átti seglskútu
sína voru Jónas og synir hans
duglegir að hjálpa honum við
notkun hennar. Tölvunotkun
var honum afar auðveld sem
hann gat nýtt sér í ýmsum
málum. Jónas var góður maður
sem vildi öllum vel, hann var
ekki allra eins og sagt er og
frekar lokaður. Hann reyndist
fjölskyldu sinni afar vel og
hann studdi hana eftir megni.
Þau Sirrý urðu fyrir þeirri
miklu sorg að missa dóttur
sína fyrir nokkru sem varð
þeim mjög þungt. Hag barna
sinna og barnabarna bar hann
sérstaklega fyrir brjósti og lið-
sinnti þeim eftir bestu getu.
Það hefur verið ánægjulegt að
verða samferðamaður Jónasar
um lengstan hlut lífs míns, og
ég minnist þess með mikilli
gleði er þau Sirrý heimsóttu
okkur Huldu þegar við bjugg-
um í Wisconsin, þeir og margir
aðrir ánægjutímar munu seint
gleymast. Kærar þakkir fyrir
það allt og hafðu góða ferð á
hverjum þeim slóðum sem þú
hefur nú lagt upp á. Ég sendi
elskulegri mágkonu minni,
henni Sirrý og fjölskyldu henn-
ar, samúðar- og alúðarkveðjur.
Garðar Sigurðsson.
Jónas Blöndal
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar