Morgunblaðið - 01.07.2021, Page 63

Morgunblaðið - 01.07.2021, Page 63
ÞÓR Þ. Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Þór frá Þorlákshöfn tryggði sér fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins með sigri á Keflavík í úr- slitum Íslandsmóts karla í körfu- bolta síðastliðinn föstudag. Þórsarar fóru á kostum í úrslitaeinvíginu og unnu deildarmeistarana verð- skuldað, 3:1. „Síðustu dagar eru búnir að vera hrikalega skemmtilegir. Við erum búnir að hittast á hverjum einasta degi. Menn eru enn hátt uppi og í fyrsta skipti í dag eru menn aðeins að ná sér niður á jörðina,“ sagði Lár- us Jónsson, þjálfari Þórs, í samtali við Morgunblaðið. Í sund með verðlaunapeninginn Hann segir leikmenn stolta af af- rekinu, en Þórsurum var spáð tíunda sæti á leiktíðinni og áttu afar fáir von á að gengið yrði eins gott og raun bar vitni. „Það er hrikalega gaman í Þor- lákshöfn núna og það lýsir því best að leikmenn hafa farið í sundlaugina á venjulegum afgreiðslutíma með verðlaunapeninginn um hálsinn. Adomas [Drungilas] bannaði okkur að taka verðlaunapeninginn af næstu fimm daga,“ sagði hann létt- ur. Þrátt fyrir glæsilegt afrek síð- asta föstudag fær Lárus lítið að slaka á, allavega á næstu dögum. Svipaður hópur næsta tímabil „Það er pressa á okkur að fara að verja þennan titil og það er heiður ef það verður litið á okkur þannig að það þurfi að vinna okkur. Maður slakar ekki á núna. Það þarf að ganga frá samningum við leikmenn áður en júní endar, svo maður geti slakað á í júlí,“ sagði Lárus og bætir við að leikmannahópur liðsins verði svipaður á næstu leiktíð. Tveir lykil- leikmenn munu þó væntanlega hverfa á braut. „Styrmir [Snær Þrastarson] er að fara út í háskóla og Callum [Lawson] reynir væntanlega fyrir sér á megin- landinu, en svo kemur í ljós hvort það gangi upp hjá honum, annars kemur hann aftur. Fyrir utan það verður þetta svipaður hópur,“ sagði Lárus Jónsson. Lærisveinn hans Ragnar Örn Bragason lék mikilvægt hlutverk hjá Þórsurum og átti sinn þátt í að liðið vann þann stóra að lokum. Hann segir Þórsarana hafa fundið veik- leika hjá Keflavík og með því náð að sigra deildarmeistarana. Fyrir það hrósaði hann þjálfaranum sínum. „Við þurftum að finna eitthvert leikplan sem eiginlega ekkert annað lið hefur fundið á móti Keflavík. Við fundum leið til að vinna þá og Lalli á hrós skilið fyrir að finna veikleika í þeirra liði. Við vissum að Milka myndi spila mikla vörn undir körf- unni og því ákváðum við að nýta það hversu góðir skotmenn við erum. Það gekk ágætlega upp. Þeir breyttu síðan um varnarafbrigði hjá sér en þá breyttum við okkar sóknarleik. Þetta var svolítið mikil skák,“ sagði Ragnar við Morgun- blaðið. Skilur hrakspárnar Ragnar kveðst skilja vel hvers vegna Þórsurum var ekki spáð góðu gengi fyrir mót en hann hafi snemma fundið að liðið væri mun betra en flestir bjuggust við. „Ég skil vel að okkur var ekki spáð góðu gengi fyrir mótið þar sem við vorum ekki góðir árið á undan. Við létum þessa spá ekkert angra okkur því við vissum hvað við gátum gert. Maður sá það á undirbúnings- tímabilinu hversu ógeðslega gott lið við værum með og með þessa blöndu af útlendingum þá var hún full- komin. Varðandi Íslandsmeistaratit- ilinn þá vorum við ekki að hugsa svo langt fyrr en við unnum Þór Akur- eyri og sérstaklega Stjörnuna. Þá sáum við að við gætum farið alla leið,“ sagði Ragnar. Hann segir íbúa Þorlákshafnar í skýjunum með fyrsta Íslandsmeist- aratitilinn og viðurkennir að hann sjálfur hafi þurft að halda aftur af tárunum í lok fjórða leiksins þegar ljóst var í hvað stefndi. „Það eru allir mjög glaðir og liðið er búið að vera mikið saman að hafa gaman að fagna þessu. Maður fær mikið af skilaboðum og hamingju- óskum frá bæjarbúum. Þetta skiptir máli fyrir alla í bænum. Ég viður- kenni að ég þurfti að halda aftur af tárunum og það var erfitt að spila bæði vörn og sókn í lokin. Með þessa geggjuðu stuðningsmenn í stúkunni, fjölskyldu og bestu vini þá var þetta gargandi snilld,“ sagði Ragnar. Hrokafullir Keflvíkingar Bolur sem Ragnar klæddist í meistarafögnuðinum vakti athygli en á honum stóð: „Þetta var flott hjá ykkur … en nú er þetta búið.“ Hörð- ur Axel Vilhjálmsson, leikmaður Keflavíkur, sagði þau frægu orð við Ragnar í fyrsta leik liðanna. Þórs- arinn ber virðingu fyrir Herði, en segir Keflvíkinga hafa verið hroka- fulla og fengið það í bakið. „Ég spilaði með honum í hálft ár í Keflavík og ég ber alla virðingu sem ég get borið fyrir honum. Ég held samt að þeir hafi verið smá hroka- fullir og þeir fengu það í bakið. Svo var annar leikmaður sem sagði í leik þrjú að þetta væri búið og myndi enda 3:2 fyrir þá,“ sagði Ragnar og átti þar við Domynikas Milka, en Milka skoraði 30 stig í fjórða leikn- um og lét Þórsarann Adomas Drungilas vita af því í leikslok. Ragnar tók eftir því. „Ef ég hefði skorað 30 stig en tapað titlinum hefði ég sagt lítið og bara labbað út,“ sagði Ragnar léttur að lokum. Hélt aftur af tárunum - Gleði í Þorlákshöfn eftir fyrsta Íslandsmeistaratitilinn - Var spáð neðarlega Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þorlákshöfn Ragnar Örn Bragason fagnar eftir að Þór frá Þorlákshöfn tryggði sér fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins með sigri á Keflavík. ÍÞRÓTTIR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021 Það hefur verið afar áhuga- vert að fylgjast með uppgangi Amöndu Andradóttur undan- farna mánuði, en hún hefur svo sannarlega slegið í gegn með meistaraliði Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu síðustu vikur. Þrátt fyrir að vera einungis 17 ára gömul er hún strax farin að láta til sín taka í Noregi eftir komuna frá danska úrvalsdeildarliðinu Nordsjælland í desember á síðasta ári. Amanda var ekki valin í ís- lenska kvennalandsliðið sem mætti Írlandi í vináttulands- leikjum á Laugardalsvelli, dag- ana 11. og 15. júní, og var þess í stað valin í norska U19-ára landsliðið þar sem hún stóð sig vel. Mikið hefur verið rætt og rit- að um aldur leikmannsins að undanförnu, en hafa ber í huga að aldur í kvennafótbolta er ekki alveg sambærilegur við aldur í karlaboltanum. Leikmenn eins og Agla María Albertsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir voru báðar búnar að spila sinn fyrsta A-landsleik þegar að þær voru 17 ára gamlar. Agla María lék sinn fyrsta keppnisleik með A-landsliðinu í lokakeppni EM 2017 í Hollandi 18. júlí 2017 gegn Frakklandi í Tilburg, þá 17 ára og 344 daga gömul. Glódís Perla lék sinn fyrsta keppnisleik gegn Norður- Írlandi í undankeppni EM 2013 á Laugardalsvelli, þá 17 ára og 80 daga gömul. Það er ekki mitt hlutverk að velja leikmenn í íslenska kvennalandsliðið en ef horft er til gæðaleikmannsins þá hlýtur maður að spyrja sig hvort hún eigi ekki heima í íslenska lands- liðinu og því fyrr því betra, því það yrði mikil synd að sjá hana klæðast norsku treyjunni einn daginn. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is „Að vissu leyti lítur maður á sjálfan sig sem íþróttamann,“ sagði Eve- restfarinn Heimir Fannar Hall- grímsson í Dagmálum, frétta- og menningarlífsþætti Morgunblaðs- ins. Félagarnir Heimir Fannar, 40 ára, og Sigurður Bjarni Sveinsson, 34 ára, náðu á topp Everest hinn 24. maí og urðu um leið tíundi og ellefti Íslendingurinn til að klífa fjallið sem er það hæsta í heiminum, alls 8.849 metra, og er staðsett í Himalaya-fjallgarðinum á landa- mærum Kína og Nepal. Þeir tóku ákvörðun um að klífa fjallið í október 2020 og voru mætt- ir út til Nepal fimm mánuðum síðar en þeir æfðu allt upp í tuttugu til fjörutíu klukkustundir á viku, þeg- ar mest lá við, til þess að ná á topp Everest. „Í fjallamennsku er maður fyrst og fremst að keppa við sjálfan sig og eigin markið,“ sagði Heimir. „Þú ert ekki í þessu til þess að komast á einhvern pall eða eitthvað slíkt en æfingarnar og það sem maður þarf að leggja á sig fyrir svona leiðangur er klárlega á pari við íþróttamennsku. Svo er bara spurning hvert fram- haldið verður og hvort maður haldi áfram, en mitt mat er að þetta sé klárlega ákveðin tegund af íþrótta- mennsku,“ sagði Heimir meðal ann- ars í Dagmálum. Á pari við íþróttamennsku Everest Heimir og Sigurður náðu toppi hæsta fjalls heims 24. maí. Spánverjinn Rafael Benítez hefur verið ráð- inn knatt- spyrnustjóri enska úrvals- deildarliðsins Everton. Hann gerir þriggja ára samning við bláa félagið í Liver- pool og tekur við af Carlo Ancelotti sem sagði starfi sínu lausu til að geta tekið tilboði Real Madríd. Benítez verður fimmti stjóri Everton á jafn mörgum árum. Undir stjórn Benítez varð FC Liverpool Evrópumeistari og ensk- ur bikarmeistari á árunum 2004- 2010. Þar sem mikill rígur er á milli félaganna í borginni þá virðast við- brögðin við ráðningunni vera blendin hjá stuðningsmönnum Everton. Spánverjinn er 61 árs gamall og hefur stýrt Inter Mílanó, Chelsea, Napolí, Real Madríd, Newcastle og Dalian en gengið misjafnlega. Áður en Benitez tók við Liverpool hafði hann staðið sig afar vel hjá Val- encia á Spáni. Hann hafði einnig stýrt Valladolid, Osasuna og Extremadura. Gylfi Þór Sigurðsson leikur með Everton og er með samning fram á sumar 2022. Benítez tekur við Everton af Ancelotti Rafael Benitez

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.