Morgunblaðið - 01.07.2021, Page 66
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021
PEUGEOT - 3008 ACTIVE – RN. 331401.
Nýskráður 3/2017, ekinn 84 þ.km., bensín,
dökkgrænn, beinskiptur, fjarlægðarskynjarar,
regnskynjari, litað gler, bluetooth.
Verð 2.690.000 kr.
VW - PASSAT LIMO GTE 1.4 TSI PLUG-IN-HY-
BRID – RN. 340452. Nýskráður 5/2018, ekinn
35 þ.km., bensín, dökkgrár, sjálfskipting, álfelgur,
stöðugleikakerfi, bakkmyndavél, fjarlægðarskynj-
arar. bluetooth. Verð 3.990.000 kr.
OKKUR VANTAR ALLAR
GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is
VW - GOLF GTE PLUG IN HYBRID COMFORT
RN. 331250. Nýskráður 3/2020, ekinn 11 þ.km.,
bensín/rafmagn, hvítur, sjálfskipting, hraðastillir,
360° nálgunarvarar, akreinavari, bluetooth, HDMI.
Aukadekk á álfelgum. Verð 4.890.000 kr.
MERCEDES-BENZ - C 300 DE AMG PLUG IN
HYBRID RN. 153592. Nýskráður 11/2019 (2020),
ekinn 27 þ.km., díesel svartur, sjálfskipting,
Topplúga, hraðastillir, nálægðarskynjarar, bakk-
myndavél. Verð 6.990.000 kr.
AF KÖTLU
Gunnar Ragnarsson
Varúð, spilliefni! Hér verður talað
tæpitungulaust um framvindu Net-
flix-þáttaraðarinnar Kötlu. Það eru
allir að ræða nýjustu smíð Baltasars
Kormáks og Sigurjóns Kjartansson-
ar. Eins og oft vill verða í íslensku
samfélagi er einblínt á eitt viðfangs-
efni, nánast af ofstækisfullri áfergju,
sem nauðsynlegt er að hafa skoðun á.
Andartaki síðar er málið nærri
gleymt þar til það skýtur aftur upp
kollinum í fréttaannál eða áramóta-
skaupi. Það gengur svona. Í tilfelli
Kötlu er það ekki alskrítið enda gerð
og útgáfa þáttanna ótvíræður stór-
viðburður fyrir íslenskan sjónvarps-
og kvikmyndaiðnað.
Í viðtali við Lestina sagði Balt-
asar Netflix-samsteypuna hafa lagt
til fjármagn sem samsvarar tvöföldu
ársframlagi í Kvikmyndasjóð (en ár-
ið 2021 nam það einum og hálfum
milljarði króna) og óhætt að fullyrða
að þættirnir séu dýrasta framleiðsla
leikins efnis á íslensku fyrr og síðar.
Þættirnir eru aðgengilegir áskrif-
endum streymisveitunnar um heim
allan, en þeir munu vera rúmlega tvö
hundruð milljónir. Alþjóðleg dreifing
og fjárhagslegt umfang íslenskra
verðlaunamynda á borð við Börn
náttúrunnar, Nói albinói og Kona fer
í stríð er ekkert í líkingu við þennan
veruleika. Það sem stendur Kötlu
næst eru Hollywood-myndir Baltas-
ars og Latabæjar-seríurnar (allt á
ensku og mis-„íslenskt“) og líklega
þáttaröðin Ófærð, sem kostaði góðan
skilding og hlaut fína dreifingu. Með
Kötlu er íslenskt sjónvarpsverk
komið nær alþjóðlegri megin-
straumsmenningu en nokkru sinni
fyrr, sem mótar vitanlega fagurfræði
og frásagnaraðferðir hennar, en
einnig kröfurnar sem gerðar eru.
Greinagrautur
Þáttaröðin er nokkuð furðu-
legur hrærigrautur kvikmynda- og
sjónvarpsþáttagreina. Undraverðar
erlendar fyrirmyndir eru líklega
Skuggsjá (Black Mirror, 2011-19) og
þýska serían Dimmt (Dark, 2017-20).
Sögusviðið er Vík í Mýrdal í dystó-
pískum samtíma. Kötlugos hefur
staðið yfir í ár og gert nærsveitir að
ólífvænlegum stað, þar sem aðeins
vísindamenn og þrjóskustu íbúa er
enn að finna og lífið er „frumstætt“
(ekkert net- eða farsímasamband).
Þetta eru lendur vísindaskáldskap-
arins, óvanalegt og gleðilegt fyrir ís-
lenska framleiðslu. Hrollvekjan, eða
frænka hennar sálfræðitryllirinn, er
líka uppistaða. Þjóðsögur eru gjarn-
an efniviður í hryllingsgreininni – og
hér er sótt í íslenskan sagnabrunn,
þó frjálslega sé farið með hann (að
alvöru Hollywood-sið). Verur sem
sækja mennina heim úr iðrum eld-
fjallsins eru sagðar vera umskipting-
ar en eiginleikar þeirra eiga ekkert
skylt við þau fyrirbæri úr íslensku og
Geymist þar sem börn ná ekki til
Kvenlíkami „Fyrsti þátturinn hefst á eftirminnilegri sýn – sótaður og stinnur kvenlíkami rís úr myrkinu og gengur að linsunni,“ segir í pistli um Kötlu.
norrænu þjóðsögunum. Þjóðlegur
stimpill gefur efninu eftirsóknar-
verðan blæ til útflutings en innblást-
urinn er líklega fenginn frá öðrum
stöðum. T.a.m. klassíska minnið um
tvífarann, sem Sigmund Freud ritaði
um eða hugmyndin um „tulpa“ úr
tíbetskum búddisma en þær yfirskil-
vitlegu verur eru kallaðar fram með
hugar- eða andans orku einni, sem
mátti sjá í eins konar formi í þriðju
seríu Tvídranga Davids Lynch. Ver-
urnar í Kötlu rísa upp úr annarlegri
kviku en uppspretta þeirra er áföll
fólks sem það spýtir út og holdgerir.
Þessi meginmyndlíking verksins er
fengin að láni frá sígildri vísinda-
skáldsögu Stanisławs Lem, Solaris,
og samnefndu meistaraverki And-
reis Tarkovsky (1972) og umbreytt
lítillega. Þó er rýnir ekki að gefa
Baltasar heiðurinn af þessu tilbrigði
en í viðtali við Lestina sagðist hann
ekki hafa áhuga á „Tarkovsky-
-myndum“ (og átti þar með við
háfleygt listabíó).
Bílastæðaverðir undir jökli
Hefðir hryllingsgreinarinnar
birtast ekki síst í kvikmyndatöku
Árna Filippussonar og Bergsteins
Björgúlfssonar – sem einkennist af
ýktum nærmyndum af leikurunum í
grunnri skerpu (annað verður
óskýrt) – og ætlunin er að færa
áhorfandann inn í hugarheim og
ástand persónanna – og einangra
þær frá umheiminum. Hér er verið
að reyna metnaðarfulla hluti sem eru
oft áferðarfagrir en gallinn er þó að
sjónræna hliðin þjónar ekki alltaf
þörfum frásagnarinnar. Sviðsmynd
er framúrskarandi þáttur, sér í lagi
útitökustaðir þaktir ösku en heim-
kynni persónanna eru fullstíliseruð á
köflum þrátt fyrir að „svínlúkka“
(verkstæði Þórs t.d. – þó er afger-
andi stefnan aðdáunarverð).
Í grunninn er Katla nefnilega
melódrama. Fylgst er með fjölda
persóna og bakgrunni þeirra, áföll og
ástir koma hægt og bítandi í ljós.
Víst of hægt fyrir suma – en skýr-
ingin er að þættirnir eru ekki hasar-
drifnir – og þrátt fyrir að fléttan
verði flókin vindur henni hægt fram.
Megingalli verksins liggur í hand-
ritsgerðinni og leikstjórn sem ein-
faldlega treystir ekki áhorfandanum
til þess að draga sínar eigin álykt-
anir. Það er engin dulúð til staðar. Sú
hneigð sker undan vísindaskáld-
skapnum, sem stendur höllum fæti
hvort sem er, en sérstaklega hryll-
ingnum og ráðgátunni. Samtöl per-
sóna innihalda undanbragðalaust
upplýsingar um sögu og fléttu á silf-
urfati, sem er ekki eðlilegt í sam-
skiptum fólks. Regla frásagnarinnar
virðist vera að segja, sýna og greina
áhorfendum aftur frá til að taka af
allan vafa, en það er merkjanlegur
löstur verka Baltasars (sjá úrlausn
Adrift t.a.m.). Útkoman er sögu-
heimur og persónur sem eru einfald-
lega ekki trúverðugar innan hans –
innri lógík gengur illa upp. Viðbrögð
persóna eru sjaldnast í samræmi við
stórfurðulega atburðarásina, heldur
lúta þær duttlungum höfunda sinna.
Þegar verst lætur freyðir sápan yfir
og mann svíður í augun – flétta Þórs
(Ingvars E.) og Gunhildanna tveggja
minnir óþægilega mikið á fyrri verk
Sigurjóns með Fóstbræðrum, „Bíla-
stæðaverðina“.
Sexí sombí tæm
Vægur meirihluti leikaraliðs er
kvenkyns, sem er góð þróun í verk-
um Baltasars. Karlar eru í brúnni en
konur eiga þó sæti að borði, Þóra
Hilmarsdóttir leikstýrir fjórða þætti
(Baltasar leikstýrir fjórum og Börk-
ur Sigþórsson þremur) og Lilja Sig-
urðardóttir skrifar annan þátt serí-
unnar (og er titluð einn af fimm
„söguhöfundum“ en Davíð Már Stef-
ánsson skrifar fjögur handrit og Sig-
urjón þrjú). Eðli skáldskaparins er
dregið í ljós með lykilmyndlíkingu
seríunnar um „umskiptingana“ sem
bendir á sig sjálfa. Allt sem fyrir
augu ber í Kötlu er á þann hátt „um-
skiptingar“, hugsmíðir höfunda
sinna. Fyrsti þátturinn hefst á eftir-
minnilegri sýn – sótaður og stinnur
kvenlíkami rís úr myrkinu og gengur
að linsunni. Nokkuð víst er að karl-
maður átti þessa hugmynd. Hinir
sombíarnir eru líka kynþokkafullar
kvenverur – fyrir utan Damian litla –
sjónarhornið er nokkuð merkjanlega
karllægt. Þræðir Þórs og Gísla (Þor-
steins Bachmann) eru í raun þeir
sömu – með lítillegum blæbrigðamun
– kynórar miðaldra karlmanns um
eilíft ungt skaut til að hvíla í. Þór er
svo upptekinn við húllumhæið að
hann steingleymir upprisinni dóttur
sinni. Þetta er því miður eitt slakasta
hlutverk Ingvars á ferlinum. Dætur
hans, leiknar af Írisi Tönju Flygen-
ring og Guðrúnu Ýri Eyfjörð, eru
öllu betri og ná góðu sambandi sín á
milli, þrátt fyrir efniviðinn oft á tíð-
um. Þunglamaleg sorgin undir-
strikar að jafnvel þótt umgjörðin sé
önnur er kjarni verksins ansi nálægt
því sem við þekkjum – hefðum og
þemum íslenskrar kvikmyndasögu
um sjávarþorp og óuppgerðan
fjölskylduharm. Já, svolítið eins og
Hafið.
Djöflabarnið rís
Langsamlega sterkasta fléttan
snýr að Darra jarðvísindamanni
(Björn Thors), Rakel eiginkonu hans
(Birgitta Birgisdóttir) og djöflabarn-
inu þeirra (Hlynur Harðarson).
Björn Thors ber af í leikarahópnum,
að öllum öðrum ólöstuðum. Hans
persóna og hegðun er ávallt trúverð-
ug í aðstæðunum og hann dregur
áhorfandann inn. Á lokasprettinum
fellur það í hans hlut að útskýra ótal
vísindalega botnlanga og söguupp-
lýsingar fyrir áhorfendum en jafnvel
það skemmir ekki fyrir. Leikur hins
tíu ára gamla Hlyns Harðarsonar er
lítt síðri og hans persóna líklega það
sem mun lifa í minningunni. Birgitta
Birgisdóttir er einnig virkilega góð
og samleikur hennar og Björns og
þeirra þriggja smellur. Flétta þeirra
er mest spennandi hlutinn og býður
upp á hasar og hreyfingu. Þessi hluti
seríunnar væri frábær grunnur í
markvissari og styttri frásögn, þar
sem dulúð og meitlað kjarnafjöl-
skyldudrama fengi að krauma undir
vísindaskáldskapnum.
»
Allt sem fyrir auga
ber í Kötlu er á þann
hátt „umskiptingar“, hug-
smíðir höfunda sinna.