Morgunblaðið - 01.07.2021, Síða 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021
BÍLABÚÐ BENNA
KOLEFNISJAFNAR OPEL benni.is
Bílasala Suðurnesja
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Ib bílar
Selfoss
Fossnes A
Sími: 480 8080
Bílabúð Benna
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2020
SPENNAN LOSNAR
NÝ MOKKA–E – 100% RAFBÍLL
MOKKA-E EDITION
Verð: 4.590.000 kr.
B
irt
m
e
ð
fy
rirv
ara
u
m
m
y
n
d
-
o
g
te
x
tab
re
n
g
l.
Starfsstyrkjum Hagþenkis til rit-
starfa hefur verið úthlutað og var
tilkynnt um úthlutanir í Borgar-
bókasafninu í Grófinni í gær. Að
þessu sinni hlutu 28 verkefni styrk
og að þeim standa 30 höfundar.
Heildarupphæð styrkja nemur 18
milljónum króna og bárust um 50
umsóknir. Í úthlutunarráði voru
Auður Pálsdóttir, Eggert Lárus-
son og Hilma Gunnarsdóttir.
Boðaföll, safngripir og list
á meðal styrkþeganna
Fjögur verkefni hlutu hæsta
styrkinn, 900 þúsund. Agla Hjörv-
arsdóttir, Sigurborg Sveinsdóttir
og Svala Arnardóttir hlutu þá upp-
hæð fyrir Boðaföll: nýjar nálganir
í sjálfsvígsforvörnum, Guðrún
Sveinbjarnardóttir fyrir Íslenska
gripi á breskum söfnum, Sigríður
Kristín Þorgrímsdóttir fyrir Pipr-
uð og Sigríður Víðis Jónsdóttir
fyrir Þræðir. Frá Afganistan til
Bosníu til Búrkína Fasó.
Næsthæstu styrkupphæðina,
800 þúsund, hlutu Axel Kristins-
son fyrir Yfirstétt í vanda, Mar-
grét Tryggvadóttir fyrir Íslensk
list sem öll ættu að þekkja og
Gunnþóra Ólafsdóttir fyrir Þegar
náttúran er áfangastaður. Fimm
hlutu 700 þúsund króna styrk.
Davíð Kristinsson fyrir Nietzsche
frá a til ö – pólitískt stafrófskver,
Halldór Guðmundsson fyrir Á
verkstæði bókmenntanna: Íslensk-
ar bókmenntir og bókmenntavett-
vangur á síðasta fjórðungi 20. ald-
ar, Hjörleifur Hjartarson fyrir
Álfa, Jón Hjaltason fyrir Markús.
Íslandssaga alþýðumanns og Þórð-
ur Sævar Jónsson fyrir Endur-
minningar Guðjóns R. Sigurðs-
sonar.
600 þúsund króna styrki hlutu
Anna Jóhannsdóttir fyrir Land-
skilning. Náttúrusýn í íslenskri
myndlist, Anna Dröfn Ágústs-
dóttir og Ólafur K. Magnússon
ljósmyndari fyrir Aldarspegil,
Auður Ingvarsdóttir fyrir For-
mannavísur yfir Reykjavíkurbæ
1890, Erla Dóris Halldórsdóttir
fyrir Mislinga á Íslandi, Guja
Dögg Hauksdóttir fyrir Skáldaða
staði, Kristín Bragadóttir fyrir
Hólavallarskóla 1786-1804 (vinnu-
heiti), Sigrún Alba Sigurðardóttir
fyrir Snjóflygsur á næturhimni /
Snowflakes and other surprises,
Unnur Óttarsdóttir fyrir Minn-
isteikningu í ljósi listmeðferðar: til
að efla minni og vinna úr tilfinn-
ingum og Ævar Petersen fyrir
Flatey á Breiðafirði: Örnefna- og
staðarlýsing.
Upplýsingar um aðra styrkþega
má finna á hagthenkir.is.
Morgunblaðið/Eggert
Gleði Styrkþegar voru að vonum ánægðir í Borgarbókasafninu í Grófinni.
18 milljónum
króna úthlutað
- Starfsstyrkir Hagþenkis 2021
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tónlistarhátíðin Sumartónleikar í
Skálholti hefst í dag og stendur yfir
til 11. júlí. Þema tónleikanna að
þessu sinni er „Kynslóðir“ og verður
boðið upp á fjölbreytta dagskrá og
þá bæði hvað varðar flytjendur og
tónskáld. Staðartónskáld eru Hauk-
ur Tómasson og Eygló Höskulds-
dóttir Viborg og nær hefðin fyrir
staðartón-
skáldum aftur til
ársins 1986. Var
það Helga Ing-
ólfsdóttir sem átti
frumkvæðið að
henni og á hverju
ári hafa ný verk
eftir tónskáldin
verið frumflutt á
hátíðinni og mörg
þeirra skipað
mikilvægan sess í
íslensku tónlistarlífi sem og víðar,
eins og segir á vef hátíðarinnar.
Á opnunartónleikunum, sem fram
fara í kvöld kl. 20, kemur fram
kammerhópurinn Cauda Collective
og flytur tvo strengjakvartetta eftir
staðartónskáldin fyrrnefndu. Mun
Cauda Collective flétta dagskrána
saman með nýjum útsetningum sín-
um á Þorlákstíðum og því mætir ný
tónlist aldagamalli í nýrri túlkun.
Nýrri kynslóð boðið
Listrænir stjórnendur hátíð-
arinnar þær Ásbjörg Jónsdóttir og
Birgit Djupeda og segir Ásbjörg að
þær vinni jafnt að hinni listrænu
stjórn. Báðar eru tónskáld og
kynntust í meistaranámi í tónsmíð-
um.
Ásbjörg er spurð að því hvernig
þemað, kynslóðir, hafi orðið fyrir
valinu. „Þetta er elsta tónlistarhátíð
landsins og margar kynslóðir sem
hafa komið að Sumartónleikum og
mótað þá og svo er okkar verkefni
núna að reyna að endurnýja áheyr-
endahópinn af því hann er orðinn
svolítið gamall. Það þarf að búa til
nýjan áheyrendahóp, bjóða nýrri
kynslóð að koma og vera með okkur
þannig að hátíðin haldi áfram og líka
auðvitað að halda gamla áheyrenda-
hópnum sem er farinn að eldast,“
segir Ásbjörg.
„Hérna eru kynslóðir að mætast
og svo höfum við ákveðið að vera
með tvö staðartónskáld og fannst
gaman að láta þemað endurspeglast
í því líka. Allir tónleikarnir eru líka
með tengsl við þemað, annað hvort
tvær kynslóðir af flytjendum eða
tvær kynslóðir af tónskáldum.“
Passa vel saman
–Þessi tvö staðartónskáld, hvern-
ig urðu þau fyrir valinu?
„Við erum með lista yfir þau sem
hafa verið staðartónskáld og Hauk-
ur hafði aldrei verið og það var held-
ur betur kominn tími fyrir Hauk.
Svo vorum við að reyna að finna ein-
hvern af nýju kynslóðinni og fannst
Eygló passa vel með honum,“ svarar
Ásbjörg. Tónskáldin vinna sitt í
hvoru lagi og hittast svo í Skálholti
og kynnast. Ásbjörg segir boðið
verði upp á tónskáldaspjall með
Hauki og Eygló á hátíðinni.
Ásbjörg segir venju samkvæmt
alltaf boðið upp á barokktónleika á
hátíðinni og því alltaf tengsl við bar-
okkið. Í gegnum tíðina hafi alls kon-
ar verk verið flutt og þær Birgit
reynt að endurskilgreina hvernig
hátíðin eigi að vera. Frumsamin tón-
list sé alltaf að boðstólnum í bland
við tónlist fyrri alda og þar á meðal
barokk. „Okkur fannst viðeigandi að
það væri líka þjóðlaga- eða kirkju-
tengd tónlist, ekki bara barokk,“ út-
skýrir Ásbjörg.
Einnig er boðið upp á tónleika
fyrir alla fjölskylduna þannig að
ungir sem aldnir geti notið þeirra.
Eru það styttri tónleikar og sér-
sniðnir að börnum. Frítt er inn á
alla tónleika hátíðarinnar og má
finna dagskrána og upplýsingar um
flytjendur og hátíðina á vef hennar,
sumartonleikar.is
Opnunartónleikar Cauda Collective við Skálholtskirkju.
Kynslóðir mætast
- Sumartónleikar í Skálholti hefjast í dag - Haukur Tómas-
son og Eygló Höskuldsdóttir Viborg eru staðartónskáld
Ásbjörg
Jónsdóttir