Þjóðmál - 01.06.2019, Blaðsíða 9

Þjóðmál - 01.06.2019, Blaðsíða 9
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 7 Til að binda enda á málþófið, knýja fram afgreiðslu brýnna mála og ná samstöðu um hlé á fundum þingsins lagði Katrín Jakobs dóttir forsætisráðherra til að það kæmi saman að nýju 28. ágúst og stæði til 2. september 2019. Í samkomulagi sem formenn Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Miðflokk- sins undirrituðu 18. júní 2019 segir að á ofan- greindum dögum verði þriðji orku pakkinn tekinn til lokaumræðu og atkvæðagreiðslu. Umræður eiga að fara fram miðvikudag og fimmtudag 28. og 29. ágúst en atkvæða- greiðslur mánudaginn 2. september. Einnig var samið um að utanríkismálanefnd alþingis kæmi saman til tveggja eða þriggja funda dagana 13. til 23. ágúst. Þar yrði farið yfir athugasemdir sem kynnu að hafa borist auk þess sem nefndarmönnum gæfist kostur á að senda frá sér framhaldsnefndarálit ef þeir kysu. Óvenjulegt er að gert sé skriflegt samkomu- lag í þessa veru. Fyrir þeim sem það gerðu hefur vafalaust vakað að koma til móts við þá í hópi þingmanna sem töldu óvarlegt að fresta fundum alþingis. Því réð meðal annars vantraust í garð miðflokksmanna, ótti um að þeir stæðu ekki við orð sín. Að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, skrifaði undir þennan texta þótti tryggja að við hann yrði staðið. II. Umræðurnar um þriðja orkupakkann snerust í vaxandi mæli um gagnrýni á forystumenn Sjálfstæðisflokksins. Ef til vill var þetta frá upphafi tilgangur einhverra. Þeir vildu nota þessa meinlausu viðbót við íslenska orku- löggjöf til að koma höggi á þá sem leiða Sjálfstæðisflokkinn. Það leikbragð heppnaðist. Spámenn í hópi stjórnmálaskýrenda hafa nú gerst sporgöngumenn þeirra. Jakob Bjarnar, blaðamaður vefsíðunnar visir. is, birti föstudaginn 12. júlí fréttaskýringu á vefsíðunni undir fyrirsögninni: Ögurstund í sögu Sjálfstæðisflokksins að renna upp. Kenning blaðamannsins er sú að innan Sjálfstæðisflokksins hafi verið háværar kröfur um að efnt yrði til flokksráðsfundar fyrir afgreiðslu þriðja orkupakkans 2. september til að taka flokksforystuna á beinið og jafnvel skipta um hana. Ótti forystumannanna við slíkan fund eða kröfur um hann hafi verið svo miklar að með hraði hafi verið boðað til flokksráðsfundar 14. september 2019 og þar yrði því fagnað að 25. maí 2019 voru 90 ár liðin frá því að Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður. Jakob Bjarnar lætur eins og í því felist sérstök klókindi flokksforystunnar að boða þennan flokksráðsfund í skyndi á þessum tíma. Þessi skýring hans stenst ekki. Sérstök afmælisnefnd starfaði á vegum flokksins og í tilkynningu frá henni í vor sagði að 7. september væri fyrirhugað að sjálfstæðismenn af landinu öllu fögnuðu 90 ára afmæli flokksins saman með málþingi, formannafundi, flokksráðsfundi og kvöldskemmtun. Að þessum viðburði sé frestað um viku markar engin pólitísk þáttaskil og er ekki neinn „krókur á móti bragði“ af hálfu flokks- forystunnar eins og Jakob Bjarnar segir. Dýpt rannsókna blaðamannsins birtist í þessum orðum: „Gremjan [innan Sjálfstæðisflokksins] beinist þannig fyrst og fremst að Bjarna og með því að færa áðurnefndan flokksráðs- fund aftur fyrir þingumræðuna, og svo með samþykkt orkupakkans sem að er stefnt, þá leggur hann allt undir. Þrýstingur á hann hefur aukist jafnt og þétt og þetta með að tímasetja flokkráðsfund eftir umræðuna á þingi, blanda honum saman við kvöld- skemmtun og afmælisfögnuð, er ekki til þess fallið að gera hann óumdeildari.“ Að setja þetta upp á þennan hátt og kalla ögurstund innan Sjálfstæðisflokksins er ekki fréttaskýring heldur dæmi um hve orku- pakkinn kallar fram öfgafullan málflutning.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.