Þjóðmál - 01.06.2019, Page 11

Þjóðmál - 01.06.2019, Page 11
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 9 Þá sagði hann: „[H]ér [er] um að ræða í efnisatriðum mjög stórt mál sem á yfirborðinu, hugsanlega, varðar ekki með beinum hætti íslenska raforkumarkaðinn vegna þess að boðvald viðkomandi sameiginlegrar stofnunar [ACER] virkjast ekki fyrr en íslenski markaðurinn tengist þeim evrópska.“ Þarna sló Bjarni strax varnagla vegna sæstrengsins. Athuganir lögfræðinga og álit hafa síðan áréttað þennan grundvallarþátt. Það verði ekkert framsal án sæstrengs og þrátt fyrir strenginn telja sumir ekki um neitt framsal að ræða. Komi ósk um streng vill þingflokkur sjálfstæðismanna að alþingi samþykki heimild til að svara henni og innan þingflokksins fjölgar röddum um að þjóðin greiði atkvæði um hvort heimila beri rafstreng í hafinu milli Íslands og annarra landa. Þorsteinn Víglundsson spurði enn: „Styður Sjálfstæðisflokkurinn áframhaldandi gildi EES-samningsins hér á landi? Styður Sjálfstæðisflokkurinn ríkisstjórn sem hann á sæti í sem leggur einmitt mikla áherslu á vandaða framkvæmd EES-samningsins?“ Bjarni Benediktsson svaraði: „Auðvitað styðjum við EES-samninginn, aðild okkar að honum og betri framkvæmd hans. [...] Það sem ég á svo erfitt með að skilja er áhugi hv. þingmanns og sumra hér á þinginu á að komast undir boðvald samevrópskra stofnana. Hvað í ósköpunum liggur mönnum á að komast undir sameiginlega raforkustofnun Evrópu á okkar einangraða landi með okkar eigið raforkukerfi? Hvers vegna í ósköpunum hafa menn áhuga á því að komast undir boðvald þessara stofnana? (ÞorstV: Við erum þegar undir því.) Ja, vegna þess að við erum þegar undir því? Eru það rök, hæstv. forseti? Eru það rök að þar sem Evrópusambandinu hefur þegar tekist að koma Íslandi undir einhverja samevrópska stofnun sé ástæða til að ganga lengra?“ Frammíkall Þorsteins Víglundssonar er rangt. Ísland sætir engu boðvaldi frá ACER og gerði raunar ekki heldur yrði lagður sæstrengur, sem er enn ólíklegra nú en fyrir áratug eða tveimur. Þorsteinn hafði engin rök fyrir máli sínu, hann gekk erinda flokks síns, Viðreisnar, sem vill Ísland undir ACER með aðild að ESB. Þetta svar Bjarna Benediktssonar hafa andstæðingar þriðja orkupakkans afflutt. Þeir láta þess jafnan ógetið að hann á þarna orðastað við Þorstein Víglundsson, þingmann Viðreisnar, sem vill fara inn í ESB og undir boðvald stofnana sambandsins. Bjarni spyr hann ítrekað: Hvers vegna í ósköpunum? Svarið sem Þorsteinn gefur er rangt en endurspeglar óskhyggju hans. Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.