Þjóðmál - 01.06.2019, Side 15

Þjóðmál - 01.06.2019, Side 15
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 13 Viðspyrnan frá síðustu efnahagslægð Á síðasta ári hóf Hagstofan birtingu talna um framleiðni vinnuafls eftir atvinnugreinum. Talnaröðin nær þó aðeins til áranna 2008-2017, en fyrirhugað er að birta tölur um lengra tímabil á næstu misserum. Þó að erfitt sé að draga marktækar ályktanir af svo stuttu tímabili, auk þess sem það hefst í djúpri efnahagslægð, er margt sem vekur athygli. Áhugavert er að skoða hvar viðspyrnan hefur verið mest í formi aukinnar framleiðni, eins og sést á súluritinu hér fyrir ofan. Fyrst er að nefna að framleiðniaukning í öllu hagkerfinu á þessu tímabili var 1,3% á ári að jafnaði, sem er í takti við áætlað langtíma meðaltal hennar á Íslandi, sem er að framleiðni vinnuafls hafi aukist um 1,5% að meðaltali á ári undanfarna áratugi. Aukningin var langmest í atvinnugreininni upplýsingum og fjarskiptum, 5,1% á ári að jafnaði, en þar á eftir komu atvinnugreinar sem búa við mesta samkeppni, annaðhvort á alþjóðamarkaði eða keppa við innflutta vöru og þjónustu, en aukningin í þeim var 2,7-3,9% á ári að jafnaði. Engum vafa er undirorpið að mikil og ör framþróun í upplýsingatækni og fjarskiptum hefur stuðlað að mikilli framleiðniaukningu í öllum greinum atvinnulífsins. Fiskveiðar, fiskeldi og landbúnaður eru flokkaðar saman, en þar vegur landbúnaður um fimmtung. Athygli vekur hversu lítil fram- leiðniaukning var í þessum flokki, eða einungis 0,6% á ári að jafnaði. Það er bagalegt að útgerð og fiskvinnsla flokkist ekki saman í sjávarútveg í framleiðnigögnum Hagstofunnar. Fiskvinnsla flokkast sem iðnaður, en talsverð fjárfesting var í greininni á þessu tímabili sem fækkaði störfum með aukinni sjálfvirkni og leiddi til aukinnar Árlegur vöxtur framleiðni vinnuafls 2008-2017 eftir atvinnugreinum Hlutfallsleg breyting Heimild: Hagstofa Íslands 1,6% 0,5% 1,1% 1,9% 1,5% -4,4% 5,1% 3,9% 3,2% 3,4% 3,4% 2,7% 0,6% Upplýsingar og fjarskipti Gististaðir og veitingarekstur Sérfræðileg starfsemi Önnur starfsemi Opinber stjórnsýsla, menntun, heilbrigðismál Ýmis sérhæfð þjónusta Leigustarfsemi o.fl. Fjármál og tryggingar Flutningar Heild- og smásöluverslun Byggingarsarfsemi Iðnaður Fiskveiðar, fiskeldi, landbúnaður Hagkerfið í heild: 1,3%

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.