Þjóðmál - 01.06.2019, Side 16

Þjóðmál - 01.06.2019, Side 16
14 ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 framleiðni vinnuafls. Þá kemur ekki á óvart ör framleiðniþróun í atvinnugreininni upplýsingar og fjarskipti á þessu tímabili vegna stöðugra og mikilla framfara í upplýsinga- tækni, né heldur framleiðniminnkun í fjármálakerfinu, því í upphafi tímabilsins var stærð bankanna í hámarki og þeir skruppu síðan saman í bankahruninu haustið 2008. Þróunin síðustu tvo áratugi áætluð Gagnlegt væri fyrir upplýsta umræðu um kjara- og velferðarmál að framleiðnitölur næðu yfir lengra tímabil. Þó má gera grófa áætlun um framleiðniþróun eftir atvinnu- greinum á árabilinu 1997-2007 á grundvelli talna Hagstofunnar um vinnsluvirði skv. framleiðslu uppgjöri og áætluðum fjölda vinnustunda samkvæmt vinnumarkaðs- rannsókn stofunnar. Niðurstaða þeirrar áætlunar sést á súluritinu hér að ofan, en þar kemur fram árleg framleiðni aukning fimm atvinnugreina og hagkerfisins í heild. Framleiðniaukning vinnuafls í efnahagslífinu öllu, þ.m.t. hinu opinbera, var 2,8% á tímabilinu 1997-2017 samkvæmt þessum útreikningum og var þannig mun meiri á fyrri hluta tímabilsins en því síðara. Framleiðniaukningin var mest í sjávarútvegi, 3,3% árlega að jafnaði, sem skýrist fyrst og fremst af mjög mikilli fækkun vinnustunda, bæði í fiskvinnslu og útgerð. Framleiðni- aukningin var einnig mikil í iðnaði, 3,0% árlega að jafnaði, sem skýrist að hluta af álveri Fjarðaáls sem hóf rekstur árið 2007. Framleiðniaukningin var álíka mikil í öðrum samkeppnisgreinum atvinnulífsins og hagkerfisins í heild, eða á bilinu 2,0-2,6%. Árlegur vöxtur framleiðni í 5 atvinnugreinum og hagkerfinu alls 1997-2017 Hlutfallsleg breyting Heimildir: Hagstofa Íslands fyrir 2008-2017, áætlun höfundar fyrir 1997-2007 2,6% 2,2% 2,0% 3,0% 3,3% 2,8% Heild- og smásöluverslun Iðnaður Byggingarstarfsemi Flutningar Hagkerfið alls Sjávarútvegur

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.