Þjóðmál - 01.06.2019, Side 18
16 ÞJÓÐMÁL Sumar 2019
Skuggahlið batnandi lífskjara á Íslandi á
þessu tímabili var meiri verðbólga, hærri
vextir og meiri sveiflur í efnahagslífi en í
samanburðarlöndunum. Samanburður við
Norðurlandaríkin þrjú sýnir að launahækkanir
á Íslandi voru að jafnaði tvöfalt til þrefalt
meiri, verðbólga tvöfalt til fjórfalt meiri og
stýrivextir einnig tvöfalt til fjórfalt hærri.
Mikil verðbólga leikur þá verst sem við lökust
kjör búa og bera þunga framfærslubyrði. Háir
vextir leggjast hlutfallslega þyngst á ungt
fólk sem er að koma sér upp húsnæði og
leigjendur, en gera má ráð fyrir að í báðum
hópunum sé hátt hlutfall lágtekjufólks.
Enginn vafi leikur á því að velferð landsmanna
hefði aukist enn meira ef kaupmáttaraukning
launa hefði átt sér stað við lægri verðbólgu
og vexti.
Í Noregi var til að mynda næstum jafn mikil
kaupmáttaraukning og á Íslandi á þessu
tímabili en verðbólgan var rúmlega helmingi
minni. Svíar náðu sínum ágæta árangri með
tæplega 3% launahækkunum og 1% verð-
bólgu árlega að jafnaði.
Íslendingar mættu gjarnan læra af eigin
reynslu og nágrannaþjóðanna. Haft er eftir
Otto von Bismarck að kjánar segist læra af
eigin reynslu en hann kjósi að læra af reynslu
annarra. Lærdómurinn er einfaldlega sá að
stilla launahækkunum í hóf svo þær séu í
samræmi við verðmætasköpun á hverjum
tíma og leggja áherslu á efnahagsstjórn sem
jafnar efnahagssveiflur eins og kostur er.
7,1%
4,6%
2,4%
7,8%
4,2%
2,1% 2,1%
3,2%
2,8%
1,1%
1,7%
2,1%
2,9%
1,8%
1,1%
2,0%
Stýrivextir seðlabankaAukning kaupmáttarHækkun verðlagsHækkun launa
Norðurlöndin: Árleg breyting launa, verðlags, kaupmáttar launa og
meðalstýrivextir seðlabanka 1997-2017
Heimildir: Hagstofur Norðurlandaríkjanna, Macrobond. Hækkanir launa byggja á launavísitölu Hagstofunnar og breytingum meðallauna á
almennum vinnumarkaði í hinum löndunum.
Ísland Noregur Svíþjóð Danmörk
6