Þjóðmál - 01.06.2019, Side 21

Þjóðmál - 01.06.2019, Side 21
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 19 Hörður lét snemma að sér kveða og sýndi fljótt hæfileika til forystu. Hann var starfs maður Stúdentaráðs Háskóla Íslands 1959-1961 og formaður þess 1960-1962. Á árunum 1965- 1966 var Hörður fulltrúi framkvæmdastjóra hjá Almenna bókafélaginu. Að MBA-náminu loknu 1968 var Hörður ráðinn til fjárlaga- og hagsýslustofnunar í fjármálaráðuneytinu og starfaði þar til 1974. Þá réðst Hörður til Flug- leiða sem framkvæmdastjóri fjármála sviðs, en hann hafði setið sem fulltrúi fjármála- ráðuneytisins í nefnd um sameiningu Flugfélags Íslands og Loftleiða 1972-1973. Árið 1979 var Hörður ráðinn forstjóri Eimskipa félags Íslands og gegndi hann því starfi til ársins 2000. Hörður sat í stjórn Flugleiða 1984-2004 og var þar stjórnar- formaður 1991-2004. Auk ofangreindra starfa tók Hörður virkan þátt í ýmsum félagsmálum, bæði innan atvinnulífs og menningarlífs. Hann lét sér mjög annt um málefni Háskóla Íslands, sat í háskólaráði og í stjórn Landsbókasafns- Háskólabókasafns. Hörður var sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við viðskiptafræði- deild Háskóla Íslands í nóvember 2008. Hann var víðförull heimsborgari og hafði brennandi áhuga á tónlist af ýmsu tagi, einkum óperum, og var afar vel að sér á því sviði. Hann og Áslaug Ottesen, eiginkona hans, nutu þess að fylgjast með flutningi á óperum víða um heim með þekktustu stjörnum í þeirri listgrein. Af framansögðu er ljóst að Hörður kom víða við og hafði áhuga á margvíslegum málum og var duglegur við að styðja við þau mál sem fönguðu áhuga hans. Hans verður þó helst minnst sem leiðtoga í atvinnulífi, manns sem breytti því hvernig tekist var á við nýjar áskoranir. Hörður Sigurgestsson var formfastur maður. Öll vinnubrögð voru mjög eindregin og flest allt sem unnið var, var skráð niður á minnis- blöð sem voru vistuð á mjög ákveðinn hátt. Þannig var hægt að rekja ákvarðanir og meta hvaða rök voru færð fyrir því sem ákveðið var. Eimskipafélag Íslands Þegar Hörður kom að Eimskipafélagi Íslands stóð félagið á tímamótum. Frá stofnárinu 1914 höfðu aðeins þrír menn verið forstjórar félagsins; þeir Emil Nielsen, Guðmundur Vilhjálmsson og Óttarr Möller. Félagið var skipafélag sem rak fjölda skipa, aðallega til og frá Evrópu, en einnig til Bandaríkjanna. Skipulag félagsins var til þess að gera einfalt. Margir starfsmenn áttu að baki langan starfs- aldur hjá félaginu og fáir háskólamenntaðir starfsmenn voru í þeim hópi. Skiparekstrar- deildin var skipuð verkfræðingum og tækni- mönnum en aðeins einn viðskiptafræðingur var starfandi hjá félaginu. Það var mikil gerjun í flutningamálum á heimsvísu á þessum tíma. Gámavæðingin var á hraðri leið, ekjuskip voru á styttri leiðum í Evrópu og flutningsmiðlun farin að skipta verulegu máli. Breytingin fólst helst í því í að stað þess að taka við vöru á hafnarbakka og flytja milli landa var vörðuð leið að uppruna vörunnar til endanlegs viðskiptavinar, hvort heldur var um útflutning eða innflutning að ræða. Þessi staða útheimti mikla hugsun og vanda- sama ákvarðanatöku um bestu leiðir fyrir Eimskip. Hér staldraði Hörður við og einbeitti sér að því að ákveða hvernig hann vildi bregðast við þessari stöðu. Hörður réð norska ráðgjafa til að fara yfir þessi mál með sér; bæði til að meta skipu- lagið og hvernig bregðast ætti við þeim tæknibreytingum sem þurfti að innleiða. Hann byrjaði á því að ráða til sín unga menn sem hann hafði kynnst áður; Þórð Magnússon sem hann þekkti frá störfum hans í Fríhöfn- inni, Þórð Sverrisson sem hann þekkti úr Stjórnunarfélagi Íslands og Þorkel Sigurlaugs- son sem var eini viðskiptafræðingurinn innan Eimskip. Hann nýtti einnig þá þekkingu sem fyrir var í félaginu og fékk Valtý Hákonarson til starfa í framkvæmdastjórninni.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.