Þjóðmál - 01.06.2019, Page 34
32 ÞJÓÐMÁL Sumar 2019
Pólitískur stöðugleiki
En víkjum þá að ríkisstjórnarsamstarfinu,
samstarfi Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks. Hugmyndafræðilegur
ágreiningur VG og Sjálfstæðisflokks er öllum
kunnur og jafnvel þó svo að traust ríki á milli
leiðtoga flokkanna er ekki þar með sagt að
jafn mikið traust ríki á milli þingflokkanna.
Um það hefur verið fjallað en minna fer fyrir
mögulegum ágreiningi Framsóknarflokksins
við hina stjórnarflokkana.
Aðspurð segir Lilja að ríkisstjórnarsamstarfið
gangi vel. Hún hafi sjálf verið þeirrar skoðunar
að mynda ætti þessa ríkisstjórn strax eftir
kosningarnar 2016.
„Það þarf að vera hér pólitískur stöðugleiki
og myndun þessarar ríkisstjórnar var liður í
því. Ríkjum sem búa við pólitískan stöðug-
leika vegnar almennt betur, þar ríkir traust
og ef það er fyrir hendi aukast fjárfestingar.
Stjórnmálafólk ber ábyrgð hvað það varðar,“
segir Lilja.
„Við erum búin að klára lífskjarasamningana,
við erum að fara að sameinina Seðlabankann
og Fjármálaeftirlitið, við erum að fara í öflugar
innviðafjárfestingar, við erum að fjárfesta í
börnum, við kláruðum hvítbók um fjármála-
kerfið, erum að móta stefnu í menntamálum,
nýsköpun, orkumálum og fleiri þáttum og
stór skref hafa verið í loftslagsmálum. Þessi
ríkisstjórn er að gera mikið og það er mikill
samvinnuhugur í þeim sem sitja við ríkis-
stjórnarborðið þrátt fyrir að þetta séu ólíkir
flokkar.“
Þú nefnir pólitískan stöðugleika. Næst hann bara
með samvinnu þvert yfir hina hefðbundnu ása?
„Á þessum tímapunkti þurfti þess, en það er
ekki sjálfgefið að þannig verði það alltaf. Við
sjáum til að mynda að nýja ríkisstjórnin undir
forystu Mette Frederiksen í Danmörku er
minnihlutastjórn jafnaðarmanna en þar var
ekki farin sú leið að mynda stóra samsteypu-
stjórn þvert á hið pólitíska litróf,“ segir Lilja.
„Það sem skiptir mestu máli er að formenn
þessara þriggja flokka ná vel saman. Ef við
lítum á stjórnmálasöguna hér á landi skiptir
mestu máli að það ríki traust á milli leiðtoga
flokka innan ríkisstjórnarinnar hverju sinni.
Þannig gengur þeim vel.“
Og líður Framsóknarflokknum vel í þessu
ríkisstjórnarsamstarfi? Eruð þið að ná að þeim
markmiðum sem þið hafið sett ykkur?
„Já, samstarfið gengur mjög vel og lands-
menn vita fyrir hvað Framsóknarflokkurinn
stendur. Framsóknarflokkurinn hefur verið
mótandi afl í sögu þjóðarinnar og velsæld
síðustu ára ber þess merki,“ segir Lilja.
„Við viljum vinna samfélaginu okkar gagn og
gera umbætur. Okkur er annt um að halda
öflugri byggð um allt land. Sem fyrr segir
höfum við lagt mikla áherslu á innviða-
fjárfestingar og formaður Framsóknar-
flokksins spilar þar stórt hlutverk sem
samgöngumálaráðherra. En samvinnan
skiptir mestu máli og ástæðan fyrir því að
við höfum náð langt sem þjóð er sú að við
höfum getað unnið saman. Við erum með
hugsandi stjórnmálamenn sem sjá að við
stöndum frammi fyrir miklum breytingum.
Það má nefna sem dæmi að ríkisstjórnin lét
nýlega vinna skýrslu um fjórðu iðnbyltinguna
og það er nokkuð sem við munum einbeita
okkur að enda um krefjandi verkefni að ræða.“