Þjóðmál - 01.06.2019, Page 35
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 33
Íslensk hagsmunagæsla í EES
Víkjum nú að allt öðru. Nú eru liðin tíu ár frá því
að Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu
(ESB). Lesendum Þjóðmála er vel kunnugt
um það ferli en allan þennan tíma, og lengra
aftur, hefur verið deilt um það hvort Ísland
eigi að gerast aðili að ESB og á síðustu
misserum eru jafnvel uppi áhöld um það
hvort við eigum yfir höfuð að vera hluti af
EES-samstarfinu.
„EES-samstarfið, og fjórfrelsið sem því fylgir,
hefur knúið fram margar góðar breytingar.
Þetta er mikilvægasti alþjóðasamningur
okkar og við þrífumst auðvitað á utanríkis-
verslun. Hagsæld hér á landi er grundvölluð
á því að íslenskar vörur og þjónusta eigi
greiðan aðgang að erlendum mörkuðum.
Árið 2016 fóru um 80% af vörum okkar
og þjónustu inn á EES-svæðið, þannig að
samningurinn er mjög mikilvægur. Að sama
skapi skulum við líka horfa til þess að 27%
útflutnings okkar eru í Bandaríkjadölum og
um 25% í evrum,“ segir Lilja aðspurð.
„Það sem við þurfum þó að gera, og það brást
varðandi þriðja orkupakkann, er að gæta
þess nógu snemma í ferlinu að sækja um
undanþágur frá þeim atriðum sem við teljum
að eigi ekki heima hér á landi. Það er alþekkt í
þessu samstarfi. Danir fengu undanþágur frá
jarðakaupum og þeir eru í ESB. Við þurfum
að vera vakandi yfir hagsmunagæslu á fyrri
stigum. Við sem erum í stjórnmálum þurfum
að taka það til okkar og standa okkar vakt.
Vandinn sem við er að etja er heimatilbúinn.“
En er það ekki helst hlutverk embættismanna
að gera það, til dæmis í utanríkisráðuneytinu?
„Jú, en það er líka hlutverk fagráðuneytanna
og stjórnmálamanna. Ég þarf, sem ráðherra
mennta- og menningarmála, að kalla inn
á mitt borð upplýsingar um það hvaða
breytingar eru í farvatninu. Ekki bara þennan
þingvetur, heldur næstu tíu ár því þetta ferli
byrjar mjög snemma,“ segir Lilja.
„Við þurfum að breyta því hvernig við hugsum
og nálgumst þetta samstarf. Við þurfum að
hafa á hreinu hvar hagsmunir okkar liggja og
við þurfum að gæta þeirra vel. Ríki ganga út
frá því að gæta hagsmuna borgara sinna og
við eigum að sinna því. Við eigum auðvelt
með menntastefnuna sem við höfum fjallað