Þjóðmál - 01.06.2019, Blaðsíða 36
34 ÞJÓÐMÁL Sumar 2019
hér um, því það er innanríkismál sem ég
hef kynnt mér vel og er með mikið af sér-
fræðingum í kringum mig. Það sem gerist
hins vegar oft með EES-mál er að nefndir og
stjórnmálamenn hafa ekki vaktað ferlið og
þar af leiðandi ekki hugsað út í það hvaða
áhrif það hefur á samfélagið til lengri tíma.
Ég tel að farsælast sé fyrir þjóðir að annast
sín eigin mál sjálf, sem er einkenni frjálsar
þjóðar.“
Lilja segir að hagsæld Vesturlanda á 20. og 21.
öldinni hafi grundvallast á þessari hugsun.
„Við lifum í samfélagi þjóða og við þurfum
að bera gæfu til þess að leggja okkar að
mörkum í alþjóðasamstarfi byggðu á okkar
eigin þekkingu og sérstöðu, þar horfi ég til
dæmis til umhverfismála og á Ísland sem
leiðandi í sjálfbærri orkunýtingu. Kína horfir
til að mynda til okkar á þessum vettvangi. Við
eigum bæði að flytja út og inn þekkingu til
að bæta samfélög,“ segir Lilja.
„Þjóðir horfa til sérstöðu hver annarrar. Ísland
hefur mikla sérstöðu er varðar náttúru auðlindir,
heilnæm matvæli, loftslag og landfræðilega
stöðu. Við eigum að gæta að sérstöðunni en
um leið nýta hana á sjálfbæran hátt. Vegna
loftslagsbreytinga og hlýnunar norður-
skautsins aukast líkurnar á heilsársopnun
siglingaleiða norðurskautsins. Þetta mun
þýða minni kostnað fyrir verslun og viðskipti
en um leið aukna umferð um þetta viðkvæma
svæði. Vegna landfræðilegrar stöðu Íslands er
sú mikla áhersla sem við leggjum á norður-
skautsmál hárrétt. Vísinda málaráðherrar
norðurskautaríkjanna funda reglulega og
við munum halda næsta fund í samstarfi
við Japan árið 2020. Áhugi Asíu á þessum
málaflokki hefur stóraukist og Ísland á í
samstarfi við þessi ríki á sviðum vísinda og
menntamála. Nýverið hef ég undirritað sam-
starfssamninga vegna þessa og hvet ég ungt
fólk til að sækja sér menntun á þetta svæði.
Stóra breytan í alþjóðaviðskiptum verður
Kína, en aldrei í mannkynssögunni höfum við
séð jafnmarga rísa úr fátækt í millistétt á jafn
skömmum tíma og þar.“
Evran var mistök
Hefur umræðan um aðild að ESB verið of
einföld eða yfirborðskennd hér á landi?
„Já, við sjáum til dæmis að Viðreisn telur að
við eigum að fara í Evrópusambandið af því
að við þurfum stöðugri gjaldmiðil. Mér finnst
umræðan ekki byggð á því hvað er sjálfbært
fyrir íslenskt hagkerfi. Umræðan einkennist
oft af fyrirsögnum og það vantar dýpt,“ segir
Lilja.
„Færustu hagfræðingar veraldar færa fyrir því
góð rök að evran hafi verið mistök fyrir þau
hagkerfi þar sem samleitni hagsveifla er ekki
nægjanleg. Ábatinn af þátttöku í sameigin-
legu myntsvæði verður að vera meiri en
kostnaðurinn. Barry Eichengreen nefnir
að ábatinn sem fólginn er í því að lækka
viðskipta kostnað vegna sameiginlegrar
myntar sé lítill og hægt sé að kaupa varnir
á gjaldeyrismörkuðum gegn slíku. Milton
Friedman sagði á sínum tíma að slæm fram-
kvæmd á peningastefnu væri til þess fallin
að skaða hagkerfið og hagvaxtarmöguleika
til framtíðar. Paul Krugman og Joseph Stiglitz
eru á sama máli. Í mjög áhugaverðri bók
eftir Ashoka Mody, Euro Tragedy, er rakið vel
hvernig evran varð til í pólitískum hrossa-
kaupum Frakka og Þjóðverja. Evran var
draumur franska forsetans Pompidou og
taldi hann að með stofnun hennar myndu
Frakkar standa Þjóðverjum meira jafnfætis.
Það verður svo ekki fyrr en í stjórnartíð
Helmuts Kohl, kanslara Þýskalands, að evran
verður að veruleika þvert á vilja þýska seðla-
bankans og fjármálaráðuneytisins. Ráðgjafar
Kohl sáu að hann var harðákveðinn í þessu,
þetta átti að vera arfleifð hans, en þá var
hann bara beðinn um að sleppa Ítalíu, því að
ríkisfjármálin þar myndu aldrei ráða við að
vera á sameiginlegu myntsvæði. Það er mjög
vanda samt að vera með sameiginlega mynt
án þess að vera með sameiginlega stefnu í
ríkisfjármálum og sameiginlega skuldabréfa-
útgáfu. Wolfgang Schäuble, forseti þýska
þingsins og fyrrverandi fjármálaráðherra,
segir að draga megi í efa hvort þróun Evrópu-
sambandsins sé á réttri leið, þar sem ekki var