Þjóðmál - 01.06.2019, Side 42
40 ÞJÓÐMÁL Sumar 2019
Er sú afdráttarlausa fullyrðing miklu hæpnari
en hin, sem Balzac lagði í munn Vautrins.
Hvað sem því líður, er skáldsagan Faðir Goriot
ekki um auð, heldur andstæður auðs og eklu.
Langflestar söguhetjurnar líða fyrir skort á
auði.
Frumburðarréttur ekki lengur í gildi
Piketty vitnar líka í skáldsögu Jane Austen,
Visku og viðkvæmni (Sense and Sensibility),
sem gerist í lok átjándu aldar.20 En sú saga
styður ekki heldur hugmyndir Pikettys. Flestir
þekkja hana eflaust af verðlaunamynd Emmu
Thompson. Hún er um Dashwood-systurnar
þrjár, sem standa skyndilega uppi tekjulágar
og eignalitlar, eftir að faðir þeirra fellur frá
og eldri hálfbróðir þeirra efnir ekki loforð um
að sjá fyrir þeim. Hrekjast þær ásamt móður
sinni af óðalinu, þar sem þær höfðu alist upp.
En þetta segir okkur ekkert um þá tekju-
dreifingu samkvæmt frjálsu vali á markaði,
sem Piketty hefur þyngstar áhyggjur af,
heldur sýnir aðeins, hversu ranglátur frum-
burðarréttur var, þá er elsti sonur erfði
ættaróðal óskipt.21 Þetta sýnir líka, hversu
ranglátt það var, þegar stúlkur nutu ekki
erfða til jafns við syni. Nú á dögum eru báðar
þessar ranglátu reglur fallnar úr gildi.
Leiða má þetta í ljós með hinum kunna Gini-
mælikvarða á tekjudreifingu. Þegar einn aðili
í hóp hefur allar tekjurnar, er Gini-stuðullinn
1, en þegar allir í honum hafa sömu tekjur,
er hann 0.22 Hefðu Dashwood-systurnar erft
sama hlut og hálfbróðir þeirra, eins og verið
hefði á okkar dögum, þá hefði Gini-stuðullinn
um tekjur þeirra eða eignir verið 0. En af því
að hálfbróðirinn erfði allt einn, var stuðullinn 1.
Elsta Dashwood-systirin, Elinor, er skynsöm
og jarðbundin, en systir hennar, Marianne,
lætur iðulega tilfinningarnar ráða. Marianne
verður ástfangin af hinum glæsilega John
Willoughby, sem lætur fyrst dátt við hana,
en kvænist síðan til fjár, eftir að hann hafði
sólundað arfi sínum, og er það eitt dæmið
af mörgum úr skáldsögum Balzacs og
Austen um fallvelti auðsins. Allt fer þó vel
að lokum. Marianne lætur skynsemina ráða,
og þær Elinor giftast mönnum, sem þær
treysta. Nú á dögum hefðu þær haldið út á
vinnumarkaðinn og þannig orðið fjárhags-
lega sjálfstæðar. Kapítalisminn leysti fólk úr
álögum, ekki síst konur.
Umdeilanleg talnameðferð
Í bók sinni þylur Piketty upp tölur um þróun
eigna- og tekjudreifingar í mörgum
vest rænum löndum, þar á meðal Frakklandi,
Bretlandi, Bandaríkjunum og Svíþjóð. Að
baki þeim liggja að hans sögn margra ára
rannsóknir hans og samstarfsmanna hans.
En sýna gögn, að eigna- og tekjudreifing
hafi orðið miklu ójafnari síðustu áratugi? Um
það má efast. Sumar tölur Pikettys virðast
vera mælingaskekkjur frekar en niðurstöður
áreiðanlegra mælinga. Til dæmis er aðal-
ástæðan til þess, að eignadreifing mælist nú
talsvert ójafnari í Frakklandi og víðar en áður,
að fasteignaverð hefur rokið upp. Því veldur
aðallega tvennt: Ríkið hefur haldið vöxtum
óeðlilega langt niðri, og einstök bæjarfélög
hafa skapað lóðaskort á margvíslegan hátt,
meðal annars með ströngu bæjarskipulagi.
(Við Íslendingar þekkjum þetta hvort tveggja
af eigin raun.) Ef hins vegar er litið á arð af því
fjármagni, sem bundið er í fasteignum, þá
hefur hann ekki aukist síðustu áratugi. Þess
vegna er hæpið að tala um, að eignadreifing
hafi orðið til muna ójafnari.23
Jane Austen lýsir í skáldsögu sinni, Visku og viðkvæmni,
ranglátum erfðareglum í Englandi, sem stuðluðu að ójafnri
dreifingu eigna og tekna, en eru löngu fallnar úr gildi. Hér
er hún á tíu punda seðlinum breska.