Þjóðmál - 01.06.2019, Page 49

Þjóðmál - 01.06.2019, Page 49
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 47 Það er þó dálítil einföldun að tala um algjöran frið. Fyrrnefnd átök í Júgóslavíu leiddu til þess að landið var brotið upp í það sem nú eru sjö ríki og flestum eru kunnug átök á milli mótmælenda og kaþólikka á Norður- Írlandi, sem leitt hafa af sér hroðalega atburði á köflum. Loks ber að nefna að framin hafa verið hryðjuverk í hinum ýmsu Evrópuríkjum á liðnum árum. Allt eru þetta átök sem kostað hafa mannslíf. Það gerðu líka voðaverk kommúnista í Austur-Evrópu á tímum járn- tjaldsins, svo sem í Prag, Austur-Berlín og á fleiri stöðum. Það hefur þó ríkt friður í þeim skilningi að ekkert ríki í Evrópu hefur lýst yfir stríði við annað ríki (að undanskildum átökunum á Balkanskaga). Það er af þeirri ástæðu sem menn tala um að ríkt hafi friður frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Ekkert bendir heldur til þess að stríð muni brjótast út í Evrópu í náinni framtíð. Reyndar er það afar ólíklegt og svo gæti farið að árið 2045 muni menn fagna því að friður hafi ríkt í Evrópu í 100 ár – líklega í fyrsta sinn frá því að menn hófu að skrá sögu Evrópu. Sem fyrr segir er þetta langur tími í sögulegu samhengi. Það eru nokkrar ástæður fyrir því að Evrópubúar, sem í gegnum aldirnar hafa ítrekað og aftur barist á banaspjótum, friðmælast í nær 75 ár og jafnvel heila öld að öllu óbreyttu. Því er oft haldið fram að helst megi þakka Evrópusambandinu fyrir þetta friðsæla ástand. Það er að hluta til rétt, en skýringin er ekki alveg svo einföld. Evrópu- sambandið gat til að mynda lítið aðhafst vegna fyrrnefndra átaka á Balkanskaga. Þó svo að hugmyndin að auknum Evrópu- samruna hafi að einhverju leyti falið í sér að koma í veg fyrir frekari átök í Evrópu er ekki þar með sagt að sameiningarferli það sem átt hefur sér stað hafi haldið friðinn. Rétt er að taka inn í myndina nokkur atriði sem eiga mikinn þátt í því að ekki hafa brotist út vopnuð átök í álfunni. Það má með einföldum hætti telja upp fjórar veigamiklar ástæður fyrir því að friður hefur haldist í Evrópu frá lokum seinni heims- styrjaldar. 1. Kalda stríðið – sameiginlegur óvinur og sameiginlegir hagsmunir Um leið og byssurnar kólnuðu eftir seinni heimsstyrjöldina skall á annað stríð. Á milli vesturveldanna (með Bandaríkin í fararbroddi) og Sovétríkjanna myndaðist kalt stríð, sem var að mestu laust við vopnuð átök. Svokallað járntjald myndaðist um Evrópu miðja og engin þjóð hafði í raun tækifæri á að vera hlutlaus í þessu kalda stríði. Þess má geta að því hefur jafnframt verið haldið fram að sú spenna sem myndaðist á milli vesturveldanna og Sovétríkjanna, með ótta um notkun kjarnorkuvopna (sem leitt hefði til gereyðingar) hafi að hluta til haldið friðinn allt fram til 1989. Frá upphafi kalda stríðsins áttu stórveldin tvö, Bandaríkin og Sovétríkin, í vopnakapphlaupi á meðan ríki Evrópu voru enn að sleikja sárin eftir lok seinni heimsstyrjaldar. Ekkert ríki í Vestur-Evrópu hafði í raun hernaðarlega eða efnahagslega getu til að hefja stríð við annað ríki. Að sama skapi hafði ekkert þeirra getu til að verjast mögulegri innrás Sovétríkjanna án aðstoðar Bandaríkjanna. Þannig áttu ríki Evrópu, ásamt Bandaríkjunum, sér sameigin- legan óvin austan járntjaldsins. Þessu til viðbótar áttu ríki Vestur-Evrópu sameiginlegra hagsmuna að gæta; að byggja sig upp að nýju. Allir áttu sameiginlega hagsmuni í því halda friðinn og leysa frekar ágreining og deilur á vettvangi stjórnmála og viðskipta. Allir lögðust á eitt við að sinna sama markmiðinu.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.