Þjóðmál - 01.06.2019, Blaðsíða 59
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 57
„nei-manna“ lýsa algjöru metnaðarleysi fyrir
hönd skákarinnar. Heimsmeistarinn greip til
þess að stofna nýtt skákfélag, Offerspill, og
bauðst til að borga meðlimagjaldið til norska
skáksambandsins fyrir fyrstu 1.000 félags-
mennina, sem hann og gerði. Það samsvarar
um átta milljónum íslenskra króna.
Allt fór gjörsamlega á annan endann í Noregi.
Fjölmiðlar fjölluðu lítið um mótið í Zagreb en
því meira um átökin í skákhreyfingunni og
afskipti Magnúsar.
Sakaður um tilraun til valdaráns
Heimsmeistarinn var sakaður um tilraun
til valdaráns og var hart gagnrýndur. Hann
hafði líka leyft sér að vera ósáttur við að
norska skáksambandið valdi Stafangur sem
vettvang fyrir heimsmeistaraeinvígið 2020
en ekki Ósló eða Bærum, sem Magnús vildi
miklu frekar. Stafangur dró að lokum tilboð
sitt til baka vegna andstöðu Magnúsar. Á
þessari stundu er óljóst hvort Norðmenn
bjóði í einvígið, en FIDE framlengdi frestinn
til að sækja um einvígið 2020 um tvo mánuði
fram í september – sennilega til að gefa Norð-
mönnum annan möguleika á að sækja um.
Deilt var um hvort félag Magnúsar ætti að
hafa atkvæðisrétt á aðalfundinum og
blönduðu virtir norskir lögmenn sér í málið.
Magnús var einnig sakaður um að njóta
persónulegs ávinnings en neitaði því stað-
fastlega. Sagðist hann bara hafa hagsmuni
skákarinnar að leiðarljósi, sem ég trúi að sé
rétt.
Svo fór að samkomulag náðist um að félagið
fengi aðeins sex fulltrúa á aðalfundinum en
ekki 41 eins og meðlimafjöldinn sagði til um.
Samningurinn kolfelldur
Þegar kom að fundinum var metaðsókn og
hann stóð í sex tíma. Tillagan um samninginn
við Kindred var kolfelld 44-132 og ljóst var
að atkvæði félags Magnúsar hefðu engu máli
skipt. Forseti Skáksambandsins, Morten L.
Madsen, sem var eindreginn stuðningsmaður
samningsins, var hins vegar endurkjörinn
forseti sambandsins.
Málið allt hefur hins vegar vakið mikla
umræðu í Noregi. Íþróttamálaráðherrann þar
hefur léð máls á því að skákin fái stuðning
í gegnum Norsk Tipping þrátt fyrir að vera
ekki í Íþróttasambandi Noregs eða mögulega
beinan aukinn stuðning frá ríkinu.
Kindred náði tilgangi sínum að miklu leyti
og það án þess að borga 50 milljónir norska
króna. Þrýstingur á að einokun Norsk Tipping
á norskum veðmálamarkaði verði afnumin
hefur aukist.
Mun Kindred reyna það sama í öðrum
löndum?
Höfundur er forseti Skáksambands Íslands.
Magnús Carlsen var kampakátur með sigurlaunin í Zagreb
- en væntanlega ekki jafn ánægður með niðurstöðu aðal-
fundar norska skáksambandsins.
Magnús og gamli þjálfarinn Agdestein litu Kindred-
samninginn misjöfnum augum.