Þjóðmál - 01.06.2019, Side 67
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 65
Það er þó margt sem betur hefði mátt fara í
aðdraganda skipunarinnar. Á það hefur verið
bent, með málefnalegum rökum, að formaður
nefndarinnar, Sigríður Benediktsdóttir,
hagfræðingur við Yale-háskóla, fyrrverandi
framkvæmdastjóri fjármálastöðugleikasviðs
Seðlabankans og núverandi bankaráðsmaður
í Landsbanka Íslands, var með öllu vanhæf
til að sinna því hlutverki. Það að bankaráðs-
maður leiði hæfnisnefndina gengur auðvitað
ekki upp. Eins og Hörður Ægisson, ritstjóri
Markaðarins, hefur réttilega bent á þætti
engum eðlilegt að forstjóri eftirlitsskylds
félags á fjármálamarkaði færi fyrir nefnd sem
ætti að meta hæfi umsækjenda um starf
forstjóra FME. Sú samlíking er ekki úr lausu
lofti gripin, þar sem Seðlabankinn og FME
munu sameinast um næstu áramót.
Fjölnir hefði haldið miðað við þann mikla
áhuga sem einstaklingar úr öllum áttum hafa
sýnt góðum stjórnsýsluvenjum á liðnum
misserum, sérstaklega í kringum Landsréttar-
málið, að fleiri myndu láta í sér heyra í þessu
ferli sem öllum má vera ljóst að er gallað.
Þögn þeirra er æpandi nú. Um þetta verður
sjálfsagt tekist á þegar fram líða stundir.
***
Hæfnisnefndin hafði áður metið fjóra
umsækjendur mjög vel hæfa til að gegna
stöðunni. Fyrir utan Ásgeir voru það Gylfi
Magnússon, dósent við Háskóla Íslands (og
núv. formaður bankaráðs Seðlabankans), Jón
Daníelsson, prófessor við LSE í London, og
Arnór Sighvatsson, ráðgjafi seðlabankastjóra
og fyrrverandi aðalhagfræðingur og
aðstoðar seðlabankastjóri.
Það sætir furðu að Gylfi hafi ekki sagt af sér
sem formaður bankaráðs um leið og hann
sótti um stöðu seðlabankastjóra. Fjölnir hefur
ekki upplýsingar um það hvort Gylfi upplýsti
forsætisráðherra um það að hann hygðist
sækja um stöðuna og þá hvort forsætis-
ráðherra hafi gert einhverjar athugasemdir
við áframhaldandi setu hans í bankaráðinu.
Þó er ljóst að Þórunn Guðmundsdóttir,
hæstaréttarlögmaður og varaformaður
bankaráðs Seðlabankans, sat í hæfnis-
nefndinni og var þannig sett í afar óþægilega
stöðu – að meta hæfi formanns bankaráðsins
til að sinna embætti seðlabankastjóra.
Nú mun Gylfi áfram sitja sem formaður
bankaráðs með seðlabankastjóra sem hafði
hann undir í baráttunni um stólinn. Stjórn-
sýslufræðingar þessa lands, réttmætir og
sjálfskipaðir, hljóta að hafa skoðun á þessu.
***
Annar vel hæfur umsækjandi var Arnór
Sighvatsson, sem lengi hefur starfað innan
Seðlabankans. Arnór getur ekki hreinsað
hendur sínar af þeirri miklu valdníðslu sem
Seðlabankinn hefur sýnt bæði einstaklingum
og fyrirtækjum í kringum gjaldeyrishöftin á
liðnum árum. Að mati Fjölnis ber hann jafn
mikla ábyrgð á því og Már Guðmundsson,
fráfarandi seðlabankastjóri, enda svo sem
aldrei neitt komið fram um það að hann hafi
hreyft nokkrum mótmælum vegna aðgerða
Seðlabankans í þeim málum.
***