Þjóðmál - 01.06.2019, Síða 68
66 ÞJÓÐMÁL Sumar 2019
Þá komum við að því sem Fjölni er helst
hugleikið við brotthvarf Más úr Seðla-
bankanum. Það hefur verið létt yfir Má í
fjölmiðlum í sumar og nokkuð ljóst að hann
vill láta minnast sín sem mannsins sem spilaði
stórt hlutverk í því að endurreisa efnahag
landsins eftir fjármálakrísuna haustið 2008.
Á stýrivaxtafundi fyrr í sumar, þeim síðasta
sem Már stýrði, lagði hann áherslu á þann
árangur sem náðst hefði á liðnum árum.
Þeir sem þekkja til fjármálageirans, nú eða
efnahagsmála yfirleitt, vita að sá árangur sem
náðst hefur verður ekki rakinn til stórverka
Seðlabankans.
***
Það eru aftur á móti nokkur mál sem vert er
að hafa í huga þegar horft er á störf Más og
Seðlabankans síðastliðin tíu ár.
***
Samherjamálið stendur þar upp úr. Í lok mars
2012 ruddust fulltrúar Seðlabankans og
embættis sérstaks saksóknara, í nánu sam-
starfi við Ríkissjónvarpið, inn í höfuðstöðvar
Samherja á Akureyri og í Reykjavík og
gerðu þar húsleit. Fyrrnefndur Arnór, ásamt
Ingi björgu Guðbjartsdóttur, þáverandi
framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits Seðla-
bankans, skrifaði undir rökstuðning bankans
fyrir húsleitinni.
Næstu sjö ár á eftir rak Seðlabankinn málið
áfram af fullri hörku, án nokkurs árangurs
fyrir bankann en með miklum skaða fyrir
Samherja og þá einstaklinga sem því ágæta
fyrirtæki stýra. Fyrst um sinn var gefin sú
skýring á húsleitinni að grunur léki á að Sam-
herji hefði stundað ranga verðlagningu með
sjávarafurðir innan fyrirtækja í samsteypu
Samherja, bæði hér og erlendis, og þannig
brotið á gjaldeyrislögum. Már Guðmundsson
sagði í fjölmiðlum að brotin hlypu á tugum
milljarða.
Sama dag og húsleitin var gerð sendi Seðla-
bankinn frá sér tilkynningu á ensku, sem eðli
málsins samkvæmt fór víða. Seðlabankinn
stundar það ekki almennt að senda frá sér
tilkynningar á ensku, þannig að það má vera
nokkuð ljóst að eini tilgangurinn með því
að senda út slíka tilkynningu hafi verið að
skaða forsvarsmenn Samherja með öllum
mögulegum ráðum - og sem víðast.
***
Þessi aðför Seðlabankans, undir forystu Más,
Arnórs og Ingibjargar, stóð á veikum grunni
frá upphafi. Fljótlega eftir húsleitina kom
í ljós að útreikningar Seðlabankans voru,
svo vægt sé til orða tekið, kolrangir. Seðla-
bankinn vísaði nokkrum atriðum til embættis
sérstaks saksóknara, sem tvisvar gerði bankann
afturreka með þau atriði. Eins og Fjölnir hefur
áður bent á hefur aldrei verið gefin út ákæra
og þaðan af síður hefur fallið dómur gegn
nokkrum starfsmanni Samherja fyrir brot á
gjaldeyrislögum (reyndar hefur enginn verið
sakfelldur hér á landi fyrir brot á gjaldeyris-
lögum, þrátt fyrir nokkrar tilraunir).
Allir dómar sem fallið hafa í þessu máli hafa
fallið gegn Seðlabankanum. Sá síðasti þegar
dómstólar dæmdu Samherja í vil eftir að
fyrirtækið hafði neitað að greiða sekt upp
á 8,5 milljónir króna. Með sektinni ætlaðist
Seðlabankinn, undir forystu Más, til þess að
Samherji lyki málinu í sátt. Þegar Samherji
neitaði að ljúka málinu með þeim hætti var
sektin hækkuð í 15 milljónir króna án þess að
fyrir lægi nokkur rökstuðningur fyrir því.
Verstu handrukkarar landsins hafa væntan-
lega horft með aðdáun á aðfarir Seðla-
bankans. Sem fyrr segir dæmdu dómstólar
Samherja í vil hvað þennan lið varðar.
***