Þjóðmál - 01.06.2019, Side 76
74 ÞJÓÐMÁL Sumar 2019
„Lýðræðislegur sósíalismi“ er ein af
draumóra hugsjónum vinstrimanna. Ef þú
spyrð Bernie Sanders, Jeremy Corbyn eða
einhvern vinsælan áhrifavald færðu að heyra
að hann sé lausnin á vandamálum nútímans.
Gleymið myrku sögunni sem ítrekað hefur
sýnt að sósíalismi getur hvorki verið lýðræðis-
legur né leitt til velmegunar eða sjálfbærni, og
að þess í stað sé hann valdur að harðstjórn og
eymd. Já, sannarlega mun þessi nýja hugmynd
um lýðræðis legan sósíalisma á endanum
verða lausnin. Vitaskuld.
Málsvarar þessa kerfis benda alltaf á Norður-
löndin máli sínu til sönnunar. Að lönd á borð
við Danmörku og Svíþjóð sýni að hægt sé að
hafa „sósíalisma“ - það er að segja risastórt
velferðarríki - og vera samt velmegandi, frjáls
og lýðræðisleg. Að heyra Bernie Sanders tala
um hina fögru Danmörku er eins og að hlusta
á lýsingu á paradís. Það er þó bara mýta.
Mig grunar að það hafi verið ein af ástæðunum
fyrir því að European Liberty Forum þessa árs
fór fram í Kaupmannahöfn - til að tortíma
þessari goðsögn og færa þeim sem tala fyrir
frjálsu markaðskerfi rök gegn málflutningi
þeirra sem tala í anda Sanders og Corbyns.
Í mörgum hringborðsumræðum sýndu
fræðimenn frá Norðurlöndum, bæði háskóla-
menn og menn frá hugveitum, fram á tvennt;
í fyrsta lagi að Norður-Evrópu vegnar ekki
vel vegna sósíalisma. Í öðru lagi að einmitt
þessum heimshluta myndi jafnvel vegna enn
betur ef öllum leifum af ríkisafskiptum yrði
vikið burt.
Rétt er það að við fyrstu sýn virðist það
fremur ólíklegt. Menn sem tóku þátt í hring-
borðsumræðum á Liberty Forum lentu þrátt
fyrir allt oftar en einu sinni næstum í rifrildi
um hvort hæsti tekjuskattur í heimi væri
innheimtur í heimalandi þeirra. Keppnin
virtist standa á milli Danmerkur og Svíþjóðar
- en engin niðurstaða fékkst. Eitt af skondnu
andartökunum kom þegar fræðimaður frá
samtökum skattgreiðenda í Bandaríkjunum
(US Tax Advocacy) reyndi að hrista upp í
áheyrendum með því að segja að í Banda-
ríkjunum væri skattfrelsisdagur þessa árs
þegar í apríl. Þar sem þessir dagar lenda í júní
eða júlí (og stundum jafnvel í ágúst) í flestum
Evrópulöndum, og einkum á Norðurlöndum,
virtust almennu viðbrögðin vera: „Og er
það þarna megin Atlantshafsins sem Bernie
Sanders sér alvöru paradís?“
Kai Wess
Goðsögninni um norrænan
sósíalisma kollvarpað
Kai Weiss sótti ráðstefnu European Liberty Forum í Kaupmannahöfn til að kanna
hvort einhver sannleikskorn væru í því sem sagt er um norrænan sósíalisma.
Hugmyndafræði