Þjóðmál - 01.06.2019, Page 82

Þjóðmál - 01.06.2019, Page 82
80 ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 Á árunum 1947 1949 sat við völd á Íslandi samstjórn þriggja stjórnmálaflokka, Alþýðuflokksins, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðis flokksins, en fjórði þingflokkurinn, Sameiningarflokkur alþýðu – Sósíalista- flokkurinn, var utan stjórnar. Hugmyndina um varnarbandalag vestrænna þjóða bar á góma hjá nokkrum ráðherrum þessarar ríkisstjórnar þegar í sambandi við för forsætis- ráðherrans, Stefáns Jóhanns Stefánssonar, sem var leiðtogi Alþýðuflokksmanna, á fund forsætisráðherra Norðurlanda í febrúar 1948. Voru íslensku ráðherrarnir varfærnir í fyrstu viðbrögðum sínum, svo sem eðlilegt var um mál á þessu sviði, er verið hafði hið við- kvæmasta og vandasamasta í íslenskum stjórnmálum nýliðinna ára. En þeir voru „sammála um, að ekkert gæti verið við það að athuga, að [forsætisráðherra kynnti sér] álit manna á Norðurlöndum á þessari hugmynd, en að sjálfsögðu væri ekkert hægt að segja að svo stöddu, hver kynni að verða afstaða Íslands, ef leitað yrði eftir henni.“ Íslendingar finna til nánastra tengsla og skyld leika við Norðurlandaþjóðirnar, og því var nærtækt að kanna fyrst viðhorf þeirra. Í hópi norrænu forsætisráðherranna reyndist það vera mál manna, að mikla nauðsyn bæri til að huga vandlega að hervörnum Norður- landa, og skyldu þau hafa samráð um þessi efni. Enn óx alvara og mikilvægi þessara mála við valdarán kommúnista í Tékkóslóvakíu 25. febrúar 1948. Sá óhugur, sem þessi atburður vakti, greip einnig Íslendinga. Þeir gerðu sér sífellt betur ljóst, að öryggi þeirra væri háð því, sem gerast myndi á meginlandi Evrópu. Oftrú sumra íslenskra skoðanabræðra vald- hafanna í Kreml á ágæti kommúnismans jók ekki ró manna eða bjartsýni. Í mars 1948, er Ernest Bevin, utanríkisráðherra Breta, lýsti hugmyndum sínum um vestrænt varnarbandalag, taldi hann Ísland með í þeim ríkjum, sem þyrftu að verða aðilar. Síðar kom í ljós, að Norðmenn álitu það einnig mjög miklu skipta og sömuleiðis Bandaríkjamenn, einkum til að tryggja samgöngu- og flutninga leiðina yfir Atlantshafið. Aftur á móti taldi belgíski utanríkisráðherrann Paul-Henri Spaak í nóvember 1948 heppilegra fyrir skjótan framgang bandalagsstofnunarinnar að takmarka það við ríkin sjö, sem tekið höfðu þátt í undirbúningsviðræðum, er hófust í júlí það ár, þ.e. Bretland, Frakkland, Belgíu, Holland, Luxemburg, Bandaríkin og Kanada. Það myndi tefja málið, ef reynt væri að fá Ísland og skandinavísku ríkin með. Hann féllst þó fljótt á sjónarmið Bandaríkjanna í þessu efni. Ráðuneyti Stefáns Jóh. Stefánssonar, sem sat frá febrúar 1947 – desember 1949. Talið frá vinstri: Bjarni Ásgeirsson (land- búnaðarráðherra), Eysteinn Jónsson (menntamála ráðherra), Stefán Jóhann Stefánsson (forsætis- og félagsmála ráðherra), Sveinn Björnsson forseti Íslands, Bjarni Benediktsson (utanríkis- og dómsmálaráðherra), Emil Jónsson (viðskipta- og samgöngumálaráðherra) og Jóhann Þ. Jósefsson (fjármála- og atvinnumálaráðherra). Mynd: Stjórnarráðið.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.