Þjóðmál - 01.06.2019, Blaðsíða 87
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 85
Kvikmyndarýni
Gísli Freyr Valdórsson
Bestu hliðar
samfélagsins
Fólkið í Dalnum - heimildarmynd
um Þjóðhátíð í Vestamannaeyjum
Framleiðendur:
Sighvatur Jónsson og Skapti Örn Ólafsson
Kvikmyndataka og samsetning:
Sighvatur Jónsson
Handrit og viðtöl:
Skapti Örn Ólafsson
Tónlist:
Halldór Gunnar Pálsson
Lengd: 76 mínútur
Frumsýnd í júlí 2019
Sá sem hér skrifar hefur aldrei farið á
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum en er reglulega
minntur á það af heimamönnum af hverju
hann er að missa. Fyrir utan óteljandi frásagnir
heimamanna, sem ég hef verið svo heppinn
að kynnast mörgum í gegnum tíðina,
mætti segja að það næsta sem ég hafi komist
Þjóðhátíð sé að horfa á heimildarmyndina
Fólkið í Dalnum sem frumsýnd var í júlí.
Það verður að segjast eins og er að höfundum
myndarinnar, þeim Sighvati Jónssyni og
S kapta Erni Ólafssyni, tekst að fanga bestu
hliðar samfélagsins með mynd sinni. Einn
helsti styrkur okkar Íslendinga er hvað við
erum fámenn. Það sýnir sig á svo margan
hátt en líklega best utan höfuðborgar-
svæðisins. Samfélagið í Vestmannaeyjum er
á margan hátt stórbrotið og það er gaman
að fá innsýn í líf heimamanna, bæði við
undirbúning Þjóðhátíðar og eins á meðan á
henni stendur.
Merkileg saga
Árið 1874 fögnuðu Íslendingar þúsund
ára afmæli landnámsins með því að halda
þjóðhátíð víða um land. Í Vestmannaeyjum
var hátíðin haldin í Herjólfsdal, en ólíkt
öðrum landshlutum og svæðum gerðu
Eyjamenn sína hátíð að árlegum viðburði.
Þjóðhátíð í Eyjum hefur nú verið haldin nær
óslitið í 145 ár. Hún hefur vissulega þróast
í gegnum tíðina en margir þættir hennar
byggja þó á áratugagömlum hefðum.
Árið 2013 ákváðu þeir Sighvatur og Skapti
Örn að gera heimildarmynd um Þjóðhátíð
2014, þ.e. á 140 ára afmæli Þjóðhátíðar.
Til stóð að gera stutta heimildarmynd en
þeim varð brátt ljóst að ekki væri hægt að
fanga allt það sem gerist fyrir, á meðan á
henni stendur og eftir hana, á einni hátíð.
Úr varð að þeir tóku upp efni og viðtöl á
fimm hátíðum, þ.e. frá 2013-18, og úr varð sú
heimildarmynd sem hér er um fjallað.