Þjóðmál - 01.06.2019, Síða 88

Þjóðmál - 01.06.2019, Síða 88
86 ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 Það var rétt mat hjá framleiðendum myndarinnar að bíða með gerð hennar í þennan tíma. Sjálfsagt hefur eitt ár til eða frá ekki skipt öllu máli, en líklega hefði verið ómögulegt að fanga alla anga á einni hátíð. Einn helsti kostur myndarinnar er einmitt sá hvað hún gefur víðtæka og fjölbreytta mynd af Þjóðhátíðinni. Það er fjallað sérstaklega um undirbúninginn og í myndinni eru kaflar um brennuna, blysin, gerð sviðsins, um gæsluna og öryggismál, setningarathöfnina, tónlistina og aðra þætti. Þá er fjallað um baráttu heima manna um stæði undir hvítu hústjöldin, manna mótin í tjöldunum og aðrar skemmti legar hefðir sem fylgja hátíðinni – og heimamönnum. Það eina sem mögulega mætti segja að vanti í þessu samhengi er ferðin í Herjólfi. Það hefði eflaust verið hægt að fanga fjölbreytta stemningu í Herjólfi, þá væntanlega eftir því hvort verið er að fara til eða frá Eyjum. Aldrei verður myndin langdregin. Tekin eru fjölmörg viðtöl við hina ýmsu aðila; tónlistar- menn sem koma fram á hátíðinni, gesti, heimamenn og fleiri. Fyrir fram mætti ætla að það væru helst heimamenn sem hefðu gaman af myndinni, enda er hún að mestu leyti um þá, en þetta er mynd fyrir alla þá sem hafa gagn og gaman af íslensku sam- félagi. Fólkið í Dalnum varpar líka upp sögulegri mynd af Þjóðhátíð. Í myndinni birtist töluvert af gömlu myndefni, sem er skemmtilegt og gefur myndinni aukið vægi, og mögulega hefði það mátt vera meira ef þess hefði gefist kostur. Þau myndbrot sem birtast eru áhugaverð og þá ekki síst vegna þeirra hefða sem myndast hafa í gegnum árin. Skuggahliðarnar Eflaust eru margir sem hafa þá mynd af Þjóðhátíð í Eyjum að hér sé aðeins um að ræða eitt heljarinnar fyllerí í misjöfnu veðri og við misjafnlega öruggar aðstæður. Fram- leiðendum myndarinnar tekst þó vel til við að sýna bestu hliðar hátíðarinnar, fjölskyldu- stundir og aðra góða samfélagslega viðburði sem henta öllum. Því er þó ekki að neita að Þjóðhátíð á sér líka dökka hlið, kynferðisbrot. Um hverja verslunar mannahelgi má gera ráð fyrir þrenns konar fréttum af útihátíðum landsins; Þjóðhátíð í Eyjum er eitt stærsta fjáröflunarverkefni ÍBV á ári hverju. Handboltadeild félagsins sér venjulega um hina árlegu brennu þar sem mikið er á sig lagt (skjáskot úr myndinni Fólkið í Dalnum).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.