Þjóðmál - 01.06.2019, Side 89
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 87
fréttum af fjölda á hverjum stað, fréttum af
veðri og loks þeim vandamálum sem komið
hafa upp. Þar hefur, því miður, ósjaldan verið
fjallað um kynferðisbrot í Eyjum.
Það vakti athygli fyrir nokkrum árum þegar
þá nýskipaður lögreglustjóri í Vestmanna-
eyjum tilkynnti viðbragðsaðilum á svæðinu
(þegar undirbúningur hátíðarinnar stóð sem
hæst) að ekki yrðu gefnar upp tölur um fjölda
kynferðisbrota til fjölmiðla. Fyrir því voru
helst tvær ástæður; annars vegar tillitssemi
við brotaþola og hins vegar rannsóknar-
hagsmunir á sömu brotum. Sem kunnugt
er olli þetta verklag lögreglustjórans nokkru
uppnámi, þá helst á samfélagsmiðlum
og í fjölmiðlum, en einnig meðal annarra
viðbragðs aðila sem veitt hafa aðstoð og
ráðgjöf vegna kynferðisbrota.
Framleiðendum tekst að meðhöndla þessa
umræðu með málefnalegum og sanngjörnum
hætti í myndinni. Það verður líka að segja
þeim til hróss að það hefði verði ótrúverðugt
að sleppa því að nálgast þessa umræðu,
þannig að það gerir myndina enn betri að
fjalla um málið og í framhaldinu fara yfir
þær ráðstafanir sem hafa verið stórbættar á
síðustu árum til að sporna við frekari brotum.
Að því sögðu, og þetta er útúrdúr frá
myndinni sjálfri, er rétt að hrósa lögreglu-
stjóranum fyrir að hafa staðið í lappirnar
í málinu. Enginn skal efast um að þær
ákvarðanir og verklagsreglur sem lögreglu-
stjórinn í Vestmannaeyjum tekur og setur séu
gerðar með hagsmuni brotaþola að leiðarljósi.
Tónlistin mikilvæg
Fólkið í Dalnum er áhugaverð mynd sem allir
ættu að sjá og framleiðendur hennar eiga
hrós skilið fyrir eljusemina við gerð hennar.
Að lokum er þó vert að nefna að tónlistin
spilar mikilvægt hlutverk í myndinni og er
Halldór Gunnar Pálsson (Fjallabróðir) þar
framarlega í flokki.
Hér áður sagði að myndin kallaði fram bestu
hliðar samfélagsins – en það gerir tónlistin
líka. Lífið er svo sannarlega yndislegt þegar
setið er í brekkunni þar sem hjartað slær.
Höfundur er ritstjóri Þjóðmála.
Framleiðendur myndarinnar, þeir Sighvatur Jónsson og Skapti Örn Ólafsson, eiga mikið hrós skilið fyrir myndina.