Þjóðmál - 01.06.2019, Blaðsíða 90

Þjóðmál - 01.06.2019, Blaðsíða 90
88 ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 Bókarýni Friðrik Friðriksson Landnámshaninn gól að morgni WOW - ris og fall flugfélags Höfundur: Stefán Einar Stefánsson Útgefandi: Vaka Helgafell Reykjavík, 2019. 367 bls. WOW - ris og fall flugfélags, er skemmtileg bók aflestrar og í henni er margs konar fróðleikur. Fyrirsögnin vísar til mikillar hátíðar í tilefni af 50 ára afmæli stofnanda WOW, Skúla Mogensen, sem fram fór í Hvammsvík. Sú frásögn af veitingum og skemmtanahaldi er brosleg þar sem títtnefndur landsnámshani lék stórt hlutverk. Afdrifum hans í morgun- sárið verður ekki gerð frekari grein fyrir á þessum vettvangi. Höfundurinn tekst á við verðugt verkefni, að skrifa samtímabók um mikilvæga atburði sem snerta marga. Bókin ætti að vera hvatning öðrum blaðamönnum til skrifta um stór mál og þá má ekki gleyma velvild vinnuveitenda blaðamanna við að gera þeim það kleift að skrifa svona bók. Hún er góð heimild um mikil umbrot og viðskiptahug- mynd sem varð að veruleika en brotlenti. Frá útkomu bókarinnar hafa síðan verið skrifaðir nýir kaflar nánast vikulega og sér ekki fyrir endann á þeim. Stofnandinn boðaði reyndar á kynningu að hann sæi fyrir sér WOW 2.0 og í það stefnir jafnvel þegar þetta er ritað, þó ekki með aðkomu Skúla svo vitað sé. Við blasir að bókin hefði að einhverju leyti orðið öðruvísi hefði stofnandinn gefið færi á samtölum við skrif hennar, sem hann gerði ekki. Eftir útkomu bókarinnar skrifaði hann færslu á Facebook sem átti að draga úr gildi hennar en gerði ekki. Einnig hamlaði það höfundi að aðgengi að fjárhagslegum upplýsingum um félagið var takmarkað enda um óskráð félag að ræða. Að öðru jöfnu hefðu margs konar upplýsingar um raunveru- lega stöðu félagsins orðið skýrari fyrr með dreifðu eignarhaldi. Það er vafalítið að þessi óvissa um raunverulega stöðu félagsins hefur frekar lengt í líftíma þess.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.