Þjóðmál - 01.06.2019, Qupperneq 91

Þjóðmál - 01.06.2019, Qupperneq 91
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 89 Það er einkum þrennt sem mig langar til að staldra við: Í fyrsta lagi áhugaverðar persónur sem koma fram í bókinni og eru hluti af atburðarásinni. Í annan stað nefni ég atriði sem bókin fjallar ekki um og hefði hugsanlega mátt gefa betri gaum. Og að lokum nokkur orð um framtíðarsýn í flugrekstri í ljósi þeirra miklu breytinga sem orðnar eru í þeim heimi. Persónur og leikendur Tíminn líður hratt og í bókinni er haldið til haga tímatali allt frá því að tilkynnt var um stofnun WOW air 2011 og opnað fyrir bókanir hjá félaginu. Gott er að rifja upp að WOW keypti Iceland Express út af markaðnum 2012 og fékk nýtt flugrekstrarleyfi 2013. Farið er yfir miklar skylmingar í kringum stofnun WOW og viðskilnað Matthíasar Imsland við Iceland Express, þar sem hann gegndi stöðu forstjóra á meðan Pálmi Haraldsson var þar aðaleigandi. Matthías hætti snögglega sem forstjóri Iceland Express og gekk til liðs við Skúla Mogensen um það leyti sem hann var að undirbúa stofnun flugfélags. Birgir Jónsson, nýskipaður forstjóri Íslandspósts, kemur tvívegis við sögu Iceland Express. Fyrst starfaði hann sem forstjóri félagsins á árunum 2004 til 2006 og til hans var svo leitað aftur þegar Matthías hætti snögglega í september 2011. En í þetta sinn varð dvölin stutt því Birgir hætti 10 dögum síðar og bar við ágreiningi við eigendur. Þá steig fram annar maður, Skarphéðinn Berg Steinarsson, núverandi ferðamálastjóri. Hann sat í stjórn Iceland Express og tók við forstjórakeflinu þegar Birgir hrökk úr skaftinu. Baldur Oddur Baldursson, Davíð Másson og Páll Borg eru tilgreindir sem lykilmenn í upphafi hjá Skúla, nöfn sem ekki heyrast oft. Af öðrum má nefna Þórólf Árnason, fráfarandi forstjóra Samgöngustofu, sem fer með umsjón flugmála, þ.m.t. flugrekstrarleyfin. Þá kemur að þætti Steve Házy, stofnanda flugvélaleigunnar Air Lease Corporation, en hann er sannarlega örlagavaldur í sögu WOW air. Frá fyrsta fundi þeirra Skúla er sagt á skemmtilegan máta í bókinni þegar Házy flýgur til Íslands 2015 og nánast tilkynnir að hann vilji standa að uppbyggingu WOW air með því að leigja félaginu flugvélar. Sam- band þeirra Skúla er mikið á næstu árum en svo kárnar gamanið í lokin því það er einmitt hin kyrrsetta flugvél WOW á Keflavíkurflugvelli sem var í eigu Air Lease Corporation. Nefndur er til sögu Ben Baldanza, sem áður var forstjóri lággjaldaflugfélagins Spirit Airlines. Baldanza hefur afskipti af WOW air í ársbyrjun 2016 og eitthvað er málum blandið að frumkvæði hvers. Bókin segir að Airbus hafi haft milligöngu um innkomu hans í stjórn félagsins en því hefur Skúli mótmælt. Ben hefur tjáð sig opinberlega um reynsluna af því að sitja í stjórn félagsins frá því snemma árs 2016 og þar til hann sagði sig úr stjórninni í ágúst 2018. Hann birti grein undir fyrirsögninni: Five reasons WOW Airlines failed and two reasons it didn‘t. Tvennt stendur upp úr sem meginástæður að mati Baldanza; skortur á kostnaðaraðhaldi og ákvörðunin um að ráðast í rekstur á breið- þotum. Sú ákvörðun sérstaklega hafi jarðað félagið. Undir það síðasta kemur síðan Bill Franke, eigandi Indigo Partners, mikið við sögu. Sá kann sannarlega að reka lágfargjaldafélög, á hlut í þeim mörgum, m.a. Wizz Air sem flýgur til Íslands. Þrátt fyrir miklar vonir og langan aðdraganda hrökk Indigo frá borði í árs byrjun 2019 þegar dauðastríðinu var að ljúka. Áhugaverðar upplýsingar koma fram um aðkomu Icelandair og þá erindisleysu þrátt fyrir nokkrar tilraunir við að koma WOW til bjargar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.