Þjóðmál - 01.06.2019, Qupperneq 94
92 ÞJÓÐMÁL Sumar 2019
Athugasemdir frá Kjarnanum
Fjölmiðlar
Þjóðmálum hafa borist athugasemdir frá
forsvarsmönnum vefmiðilsins Kjarnans
vegna greinar eftir Sigurð Má Jónsson
sem birtist í vorhefti Þjóðmála á þessu ári.
Þær hafa verið birtar á vef Þjóðmála og
verða einnig birtar hér.
Athugasemdirnar eru svohljóðandi:
—
Vísað er til greinar um Kjarnann sem birtist í
Þjóðmálum, 15. árgangi, vor 2019, 1. hefti.
—
1. Í grein Sigurðar Más segir: „Þegar við blasti
að vinstrimenn myndu gjalda afhroð og missa
stjórnartaumana í kosningum til Alþingis vorið
2013 fóru nokkrir vinstrisinnaðir einstaklingar
úr fjölmiðlum, stjórnmálum og viðskiptalífi
að kanna möguleika á því að stofna nýjan
fjölmiðil sem gæti veitt yfirvofandi hægristjórn
mótstöðu. Niðurstaðan var sú að vefmiðillinn
Kjarninn var formlega stofnaður hinn 1. júní
2013, viku eftir að ný ríkisstjórn Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðisflokks tók til starfa.“
Fyrir þessari fullyrðingu um hvatann af stofnun
Kjarnans, færir Sigurður Már engar sannanir.
Fullyrðingarnar eru rangar og Sigurður Már
hefði getað sannreynt það með því að kynna
sér stofngögn Kjarnans sem eru aðgengileg
í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra hverjum sem
þau vill sækja. Þar kemur skýrt fram hverjir
stofnuðu miðilinn, hvernig staðið var að stofnun
hans og hversu mikið fjármagn var lagt til.
Um var að ræða sex manns, fjóra blaðamenn,
einn fyrrverandi starfsmann fjarskipta-
fyrirtækis og einn markaðsmann. Enginn
í þessum hópi hefur nokkru sinni starfað í
stjórnmálaflokki. Enginn var fjárfestir í öðru
en eigin húsnæði eða gæti fallið undir skil-
greininguna að vera „úr viðskiptalífinu“. Allt
það fé sem lagt var til við stofnunina kom frá
þeim sem stofnuðu miðilinn.
—
2. Í grein Sigurðar Más segir: „Lengst af hefur
fjölmiðillinn orðið að treysta á fórnfýsi eigenda
sinna, sem hafa hlaupið undir bagga, ýmist
með lánum eða auknu hlutafé, en eins hafa
starfsmenn í einhverjum tilvikum þegið hluta-
bréf, sem við þessar aðstæður eru verðlaus.“
Enginn starfsmaður Kjarnans hefur nokkru
sinni þegið hlutabréf frá félaginu. Engin bréf
hafa nokkru sinni skipt um hendur nema að
greitt hafi verið fyrir. Virði hvers hlutar í síðustu
gerðu viðskiptum kemur fram í gögnum
sem skilað hefur verið inn til fyrirtækjaskrár
ríkisskattstjóra líkt og lög gera ráð fyrir.
Fullyrðing Sigurðar Más er því röng og hann
hefði getað komist hjá því að setja fram þá
röngu tilkynningu með því að verða sér úti
um gögn frá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra,
sem eru opinber.
—
3. Í grein Sigurðar Más segir: „Í seinni tíð hefur
miðillinn orðið að skera niður starfsemi sína og
flokkast hann nú undir það að vera eins konar
bloggsíða sem birtir hugleiðingar Þórðar Snæs
[ritstjóra Kjarnans] og treystir mikið á endur-
birtingar frétta úr öðrum fjölmiðlum.“
Fullyrðing Sigurðar Más er röng. Á fyrstu
17 vikum ársins 2019 birtust samtals tíu
skoðanagreinar eftir ritstjóra Kjarnans á vef
hans en önnur efni sem þar birtust voru yfir
eitt þúsund. Skoðanaefni ritstjórans er því vel
undir eitt prósent af birtu efni á vef Kjarnans.
Nær allt það efni er frumunnið, þótt Kjarninn
sannarlega segi frá völdum fréttum sem
birtast í öðrum miðlum og ritstjórn hans telur
að eigi erindi við lesendur hans, sérstaklega
þegar um stór mál er að ræða sem Kjarninn
hefur sjálfur fjallað umtalsvert um í frum-
unnum fréttum og fréttaskýringum.
—