Þjóðmál - 01.06.2019, Qupperneq 95
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 93
4. Í grein Sigurðar Más segir: „Afskriftir og
endurfjármögnun hefur nokkrum sinnum
verið endurtekin, en nú má heita að starfsemi
miðilsins sé í lágmarki.“
Fullyrðing Sigurðar Más er röng […]. Engar
afskriftir, í þeim skilningi að skuldir hafi verið
niðurfærðar án endurgjalds, hafa átt sér stað í
rekstri Kjarnans frá því að hann var stofnaður.
Í hugtakinu endurfjármögnun felst að taka
nýtt lán til að greiða gamalt. Slíkt hefur
aldrei átt sér stað í sögu Kjarnans. Einu lánin
sem hann hefur tekið eru yfirdráttur sem er
nánast ekki ádregin, og er með persónulegri
ábyrgð, og hluthafalán sem síðar var breytt
í nýtt hlutafé. Engin endurfjármögnun hefur
átt sér stað á nokkrum sköpuðum hlut. Hægt
er að nálgast upplýsingar um slíkt í gögnum
sem skilað hefur verið inn til fyrirtækjaskráar
ríkisskattstjóra og í birtum ársreikningum.
Auk þess er rangt að starfsemi miðilsins sé í
lágmarki. Velta Kjarnans hefur þvert á móti
aldrei verið meiri (um 25 prósent vöxtur
milli 2017 og 2018) og kostnaður vegna
framleiðslu á ritstjórnarefni, þ.e. launa-
greiðslur til fastráðinna starfsmanna og
verktaka, hefur aldrei verið hærri.
—
5. Í grein Sigurðar Más segir: „Af upphaflegu
ritstjórninni eru aðeins Þórður Snær Júlíusson
og Magnús Halldórsson eftir, sá síðarnefndi
raunar mjög laustengdur, býr erlendis og sinnir
fyrst og fremst vikuritinu Vísbendingu.“
Fullyrðing Sigurðar Más um framlag og
starfs hlutfall [Magnúsar] er röng[…]. Magnús
Halldórsson hefur verið í 100 prósent starfi á
Kjarnanum frá því að hann var stofnaður árið
2013.
Efni eftir hann birtist nær alla daga á miðlinum,
merkt blaðamanninum. Auk þess ritstýrir
hann útgáfu Vísbendingar, rits sem gefið er
út af Kjarnanum. Sigurður Már hefði getað
komist hjá því að setja fram þessa röngu
fullyrðingu með því að fara inn á vef Kjarnans
og skoða það efni sem þar birtist.
—
6. Í grein Sigurðar Más segir: „… meginvandi
Kjarnans hefur alla tíð verið að lesturinn hefur
látið á sér standa[…] Samræmdar vefmælingar
bentu til þess að honum hefði aldrei auðnast
að ná út fyrir tiltölulega lítinn kjarna lesenda
(svo segja má að miðillinn hafi borið nafn með
rentu). Nú er svo komið að Kjarninn nær hvorki
á blað í vefmælingum Gallups né Modernus.“
Fullyrðing Sigurðar Más um mælingar á lestri
Kjarnans er röng. Hið rétta er að Kjarninn
hefur ekki tekið þátt í vefmælingum þeirra
fyrirtækja sem framkvæma slíka frá því í viku
10 2018. Í mælingum Gallup, sem eru ráðandi
á vefmælingarmarkaði, er auk þess birtur
tæmandi listi yfir alla þá vefmiðla sem greiða
fyrirtækinu fyrir mælingu á lestri sínum.
Það er þar af leiðandi ómögulegt að komast
ekki „á blað“. Þótt miðill sé með einn viku-
legan lesanda þá kemst hann samt á blað.
Full yrðingar Sigurðar Más um lítinn lestur
Kjarnans fela því í sér rangfærslu byggða á
rangri ályktun, sem byggði á rangfærslu.
Sigurður Már hefði getað komist hjá því að
setja fram þessa röngu fullyrðingu með því
að skoða mælingar aftur í tímann, og sjá að
Kjarninn var í mælingum árum saman, en
hefur ekki verið þátttakandi í slíkri frá því í
viku 10 2018. Auk þess hefði Sigurður Már
getað kynnt sér forsendur birtinga á vef-
mælingum, og komist að því að allir sem
greiða fyrir vefmælingu eru birtir á listum
Gallup.
—
7. Í grein Sigurðar Más segir: „Leiða má að
því líkur að Kjarn inn hafi að einhverju leyti
verið fjármagnaður með fjármunum sem eiga
uppruna sinn í skattaskjólum.“
Aðdróttun Sigurðar Más um fjármögnun
Kjarnans er röng. Allir eigendur Kjarnans
eru íslensk félög eða einstaklingar. Sigurður
Már hefði getað komist hjá því að setja fram
þessa röngu aðdróttun með því að nálgast
upplýsingar um hlutafjáraukningar Kjarnans í
fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.
—