Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1955, Page 8

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1955, Page 8
6 18. ágúst voru nokkrar úrkomur, en fremur hlýtt, en það sem eftir var mánaðarins var úrkomulaust, átt norðlæg og heldur kaldara. September. Þessi mánuður er allur óvenju hlýr og má segja, að sumar- hiti haldist óslitið að kalla til þess 24., en þá kólnar heldur í veðri, en þó sýnir lágmarksmælir ekki frost. Lægstur hiti mældist 0.5° þann 12. Frost þetta var þó ekki það mikið, að neitt teljandi sæist á kartöflugrös- um, og stóðu þau því að mestu óskemmd út mánuðinn. Meðalhiti í sept- ember var einhver sá mesti, sem hér gerist, eða um 2.4° yfir meðallag. Úrkoma var mjög lítil allan mánuðinn. Október til desember. Fyrstu 9 dagar októbermánaðar voru fremur hlýir og frostlausir um nætur. Þann 10. til 14. gerði lítilsháttar frost með smávegis snjókomu, sem tók upp aftur um miðjan mánuðinn, og var snjó- laust að kalla allan október og jörð ófrosin. Októbermánuður var því allur mjög hlýr. — Nóvember var allur hlýr, og fór meðalhiti sólarhrings- ins aldrei niður fyrir 0.3° C. Frost var hins vegar alloft um nætur, en jörð fraus ekki að neinu ráði, og var því hægt að vinna að hvers konar jarðabótum allan mánuðinn. — Fyrstu 4 daga desember voru nokkur frost, og komst þá lágmarksmælir niður í 14° frost, en frá 5. til 21. des. var þíð- viðri flestalla daga, snjólaust og sama og ekkert frost í jörðu. Frá 22. til 25. des. voru lítilsháttar frost og smávegis snjór á jörðu, en hann tók upp aftur og var snjólaust í byggð hér um slóðir um áramótin og sáralítið frost í jörðu. Fyrri hluti vetrarins var eindæma góður, enda voru allir mánuð- irnir 2—3 ° yfir meðalhita. Átt var yfirleitt suðlæg, og þótt brigði til norð- anáttar, stóð hún aðeins fáa daga. Úrkoma var yfirleitt nokkur, en megnið af úrkomunni var regn. Árið 1953 má telja mjög gott búskaparár. Grasspretta var einhver sú mesta, sem um getur, og nýting heyja ágæt. Að vísu bar nokkuð á því, að gras væri úr sér sprottið þegar slegið var, bæði í fyrri og síðari slætti. b. Veðrið 1954. Janúar til april. Janúar var hlýr og meðalhiti um 3.6° yfir meðalhita. Helzti kuldakaflinn var frá 16.—20. jan., og komst frostið hæst í 15° þann 20. Annars tók snjó annað slagið upp, og var því lítill snjór í lok janúar, og má segja, að líkt tíðarfar héldist í febrúar og marz, nema hvað heldur kólnaði, en þó eru báðir þessir mánuðir með 1.6° og 1.3° yfir meðalhita. Nokkur snjór var kominn í marzlok, en í heild voru bæði febrúar og marz fremur snjóléttir og frost aldrei mikil. Hinn 28. marz gekk í þíðviðri og má heita, að hlýindi haldist óslitið til 29. apríl, að frá- töldum dögunum 19. og 20. apríl, en þá daga var lítils háttar frost. Átt var suðlæg allan mánuðinn að heita mátti, og úrkoma var lítil. Jörð var
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur
https://timarit.is/publication/1604

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.