Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1955, Side 58
III. Skýrsla Tilraunastöðvarinnar á Sámsstöðum.
árin 1953 og 1954.
KLEMENZ KR. KRISTJÁNSSON
1. Yfirlit um tíðarfarið 1953—1954.
a. Árið 1953.
Veturinn frá nýári fram að apríl var yfirleitt hlýr, snjóar litlir og úr-
koma yfir meðallag. Fremur hægviðrasamt í janúar og febrúar, en mjög
veðrasamt í marz með suðvestan og sunnanátt. Vorið (apríl—maí) var kalt
í byrjun en hlýnaði skjótt í maí. í apríl var vægt frost flesta daga og hiti
því neðan við meðallag. Jarðvinnsla hófst síðustu dagana af apríl. Jörð
var að mestu klakalaus eftir hlýviðrasaman vetur. Maí í meðallagi hlýr,
fremur þurrviðrasamur, svo að gróðri fór ekki vel fram. Kornsáning hófst
3. maí og var lokið um 9. sama mán. Kýr voru fyrst látnar út 21. maí, en
þá var lítill hagi. Sauðburður gekk vel, því veður var oftast þurrt og milt
með töluverðu sólfari. Kartöflur voru settar niður 15,—30. maí.
SumariÖ (júní—september). Snmarið allt var fremur hagstætt. Júní
var hagstæður öllum gróðri. Víða var komin góð slægja á tún 15.—20. júní,
en þá gerði votviðri, er héldust til 7. júlí. Var þá víða byrjaður sláttur og
nokkuð úr sér vaxið þar sem beðið var eftir þurrara veðri. Eftir 7. júlí
varð hin hagstæðasta heyskapartíð, með góðum hita og sólfari miklu. Náð-
ust þá töður allar, þar sem slegið var í júlí og ekki hafði verið vorbeitt.
Bygg skreið með fyrra móti, um 10. júlí, og hafrar viku síðar. Ágúst var
einnig hlýviðrasamari, tíðari úrkoma, en þó oft góðir þurrkar. Varð svo,
að hey náðust með góðri nýtingu annað slagið, og víða alhirt öll hey í
mánuðinum. Bygg varð fullþroska í ágúst og þá uppskorið síðustu daga
hans. Grasfræ þroskaðist einnig með allra fyrsta móti. Septembermánuður
var einnig yfir meðallag hlýr, en talsvert votviðrasamur, svo að erfiðlega
gekk með upptöku kartaflna og fór svo, að ekki náðust þær upp fyrr en
eftir septemberlok. Uppskera varð mikil og góð, svo að með einsdæmum
má kalla, enda tíðin einmuna hagstæð frá því í maí og fram að 20. sept.
Sumarið allt var með ágætum fyrir vöxt allan og gróðurnýtingu.
Haustið (október—nóvember) má telja eitthvert hið óhagstæðasta um
langt árabil. Úrkoman var gegndarlaus og næstum þreföld á við meðallag.