Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1955, Page 76
74
Árlegur áburður er: 100 kg K, 90 kg P og 20.5 kg N á ha.
Grænfóðurtilraunirnar, sem eru í þessu yfirliti, hafa verið gerðar á
móajörð og sömu reitum bæði árin. Bæði meðaltal áranna og einstök ár
benda til þess, að talsverður ávinningur sé að því að nota belgjurtir með
höfrum til ræktunar á sumar- og haustfóðri handa mjólkurkúm, kemur
þetta einkum fram í því, að þar sem helmingur eða meir af fóðrinu eru
ertur og flækjugras, verður það hagkvæmara fóður til mjólkurframleiðslu
en hafrar einir. Fyrirkomulag allt var það sama og greint er frá í síðustu
skýrslu á bls. 55.
B. Tilraunir með komrækt.
Eftirfarandi yfirlit sýnir árangur af kornrannsóknum frá árunum 1952
og 1953. Sýnir fyrra árið lakari korngæði, og veldur hér frostið 28. ágúst,
er tók fyrir aukinn þroska, bæði á byggi og höfrum. Kemur þetta einkum
fram í kornaþyngdinni, að hún er talsvert minni en síðara árið. Grómagn
kornsins er og einig lægra en gott útsæði þarf að hafa. Er þó hér undan-
skilið Flöjabyggið, er spíraði ágætlega, þó þyngd þess sé 25% minni en í
meðalári. Síðara árið gróa flestallar tegundir ágætlega, og kornaþyngd er
einnig ágæt, enda mun hagstæðara sumar, þó haustið væri slæmt.
Kornrannsóknir 1952.
Hektólítra lOOOkorna
Tegundir Vaxtartxmi Grómagn % þyngd í g þyngd í g
Dönnesbygg ........................ 128 72.0 50.0 29.5
Sigurkorn ......................... 132 64.0 42.0 23.0
Eddabygg .......................... 134 44.0 46.0 23.5
Flöjabygg ......................... 126 100.0 48.0 25.0
Sv. Orion-hafrar................... 117 78.0 .. 33.0
Sv. Samehafrar .................... 117 64.0 .. 32.0
Viðarhafrar ....................... 144 54.6 .. 29.0
Dönnesbygg, Dagverðareyri .... .. 85.0 .. 23.0
Kornrannsóknir 1953.
Hektólítra 1000 koma
Tegundir Vaxtartími Grómagn % þyngdíg þyngdíg
Dönnesbygg ........................ 123 93.3 .. 36.0
Sigurkorn ......................... 125 99.3 .. 30.0
Eddabygg .......................... 124 95.0 .. 36.0
Flöjabygg ......................... 123 71.3 .. 34.0
Sv. Orion ......................... 124 67.0 .. 39.0
Beiarhafrar ....................... 124 59.3 .. 39.0
Viðarhafrar ....................... 124 95.0 .. 36.5
Dönnesbygg, Dagverðareyri .... 130 99.0 .. 35.4