Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1955, Qupperneq 79
77
sæðisins mest, en þó minnsta uppskeran af ha. Hins vegar verður beztur
árangur í d-lið, þar sem útsæðismagnið er mest, hvort heldur litið er til
heildaruppskeru eða uppskeru að frádregnu útsæði. Svipaðan árangur
gefa c-liður og e-liður. Virðist því ekki vera hentugt að setja tvær kartöfl-
ur saman. Annars verður ekki að þessu sinni dregin fullnaðarályktun af
tilrauninni.
Áburðurinn var 50 smál. haugur -þ 500 kg garðáburður (10—12—15)
á ha. Sett var niður 2. júní í magra leirmóajörð og forræktað korn. Upp
var tekið 16. september. Var vaxtartíminn því 105 dagar.
Margf. Útsæði Uppsk. hkg/ha Söluh. Hlut-
Tilraunaliðir: upps. hkg/ha Sm.% Alls hkg/ha föll
a. 2 kartöflur á m............... 15.1 13.4 4.1 202.5 189.1 100
b. 3 kartöflur á m............... 11.2 20.0 4.3 223.9 203.9 111
c. 4 kartöflur á m............... 10.6 26.8 6.4 284.7 257.9 141
d. 5 kartöflur á m............... 9.1 33.4 7.8 304.4 271.0 150
e. 3 X 2 kartöflur á m........ 8.6 33.4 7.7 287.6 254.2 142
Afbrigðatilraunir með kartöflur.
Þessar tilraunir hafa verið arerðar á mögrru mólendi, forrækt var bygg.
Áburður var 50 smál. hesthtishaugur og 500 kg bl. garðáburður á ha
(10—12—15). Tilraun nr. 1 hefur staðið lítið breytt bæði árin, og upp-
skera verið fremur góð bæði árin, en þó einkum fyrra árið, enda var það
mun hlýrra en það síðara. Beztu matarkartöflurnar eru Gullauga og
Rauðar íslenzkar, þar næst Alpha og Kerr’s Pink. Ben Lomond, Rosefolia
og Green Mountain eru kartöfluafbrigði, er gefa meiri uppskeru, en þær
eru hins vegar verri matarkartöflur, sem fáir vilja, ef betri afbrirvði fást.
Öll afbrieðin í tilraun 2 1953 gáfu allmikla uppskeru, en þau hafa öll,
að undanteknu Gullauga, reynzt lélegar matarkartöflur og verri en Ben
Lomond og Green Mountain í tilraun nr. 1. Var þess vegna hætt við
áframhaldanli tilraunir með nr. 2—6 í tilraun nr. 2, en teknar upp nýjar
tilraunir með kartöfluafbrigði, er Atvinnudeild Háskólans sendi hingað
til reynslu. Yfirlitið sýnir árangur tilraunanna síðastl. sumar. Mandel
frá Stokkhólmi er smávaxin aflöng íbogin kartafla, er gefur litla upp-
skeru með talsverðu smælki. Ágæt matarkartafla og þurrefnisríkust af
þeim afbrigðum, sem hér hafa verið notuð. De Vernon (40) og Sequoia
(131) eru miklu lakari matarkartöflur, en gefa miklu meiri uppskeru.
Katahdin III (119) gefur þykkar, aflangar kartöflur og óvenjumikla upp-
skeru en er rvrust af þurrefni allra þeirra afbrigða, sem í ræktun voru
hér á búinu 1954. Hvort eitthvert þessara afbrigða fjögurra á framtíð hér
á landi er ekki auðvelt að spá, en áframhaldandi tilraunir ættu að kveða