Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1955, Page 82

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1955, Page 82
80 Túnræktin hefur aukizt um 2 ha bæði árin, og hefur töðufall tún- anna lítið aukizt við það, þar sem ekki er borinn áburður nema mjög takmarkað á l/3 hluta túnanna, sem aðallega eru notuð til beitar fyrir nautpening búsins. Hins vegar mætti auka heymagnið mikið með aukn- um áburði, ef á þyrfti að halda til stærri búreksturs, en til þess vantar byggingar. Á þeirri ræktun, sem hér er orðin, mætti hafa allt að helm- ingi stærra bú, en til þess skortir fjármagn. Mundi það eflaust borga sig betur, ef þessi skilyrði væru nýtt að fullu í stað þeirrar bústærðar, sem nú eru húsakynni fyrir. Kartöflurœktin. Hún hefur, eins og undanfarin ár, verið auk tilrauna framleiðsla á stofnútsæði af Gullauga og Ben Lomond. Fyrra árið mis- tókst stofnræktin vegna sjúkdóma (aðallega stöngulveiki), en síðara árið var fengið útsæði frá Akureyri til framleiðslu hér á tilraunastöðinni. Reyndist það vel sl. sumar. Kartöfluuppskeran árið 1953 varð mikil, en seldist ekki, eins og víðar, nema að örlitlu leyti. Uppskeran 1954 varð all- góð að vöxtum og ágæt að heilbrigði og er nú seljanleg. Kornrœktin. Hún hefur aðallega verið á svipaðri landstærð bæði árin. Uppskeran haustið 1953 varð með talsverðum vanhöldum vegna votviðra í september og október. Urðu úti um 2 ha af hafrakorni sem aldrei náðist, og sumt af því, sem uppskorið var, skemmdist vegna vætu. Uppskeran hefur því orðið minni, komin í hlöðu, en efni stóðu til, því að akrarnir voru víða vel vaxnir og með góðu og vel þroskuðu korni. Sumarið 1954 varð uppskera einnig tæplega í meðallagi að vöxtum, og kom hér til að hafrarnir í sandgirðingu stöðvarinnar ódrýgðust tölu- vert vegna grágæsa, er sóttu í kornið fullþroskað, og svo varð einnig vöxtur þar minni en venjulega vegna vorkulda og þurrka. Bæði árin var sáningu lokið um 9. maí, og þroskun varð síðast í ágúst fyrir bygg, en um miðjan september fyrir hafra. Eins og að undanförnu hefur stöðin selt korn til þroskunar til þeirra, sem áhuga hafa fyrir kornrækt en hafa ekki útsæði af eigin ræktun. Vorið 1953 var selt í 23 staði 3620 kg bygg og hafrakorn og vorið 1954 4247 kg á 14 staði. Er hér meðtalið útsæði það, sem notað var í tilrauna- stöðinni. Áhugi manna virðist ekki vera almennur fyrir því, að auka kornrækt þrátt fyrir það, að hún getur verið hagkvæm víða í veðursælli sveitum landsins. Er og heldur ekkert gert af hendi þess opinbera til stuðnings því, að framleiðsla á korni geti orðið almenn, þar sem hún á við á annað borð. Grasfrœrcektin hefur verið lítil bæði árin, því vegna anna við tilraunir er nú erfiðara en áður að fást við grasfrærækt. Kemur hér og til stöðugt hækkandi kaupgjald og skortur á verkafólki. Frærækt hefur verið á rúm- um 1 ha hvort ár um sig, og nú sl. vor var aukið við l/2 ha. Uppskera
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur
https://timarit.is/publication/1604

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.