Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1955, Page 100
98
3. Starfsskýrsla.
a. Framkvœmdir drin 1953 og 1954.
Árið 1953 var ekki unnið að neinum nýjum byggingaframkvæmdum.
En lokið var við að sementskústa þurrheys- og votheyshlöðu við fjárhúsin,
lokið við að steypa súgþurrkunarganga í gólfið í hálfri hlöðunni, og blás-
ari og mótor settur upp í heyskaparbyrjun.
Um sumarið var íbúðarhúsið litað utan með Snowcem á milli stein-
anna.
Að jarðrækt var allmikið unnið. Grasfræi var sáð í ca. 2.5 ha i Tanga,
og auk þess herfað allmikið í tæpum 4 ha og jafnað ruðningum og ýtt
af þúfum og herfað lauslega í allstóru stykki í Nýjalóni.
Árið 1954 voru málaðar í íbúðarhúsinu tvær stórar stofur og eldhús.
Um haustið voru framkvæmdar nokkrar endurbætur á fjárhúsunum. Þak-
rennur settar, byggt strompþak yfir mæni (15 cm ofan við jaðarborðin,
er fyrir voru) og skipt um glugga. Voru settir í húsin völtugluggar frá
Dröfn í Hafnarfirði. Of snemmt er að fullyrða um árangur þessara glugga,
en ætla má þó, að þeir verði mjög til bóta og sennilega til stórbóta. Um
haustið var hlaðið úr grjóti dálítið anddyri við fjóshlöðuna og sett á það
asbestþak. Fékkst þannig geymslurúm fyrir 1 dráttarvél eða jeppa. Hey
er ekki sett í nokkurt rými í miðhluta hlöðunnar, svo að í vetur var unnt
að geyma dráttarvélarnar í húsi. Anddyrið gerir það að verkum, að ekki
fennir eins að dyrunum og áður gerði.
Að jarðvinnslu var allmikið unnið. Um vorið var gengið frá og sáð í
3.6 ha í Tanganum. í það var ekið meira en árs forða af sauðataði, auk
tilbúins áburðar. Síðastliðið haust var brotið stórt stykki í Haganum með
plógherfi, ca. 8—10 ha, en ekki tókst að herfa það nægilega vegna frost-
anna. Allmiklu var og jafnað út af ruðningum frá skurðum suður með
vegi og neðan við Hamra. Þar var ruðningnum jafnað yfir stórt stykki
og þúfur heflaðar um leið og gengið svo frá, að aðeins vantar nokkra
herfingu með vorinu. Mun þar um að ræða 2—3 ha, og er hugmyndin að
slétta þetta og láta svo gróa, en landið virðist ætla að spretta ágætlega eftir
þurrkunina.
Keypt var á árinu David Brow dísildráttarvél, 25 D, og með henni
sláttuvél og jarðtætari. Kostuðu þessi tæki um 47 þús. kr. Vélin var notuð
við heyvinnu í sumar og er hið ágætasta tæki og mjög sparneytin en afl-
mikil. Tætarinn var settur saman og aðeins reyndur í haust, en frostin
hindruðu að unnt yrði að hefja vinnslu með honum. Bíður það því vors,
en hér er mikið land, er ætla má að vel henti slíku tæki.