Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1955, Side 102
100
Enn er látið í timburgryfjuna, er gerð var óþurrkasumarið 1950. Leigðar
slægjur voru 150 hestar.
Kartöfluuppskera varð mjög léleg, og skemmdist auk þess nokkuð af
henni í frosti. Áætla ég nothæfa uppskeru ca. 15 tunnur.
Rófur fengust ca. 12—15 tunnur en voru yfirleitt smáar. Stofnútsæðis-
ræktunin hér var lögð niður á þessu ári, og framhaldsræktunin hér austan
lands einnig. Hvítkál og blómkál varð að engu gagni, en gulrætur spruttu
allvel í gömlum kartöflugarði, og grænkál og annað grænmeti sæmilega.
Kálmaðks varð allmikið vart 1953, en mjög lítið 1954.
Afurðirnar. Kúamjólk nam á árinu 1953 alls 14.236 kg. Á árinu 1954
nam kúamjólkin 14.360 kg.
Um vorið 1953 fæddust 388 lömb, en 23 af þeim fórust. Á fjall fóru
því 365 lömb. Þar af voru 73 undan gimbrum. Meðalfallþungi slátraðra
lamba var 13.77 kg. Ull vó alls 600 kg. Meðalvigt á lífgimbrum 20. okt.
var 38.8 kg.
Vorið 1954 fæddust 514 lömb, þar af 90 undan gimbrum, en alls fór-
ust 36 lömb. Bar nokkuð á lambablóðsótt, einkum í gimbralömbum, þrátt
fyrir bólusetningu mæðranna. Á fjalli voru því 478 lömb. Meðalfallþungi
sláturlamba var 13.36 kg. Ull varð alls 938 kg. Meðalvigt á lífgimbrum
8. nóv. var 36.5 kg.
Starfsfólk var álíka margt og að undanfömu. Frú Anna Jósafatsdóttir
var ráðskona bæði árin. Fjármenn voru fyrri veturinn Jón Jónsson og
Guðmundur Guðmundsson, en síðari veturinn Jón Jónsson og Jónas Þor-
steinsson. Jón Jónsson hafði hér sérheimili með fjölskyldu sinni frá því
haustið 1952 til vors 1954. Kýr og hesta annaðist fyrri veturinn Ingvi Ing-
ólfsson, en þann síðari Stefán G. Sveinsson. Á sumrin voru 12—15 manns
í heimili.
C. Ýmsar upplýsingar og athuganir 1953 og 1954.
Hinn 20. júlí 1954 fékk ég að láni hið nýja tæki Sveins bónda á Egils-
stöðum, Sláttukónginn svonefnda. Var slegið með honum stykki í Tang-
anum, eins og tveggja ára sáðslétta, og kúffylltar báðar votheyshlöðurnar
við fjárhúsin. Jón Sveinsson vann með „kónginn“, en notuð var til að
knýja hann hin nýja dráttarvél búsins, David Brown. Vélin slær, saxar
og blæs upp á bíl eða vagn. Tækið var flutt á milli á bíl. Saxaða heyið er
ágætlega verkað, þrátt fyrir það, að grasið var allblautt, er slegið var. Er
hér tvímælalaust um mjög hagkvæma heyskaparaðferð að ræða.
Hér var framkvæmd fóðurtilraun á lembdum gemlingum veturinn
1953—1954. Voru hafðir tveir flokkar, 70 lömb í hvorum, og alin mis-