Heilsuvernd - 01.03.1951, Page 11
HEILSUVERND
3
að tilrauninni lokinni og
fundu engin sjúkleg ein-
kenni. Meðan á tilraun-
inni stóð, höfðu verið
gerðar á þeim margvís-
legar rannsóknir til þess
að fylgjast með efna-
skiptum og öðrum lífs-
störfum. Þess skal getið,
að Madsen var vandlát-
ur með kartöflur.
EinhliÖa kjötneyzla.
Eins og sagt er frá í síð-
asta hefti, hafði Hind-
hede alizt upp á mjólk-
ur- og jurtafæðu en við
lítið kjötmeti. Nú gerði
hann tilraunir á sér og
tilraunamönnum sínum
með einhliða kjötneyzlu.
Eftir eina 2-3 daga urðu
þeir veikir, fengu velgju
eða uppsölu og illa lykt-
andi hægðir. Gáfust þeir
upp við svo búið.
Tilraunir með hvítt
Alfred Jörgensen, þegar hann haföi hveiti. Þá gerðu þeir til-
Ufaö á kartöflum í 1% ár. raun meg ag jjfa ein.
göngu á hvítu hveiti. Eftir fáa daga tók að bera á magn-
leysi, svima og ógleði, og á 10.—12. degi gáfust þeir upp.
Svipaðar tilraunir gerðu aðrir manneldisfræðingar síðar.
T. d. lét prófessor Gánslen nokkra stúdenta borða kjöt
og franskbrauð eingöngu ásamt vatni í 10 daga. Þeir
urðu allir veikir. Rannsókn sýndi, að æðarnar höfðu tekið
sjúklegum breytingum. Það tók heilan mánuð að lækna
þetta.