Heilsuvernd - 01.03.1951, Qupperneq 16
HEILSUVERND
Dr. Kirstine Nólfi:
Hvernig ísland hom mér fyrir sjónir
Það mun aðallega vera vegna þess hve afskekkt Island
er, að það hefir varðveitt tungu sína svo hreina og óspillta
af erlendum áhrifum. En þjóðin sjálf hefir einnig haft skiln-
ing á varðveizlu tungu sinnar. Hún hefir sneitt hjá að
taka upp í málið erlend orð, heldur myndað ný orð af eigin
stofni og á þann hátt varðveitt hið gamla móðurmál allra
Norðurlanda, eins og það var frá fyrstu tímum, er við þekkj-
um, varðveitt það í hinu talaða orði, í hinu lifandi máli,
eins og hún hefir í handritunum varðveitt hina uppruna-
legu fornnorrænu tungu. — Það hefði átt að skila íslend-
ingum þessum handritum, sem gefa svo góðar upplýsingar
um trú, siði, venjur og lifnaðarhætti hinna fornu tíma,
þegar árið 1930. Það hefði verið sanngjarnt og rétt af
Dana hálfu. En þetta verður gert, þegar við höfum fengið
nógu langan tíma til að átta okkur.
Það næsta, sem vekur eftirtekt á íslandi, er íslenzka gest-
risnin, hvort sem komið er til Sveins Björnssonar, forseta,
eða annarra. Til þess hafa menn bæði tíma og ráð. Og þessi
gestrisni er veitt af slíkri alúð og Ijúfmennsku, að manni
hlýnar um hjartaræturnar.
Þá er það dálæti Islendinga á lifandi blómum. Þessi litlu,
fögru, litskrúðugu sumarblóm sér maður allsstaðar, og þau
þrífast svo vel á Islandi. Og mér komu þau mjög á óvart,
því að ég hafði haldið, að þau gætu ekki þrifizt svo norðar-
lega á hnettinum. Fólk hefir einnig unun af að prýða heim-
ilin með lifandi blómum og grænum jurtum og búa til hand-
ofna og handsaumaða dúka í mjúkum, vel samsettum litum
og fallegum munstrum.