Heilsuvernd - 01.03.1951, Page 21
HEILSUVERND
Fósturláti afstýrt með hráfæði
Blóðrannsóknir á fjölda manna hafa sýnt, að af hverjum
100 manns tilheyra um 85 þeim blóðflokki, sem kallaður
er Rh-þ, en um 15 blóðflokkinum Rh-L. Nú hefir reynslan
sýnt, að ef kona með Rh-=- blóð verður þunguð af völdum
Rh-þ manns, er mikil hætta á, að konan verði veik og
missi fóstrið eða barnið fæðist andvana. Við þessu þekkja
læknar engin ráð, og hafi þetta komið einu sinni fyrir, verð-
ur því ekki afstýrt með neinum venjulegum læknisráðum,
að það endurtaki sig, ef konan verður barnshafandi aftur.
Þeim mun merkilegri er eftirfarandi frásögn af konu úr
þessum hættulega blóðflokki (Rh-f-). Hún hafði misst
fyrsta fóstur sitt, var komin langt á leið í annað sinn, og
beztu læknar töldu vonlaust að geta bjargað barninu. Þá
sneri hún sér til frú Ebbu Waerland, konu Are Waerland, og
fer hér á eftir útdráttur úr frásögn hennar, sem birtist í
„Waerlands Mánads-Magasin“, 9. hefti 1950.
Hin unga kona, sem var þýzk, Edith Ackerman að nafni,
og búsett í Uppsölum, leitaði til frú Waerland í lok maí-
mánaðar 1950. Hún hafði misst fóstur sitt á fimmta mánuði
í ágúst 1949 eftir þriggja mánaða legu í „Akademiska Sjuk-
huset“ í Uppsölum. En þar lá hún vegna mikillar eggja-
hvítu í þvaginu, og fengu læknarnir ekkert við því gert.
Nú var hún komin rúma sex mánuði á leið og þjáðist aftur
af mikilli eggjahvítu. Hún hafði kynnzt kenningum Waer-
lands og áhrifum viðurværisins á heilsufarið, því að maður
hennar hafði með breytingum á viðurværi sínu læknað sig
af sjúkdómum, sem hann hafði gengið með í 14 ár og venju-
legar læknisaðgerðir fengu enga bót á ráðið. Sjálf hafði
hún tekið að nokkru leyti upp mataræði eftir kenningum
Waerlands. En hún hafði ekki getað framfylgt því út í