Heilsuvernd - 01.03.1951, Blaðsíða 22
14
HEILSUVERND
æsar, þar eð 'hún keypti sér fæði í matsöluhúsum. Auk
þess hafði hún ekki þekkingu á að haga maíaræði sínu eftir
sjúkdómsástandi sínu, sérstaklega með hliðsjón af sjúkiegu
ástandi nýrnanna.
Frú Waerland hafði oft leiðbeint barnshafandi konum
til þess að losna við eggjahvítu, en engin þeirra hafði til-
heyrt þessum blóðflokki, og gat hún því engar ákveðnar
vonir gefið hinni ungu konu, sem kvaðst samt í einu og
öllu mundu fara að ráðum hennar. Frú Waerland lét henni í
té lýsingu á viðurværi, er innihélt mjög lítið af eggjahvítu,
engar ávaxtasýrur og mjög lítið af sýrugæfum matvælum.
Auk þess átti konan að drekka mikið vatn og seyði af fífla-
blöðum (hrafnablöðkum) og netlum og kartöflusoð. Við
hægðatregðunni átti hún að borða á morgnana hveitihýði
og hörfræ, sem legið hafði í vatni yfir nóttina. Aðallega átti
hún að nærast á grænum blaðjurtum og kartöflum.
Á leiðinni heim til Uppsala varð frú Ackerrnan fyrir
smáslysi. I samráði við frú Waerland lét hún skoða sig
í „Karolinska Sjukhuset" í Stokkhólmi, og þar var upp
kveðinn sá úrskurður, að ekki mundi vera hægt að bjarga
barninu. Sneri hún við svo búið heim aftur og fylgdi út
í æsar ráðleggingum frú Waerland.
Þremur dögum eftir heimkomuna lét hún rannsaka sig
í „Akademiska Sjukhuset". Urðu læknarnir ekki lítið undr-
andi, er þeir fundu, að eggjahvítan hafði minnkað. Bat-
inn hélt áfram dag frá degi. Að hálfum mánuði liðnum bað
frú Waerland hina ungu konu að koma til Stokkhólms til
rannsóknar hjá dr. Svanberg, sem er aðstoðaryfirlæknir við
fæðingarsjúkrahúsið. Rannsókn leiddi í ljós, að engxn eggja-
hvíta var í þvaginu og dllt í bezta horfi.
Hér höfðu einfaldar en nákvæmar mataræðisreglur,
byggðar á líferniskerfi Waerlands, ráðið bót á alvarlegu
sjúkdómsástandi, sem færustu sérfræðingar læknavísind-
anna stóðu magnlausir og ráðþrota gagnvart. Og þar sem
frú Ackerman hafði stöðugt verið undir lækniseftirliti, og
lét skoða sig við og við síðustu mánuði meðgöngutímans