Heilsuvernd - 01.03.1951, Side 24
16
HEILSUVERND
B2, D, E, K) og steinefnum, m. a. járni. Þær hafa þann
kost fram yfir kjöt og fisk, að þær eru lútargæfar (kjöt
og fiskur mjög sýrugæft). Geta má þess, að úr þeim má
búa til einskonar mjólk, sem hefir marga beztu eiginleika
mjólkur og getur komið sér vel sem sjúkrafæða, bæði
handa börnum og fullorðnum, sem þola ekki mjólk. Or
sojabaunum má búa til marga ljúffenga rétti, sem standa
kjötréttum ekki að baki.
Og loks er að telja þann kostinn, að þær eru mjög ódýr-
ar, samanborið við kjöt, sérstaklega sé miðað við næringar-
gildi. Verðið á sojabaunum er nú kr. 4,25 kg. Svarar það til,
að hverjar 1000 hitaeiningar kosti 1 krónu, en í dilkakjöti
kosta 1000 hitaeiningar nálægt 5 krónum. Fyrir neytendur
er því 5 sinnum dýrara að kaupa dilkakjöt í mat en soja-
baunir, og er ekki erfitt að gera sér í hugarlund, hvílíkur
búhnykkur þessi skipti væru fyrir fátæk heimili.
Mér er ekki kunnugt um útflutningsverð á dilkakjöti. En
sé gert ráð fyrir svipuðum hlutföllum á erlendum mark-
aði og að ofan greinir milli kjöts og sojabauna, þá þarf
ekki nema um fimmta hluta þess gjaldeyris, sem dilkakjötið
gefur í aðra hönd, til þess að kaupa inn sojabaunir, er inni-
haldi jafnmikið næringargildi — og þó miklu fjölbreyttara.
Fjórir fimmtu hlutar af andvirði útflutta kjötsins yrðu því
hrein gjaldeyrisöflun — og enn meira, ef ekki yrði talið
nauðsynlegt að bæta kjötið upp að fullu.
Björn L. Jónsson.
FRÁ HAPPDRÆTTINU.
Kl. 11 á aðfangadag var dregið í happdrætti NLFf hjá borgarfóget-
anum í Reykjavík. Upp komu þessi númer: 44301 (húsgögn). 43249
(kaffistell). 38546 (ljóslækningalampi). 26937 (Elna-saumavél). 3999
(hrærivél). 3355 (málverk). 616 (púði). 7001 (flugfar). 28039 (pening-
ar). 313 (peningar).
Hagnaður af happdrættinu nemur tæplega 100 þús. krónum.
Happdrættisnefndin vill hér með færa félagsmönnum og öðrum,
sem aðstoðuðu á einn eða annan hátt við happdrættið, beztu þakkir.