Heilsuvernd - 01.03.1951, Blaðsíða 26
HEILSUVERND
Lshnor skýra orsahir hrabbameins
1 greinaflokkinum „Vörn og orsök krabbameins" eftir
Björn L. Jónsson, í 4. og 5. árg. HEILSUVERNDAR, og
víðar í ritinu, hafa verið leidd sterk rök að því, að krabba-
mein stafi af röngum lifnaðarháttum og skýrt með fjölda
dæma. Margir læknar hafa haldið þessari kenningu fram,
en læknisfræðin almennt hefir ekki viðurkennt hana. Á
síðari árum hafa læknavísindin þó nálgazt hana meir og
meir og staðfest í ýmsum greinum. Merki þess eru t. d. um-
mæli dr. Halldórs Hansen um, að krabbamein í maga komi
oftast upp úr magabólgum, sem stafi af því, að þessum
líffærum sé misboðið. Og nýlega hefir prófessor Níels Dung-
al ritað fróðlega grein í Fréttabréf um heilbrigðismál (nóv.
1950) og kveður þar svo að orði, að næringartruflanir séu
viðurkenndar sem ein af orsökum krabbameins, og enn-
fremur að orsaka þess sé að leita ,,í röngu fæði, hormóna-
öllu er hrært saman, unz það er sem þykkur grautur. Feiti borin
í vöflujárnið og vöflurnar bakaðar móbrúnar.
Hrökkbrauð meö kúmeni. 250 gr. heilhveiti; 60 gr. smjör-
líki; 1 matsk. púðursykur; 1% dl. hvítöl.
Öllu því þurra er blandað saman, smjörinu núið í, vætt í með ölinu
og deigið hnoðað. Flatt út næfurþunnt og skorið með kleinujárni í
ferhyrntar kökur. Er bezt að breiða deigið út á plötunni og skera
einnig kökurnar þar. Síðan eru þær stungnar og bakaðar ljósbrúnar.
Brúnkaka. 500 gr. heilhveiti; 250 gr. smjörlíki; 250 gr. púður-
sykur; 3 egg; 2% dl. mjólk; 100 gr. rúsínur; 1 tesk. sódaduft;
1 tesk. allrahanda; % tesk. negull; 1 tesk. kanell; 1 tesk.
kardímommur; 50 gr. súkkat.
Smjörið er linað og hrært með sykrinum, eggjarauðurnar hrærð-
ar í ein og ein í senn. Þá er heilhveitið ásamt sódaduftinu og krydd-
inu hrært í jafnhliða mjólkinni ,og síðast er þeyttum hvítunum bland-
að í deigið og það sett í vel smurt mót og bakað í 1 klst.