Heilsuvernd - 01.03.1951, Síða 31
HEILSUVERND
23
anna. Og foreldrar þeirra eru svo hyggin að láta þau fara
sínu fram.
Auðvitað verður ekki sannað, að hráu kartöflurnar hafi
læknað Svölu af magaveikinni. Það mætti segja, að tilvilj-
un hafi ráðið því, að niðurgangurinn hætti, er telpan byrj-
aði að borða þær. En hitt er víst, að einhvert innra skyn
hefir komið henni á kartöfluátið. Augnabliksduttlungar
voru það ekki, fyrst hún hélt því áfram og systkini hennar
tóku það upp líka. Og vissulega má líta á þetta dæmi sem
staðfestingu á þeirri kenningu dr. Nolfi og margra annarra,
að hráar kartöflur innihaldi næringarefni eða heilsugefandi
eiginleika, sem soðnar kartöflur skortir.
Frásögnin um Svölu er skráð eftir foreldrum hennar, frú
Helgu Jósepsdóttur og Jóni Guðmundssyni, bónda að Mola-
stöðum í Fljótum í Skagafirði.
B. L. J.
AÐALFUNDUR NLFR
var haldinn 15. febrúar 1951. Á árinu hafa veriö haldnir 8 félagsfund-
ir og 3 skemmtifundir, og farið var í grasaferð til Hveravalla. Stjórn-
arfundir voru 14. Efnt var til hádegisverðarboðs í Sjálfstæðishúsinu
og matreiðslusýningar í húsnæði Húsmæðrafélags Reykjavíkur, Borg-
artúni 7. Á félagaskrá eru 1032 félagar, bar af 87 ævifélagar. Hafa
þá verið teknir af félagaskrá allir þeir, er fluttir hafa verið I önnur
félög eða inn á félagaskrá hjá NLFl, samkvæmt samþykkt síðasta
landsþings. Hefir félagssvæði NLFR verið ákveðið Reykjavík og
Hafnarfjörður og næsta nágrenni, þar á meðal Álftanes og Mosfells-
sveit.
Að lokinni samþykkt reikninga fóru fram kosningar, og var stjórn-
in öll endurkjörin: Björn L. Jónsson (form.), frú Steinunn Magnús-
dóttir, Ágúst Sæmundsson, Björgólfur Stefánss. og Marteinn M. Skaft-
fells. 1 varastjórn voru kosnir: Böðvar Pétursson, Þorvaldur Jónsson
og Sigurður Einarsson. Endurskoðendur Björn Svanbergsson og Dag-
bjartur Gíslason og til vara Valgeir Magnússon. Ennfremur voru
kosnar fastanefndir.
Samþykkt var tillaga frá Böðvari Péturssyni um að efna til fjall-
gönguferða í nágrenni Reykjavíkur.
Að lokum sýndi Helgi Tryggvason litmyndir, sem hann tók í
Vesturheimsför sl. sumar, og vöktu þær mikla hrifningu.
Fundarstjóri var Steindór Björnsson frá Gröf.