Heilsuvernd - 01.03.1951, Qupperneq 39
HEILSUVERND
31
hefir svissneski læknirinn Ralph Bircher, sonur hins heimsfræga
náttúrulæknis Bircher-Benners, sem lesendur Heilsuverndar kannast
einnig viö, skýrt frá enn einu dæmi, sem nú skal greina.
1 Suður-Ameríku býr indíánakýnþáttur, sem Karai-Guarani nefnist.
Þeir lifa mjög einföldu og frumstæðu lífi, andlega og líkamlega.
Meðal þeirra finnast engin merki æðri ytri menningar, en segja má,
að innri menning þeirra sé þeim mun meiri. Lýsir hún sér i andlegu
og líkamlegu jafnvægi og fegurð, hófsemi, fullkominni heilbrigði og
lífsgleði.
Lifnaðarhættir þessa fólks eru mjög einfaldir, og eftir því heilnæm-
ir. Þeir eru hreinlátir, stunda köld böð og leggja áherzlu á nægan
svefn og hvíld. Sparneytnir eru þeir og nærast á einfaldri, náttúr-
legri fæðu.
Mikið borða þeir af aldinum, einkum að morgninum. Aðalávöxturinn
er ananas, sem þeir borða bæði nýjan og þurrkaðan. Þá er mikið
borðað af grænmeti, sem líkist spínati, hnetum og villtu hunangi,
en lítið af baunum. Mjólk þekkist ekki né mjólkurafurðir, og kjöt
ekki, svo að teljandi sé, aðeins lítið eitt af kjöti af villtum dýrum
endrum og eins.
Spírað korn nota þeir mikið til matar. En saltan mat borða þeir
aldrei og álita, að það stytti lifið að bæta salti i matinn. í þess stað
nota þeir seyði af steinefnaríkum jurtum. Þeir líta ekki við sæl-
gæti og langar ekki í það. Mat sinn tyggja þeir vandlega, gefa sér
góðan tíma til að borða og forðast samræður og önnur truflandi á-
hrif, meðan á máltíð stendur.
Árangurinn af þessum lifnaðarháttum er fullkomin heilbrigði, sem
varla á sinn líka. Eftir erfiði dagsins sér engin þreytumerki á þeim,
er þeir leggjast til svefns að kvöldi. Þeir bera af öðrum indiánum um
gáfur, fríðleik, fagran líkamsvöxt og þol.
Gamla fólkið er hnarreist og léttfætt sem unglingar. Aldurinn
virðist ekki setja nein veiklunarmerki á líkama þeirra né líffæri.
Hjartað heldur þanþoli sínu. Heyrn og sjón dofnar ekki. Tennurnar
eru mjallhvítar og óskemmdar fram á elliár. Lífið slokknar í hárri
elli, án þjáninga eða dauðastríðs, líkt og þegar kerti brennur út.
Þetta er árangurinn af einföldum og heilnæmum lífsvenjum, nátt-
úrlegri jurtafæðu, að mestu ósoðinni og lausri við krydd og nautna-
vörur. (Ny tid og vi).
KORNMYLNA Á AKUREYRI.
Náttúrulækningafélag Akureyrar hefir fengið umráð yfir lítilli
kornmylnu, sem mun taka til starfa, þegar er korn verður fáanlegt.