Heilsuvernd - 01.03.1951, Side 40
32
HEILSUVERND
Á víð og dreif
NLFl getiö í erlendu blaði.
I amerísku riti jurtaneytenda,
Vegetarian News Digest, hefir
nýlega verið sagt allrækilega
frá NLFl og starfi þess hér.
Heimildarmaður ritsins er Vil-
hjálmur Þ. Bjarnar, stud. mag.,
sem hefir dvalið vestra um
nokkurra ára skeið.
Hve oft liœgðir?
Hiypókrates, „faðir læknis-
fræðinnar", eins og hann hefir
verið nefndur af læknum, seg-
ir í riti sínu „Prognostics", 11.
kafla:
„Hægðirnar er beztar, ef þær
eru linar að ásigkomulagi og
að magni til hlutfallslegar á
við það fæðumagn, sem sjúkl-
ingurinn neytir, og ennfremur
ef þær koma á sömu tímum og
venja var til, er sjúklingurinn
var heill heilsu. Samkvæmt því
á sjúklingurinn að hafa graut-
linar, lyktarlausar hægðir tvis-
var til þrisvar að deginum og
einu sinni að kvöldinu eða nótt-
unni, en svo er það hjá þeim,
sem eru fullkomlega heilbrigð-
ir.“
Hvorum á nú að trúa, Hippó-
kratesi og Ireynsluvísindum
hans, sem hann hafði aflað sér
m. a. með ævilangri athugun á
löndum sínum Forngrikkjum, er
lifðu við einfaldar og náttúrleg-
ar matarvenjur, eða nútíma
læknavísindum, sem kenna, að
nóg sé að hafa hægðir einu sinni
á dag eða sjaldnar og styðjast
við „vísindalegar" bollalegging-
ar eða reynslu menningarþjóð-
anna, sem gert hafa einhæfar og
stórspilltar fæðutegundir að
uppistöðunni í daglegu viður-
væri og á fjölmargan annan
hátt farið út af stígum heil-
brigðs lífernis?
. Lœkningar án lyfja
voru viðurkenndar og leyfðar
með lögum í Bandaríkjunum ár-
ið 1931, undir nafninu „náttúru-
lækningar" (Naturopathy). —
Hafa náttúrulæknar sömu und-
irstöðumenntun og aðrir lækn-
ar. En læknastéttin virðist hafa
horn í síðu þeirra, og hafa verið
gerðar margítrekaðar tilraunir
til að útrýma þessari sérgrein
— án árangurs.
Reykingamenn greiöi
hœrri iögjöld.
Ameríski læknirinn Rasmus
Alsaker segir frá því, að mörg-
um sjúklingum hans hafi batn-
að erting í hálsi og hósti, sem
oft stafaði frá lungnapípunum,
af því einu að hætta að reykja.
Meltingartruflanir og truflanir
á hjarta batni oft af því sama.
Hann segir og svo frá, að skýrsl-
ur líftryggingafélaga sýni, að
reykingamenn verði ekki eins
langlífir og hinir, sem ekki
reykja. Hafi því verið lagt til,
að reykingamönnum verði gert
að greiða hærra iðgjald en öðr-
um. Mun það tíðkast hjá sum-
um líftryggingafélögum.