Heilsuvernd - 01.04.1957, Side 7
HEILSUVERND
Jónas Kristjánsson:
Hvert stefnir hin vestrœna siðmenning?
Hvernig stendur á því að vestrænar þjóðir eru allra
þjóða kvillasamastar og hrakar þó með hverjum áratug
sem liður? Þannig mætti lengi spyrja. En svarið er ófeng-
ið ennþá, og svo mun fara enn um óákveðinn tíma þar
til ekki verður hjá því komizt að finna sannleikann í
þessum efnum, þann sannleika, sem í raun og veru blasir
við augum hvers þess manns, sem beitir heilbrigðri skyn-
semi. Vér erum krankfelldir, vegna þess að við neytum
dauðrar og ónáttúrlegrar fæðu, þrátt fyrir það að forsjón
lífsins ætlar oss náttúrlega lifandi fæðu.
Hinn hvíti mannflokkur hefur villzt inn á rangar mann-
eldisbrautir. Hver maður og hver þjóð, sem neytir dauðrar
fæðu, eru að kalla dauða yfir sig. Reynslan er ólygnust.
Dómi hennar verður ekki áfrýjað, hver sem í hlut á.
Vestræn siðmenning á sök á ægilegum óförum, sem
frumstæðar þjóðir hafa orðið fyrir, er þær hafa tekið upp
siði hennar. Tóbak, alkohol og kynsjúkdómar, en umfram
allt óhollar matarvenjur hafa sært fákunnandi sakleys-
ingja ólífissárum. Verður ekki annað sagt en að vestræn
siðmenning sé komin á hálar brautir í manneldismálum,
mannskemmdarbrautir, sem orðið hafa til þess að lífsþrótti
vestrænna þjóða hefur hrakað hröðum skrefum síðustu
75 árin. Á þessum árum hefur komið fram fjöldi kvilla,
sem áður voru ókunnir. Þykist ég dómbær um þetta vegna
þess, að flestir komu þessir kvillar til sögunnar eftir að
ég hóf læknisstörf.
Því nær allir sjúkdómar, er á oss sækja nú, stafa af
röngum og sjúklegum manneldisvenjum. Læknastéttin
verður ekki dæmd sýkn saka um að eiga nokkurn þátt í
þessu ófremdarástandi. Athygli lækna hefur beinzt að sjúk-