Heilsuvernd - 01.04.1957, Qupperneq 10

Heilsuvernd - 01.04.1957, Qupperneq 10
HEILSUVERND Úlfur Ragnarsson: Xim baðlœkningar Vegna þess að ég geri ráð fyrir að einhverja af lesend- um Heilsuverndar fýsi að heyra um baðlækningar eins og þær tíðkast erlendis nú á dögum, hefi ég ráðist í að skrifa þetta greinarkorn um slíkar lækningar eins og þær komu mér fyrir sjónir í för minni til Þýzkalands og Sviss eftir áramótin síðustu. Verður þó farið fljótt yfir sögu og ýmsu sleppt, sem ég tel að lítið erindi eigi fyrir augu íslenzkra lesenda, sökum þess, að það mun aldrei fá neitt hagnýtt gildi hér á landi. Tilgangur fararinnar var fyrst og fremst sá að kynnast því, sem nýjast og bezt er að finna í þessum efnum, vinsa úr það, sem að gagni gæti komið, í sambandi við baðdeild þá, sem nú er að rísa við heilsuhæli N.L.F.f. í Hveragerði, og síðast, en ekki sízt að komast að því, hvað bæri að varast, því að mistökin reynast oft dýrkeypt. Baðlækningar í Þýzkalandi og Sviss eiga sér langa sögu. f báðum þessum löndum eru rústir frá blómaskeiði Róma- veldis, sem gaman var að sjá. Af stærð rústanna má ráða, að staðir þessir hafa verið mikið sóttir um skeið. Síðar dróst starfsemin saman, en mörg böðin hafa verið starf- rækt að meira eða minna leyti allt fram á þennan dag. Til þessarra heilsulinda lögðu menn leið sína öld eftir öld að leita glataðrar heilsu; fundu eða fundu ekki og fóru að lokum allir undir græna torfu. „Allrar veraldar vegur víkur að sama punkt“. Lindirnar, sem baðstaðirnir risu við, eru það, sem ís- lendingar mundu nefna ölkeldur og laugar, annaðhvort eða hvorutveggja í senn. Vatnið er oft hlaðið kolsýru og margs-

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.