Heilsuvernd - 01.04.1957, Side 27
HEILSUVERND
23
þessum börnum hafa 4282 fæðst vansköpuð. En „sem
betur fer“ eru 650 andvana fædd. Af þeim sem lifa eru
1046 með úrkynjunareinkenni í beinum, vöðvum, húð eða
taugakerfi, 429 með vansköpuð heyrnar- og þeffæri, 313
hafa vanskapað andlit og kok, 243 voru vansköpuð inn-
vortis, 47 höfðu vanskapaðan heila, en 25 fæddust heila-
laus og 8 börn vantaði augun og jafnvel augnatóftirnar.
Sjöunda hvert barn fæddist vanskapað í Nagasaki.
Það er aðeins hægt að tala um það í lágum hljóðum,
sem raunverulega er að orðið. I líkama hverrar verðandi
móður þar suður frá hefur verið grafin skotgröf, þar sem
stríðið heldur áfram. Eftir að hinir fullorðnu stríðsmenn,
amerískir og japanskir, hafa lagt frá sér vopnin og samið
með sér frið, þá halda drápstækin áfram í trássi við alla
friðarsamninga og beina eldinum að ófæddum börnum og
gjöra þau að vanskapningum, jafnvel í móðurkviði á mann-
skepnan ekki lengur frið að finna. Stríðið heldur áfram,
og þannig verður sú staðreynd eins og skerandi sjálfsháð,
að japanir hafa nú fengið vopn sín aftur eftir ósk ameríku-
manna sjálfra.
Eftir sem áður nístir okkur augnaráð átta barna, sem
vantar bæði augu og augnatóftir. Okkur getur runnið kalt
vatn á milli skinns og hörunds hér hinumegin á hnettin-
um við þá hugsun, að þau standi og horfi á okkur. Ef til
vill eru þau aðeins að furða sig á því, að við skulum dirfast
að halda áfram leik okkar með eldinn, og að við skulum
ekkert hafa að athuga við hinar ófullnægjandi skýrslur.