Heilsuvernd - 01.04.1957, Page 29

Heilsuvernd - 01.04.1957, Page 29
HEILSUVERND 25 Að lokum sýndi Helgi Steinarr nokkrar skuggamyndir í litum af fallegum stöðum í bæ og nágrenni, þar á meðal úr görðum í bænum, er hlotið hafa verðlaun og viður- kenningu Fegrunarfélagsins. Var kynningarkvöld þetta hið ánægjulegasta. N. L. F. I. opnar verzlun í Hafnarfirði Náttúrulækningafélag Islands hefur nýlega opnað verzlun í Hafnarfirði. Kvaddi stjórn félagsins blaðamenn á sinn fund, s.l. mánudag og sýndi þeim búðina. Hin nýja verzlun er til húsa við Austurgötu, þar sem Gunnlaugsbúð var áður. Hefur búðin öll verið máluð og innréttingu breytt að nokkru. Er búðin í alla staði hin vistlegasta. Náttúrulækningafélagið vill með opnun þessarar nýju verzlunar auðvelda félagsmönnum og öðrum öflun heil- næmrar fæðu í sem mestu samræmi við náttúrulækninga- stefnuna. Mun verzlunin kappkosta að hafa slíkar vörur ætíð á boðstólum. Jafnhliða verða einnig seldar í verzl- uninni aðrar algengar matvörur. Fá félagsmenn 10% af- slátt af flestum vörum í pöntunum, svo og við búðarborðið um leið og kaup eru gerð, ef keypt er fyrir 50 krónur eða meira. Rúm þrjú ár eru nú liðin síðan Náttúrulækningafélagið stofnaði pöntunarfélagið í Reykjavík. Einnig hefur félagið rekið verzlun að Týsgötu 8, og hefur hún gengið vel. Er félagið nú að færa út kvíarnar með stofnun verzlunar hérna í Hafnarfirði. Mun allur hagnaður af verzluninni renna til uppbyggingu og umbóta á henni sjálfri. Framkvæmdastjóri fyrir báðum verzlunum félagsins er Haraldur Guðmundsson. Við verzlunina hér í Hafnarfirði hafa verið ráðnir 2 ungir Hafnfirðingar, þeir Ingi Ó. Guð- mundsson og er hann verzlunarstjóri, og Ólafur Vigfússon. <o> Ólafur Gottskáiksson á Siglufirði sendir Heilsuvernd eftirfarandi vísu, sem kom honum í hug, þegar hann var

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.